Harmonikublaðið - 01.09.2017, Blaðsíða 4

Harmonikublaðið - 01.09.2017, Blaðsíða 4
Fréttir frá Harmonikufélagi Rangæinga Samstarf Harmonikufélags Rangæinga og Harmonikufélags Selfoss hefur reynst hin besta vítamínsprauta fyrir bæði þessi félög og eru engin áform önnur uppi en að halda því áfram. Æft hefur verið til skiptis á Hellu og Selfossi og var aðalverkefni síðasta vetrar undirbúningur fyrir landsmótið á Isafirði. Lögð var áhersla á að fara með íslenska tónlist í farteskinu og endirinn varð sá að aðeins eitt lag á okkar prógrammi var erlent. Undirritaður er sérlega ánægður með hvernig til tókst og stoltur af okkar fólki sem taldi alls 11 harmonikuleikara auk gítar- og bassaleikara enda langar og strangar æfingar að baki undir styrkri stjórn Grétars Geirssonar. Aður en lagt var af stað til ísafjarðar var haldin lokaæfing í Safnaðar- heimilinu á Hellu 21. júní og mættu á milli 50 og 60 manns til að hlýða á herlegheitin. Undirritaður gat því miður ekki verið með á lokasprettinum þar sem hann hafði verið bitinn í bakið af Þursi og er satt að segja orðinn nokkuð langþreyttur á þessu sífellda narti þursans og myndi svo sannarlega koma honum fyrir kattarnef væru einhver ráð til þess. Landsmótið á ísafirði er án efa hápunkturinn á starfi þessa árs. Þar var frábærlega vel að öllu staðið og eiga Isfirðingar allan heiður skilið fyrir undirbúning og utanumhald allt og ekki spillti veðrið fyrir. Var haldið heim á leið með bros á vör og gleði í hjarta og færum við okkar bestu þakkir vestur. Eftir landsmót var ekkert formlegt í gangi en 9. júlí var spilað á Sólheimum í Grímsnesi og 31. júlí var spilað á Dvalarheimilinu Lundi á Hellu og Kirkju- hvoli á Hvolsvelli við góðar undirtektir heimilisfólks. Það er ákaflega gefandi að spila á þessum stöðum og er mannbætandi mjög. Um kvöldið voru svo nikkurnar þandar á Kaffi Langbrók í Fljótshlíð og var mikið sungið og mikið spilað og var haft á orði að þetta yrði endurtekið að ári. Á stjórnarfundi í félaginu var rætt um hvort ekki væri tilefni til að færa Tónlistarskóla Rangæinga harmonikur að gjöf þar sem okkur hafði borist til eyrna fréttir um fjölgun nemenda í námi á harmoniku og tónlistarskólinn ætti auk þess 60 ára afmæli. I Ijós kom að skólastjóri tónlistarskólans Sigríður Aðalsteinsdóttir hafði strax mikinn áhuga á þessu og hafði þegar ákveðið að leggja fé til kaupa á harmonikum. Var gengið til samstarfs við skólann og keyptar 3 nikkur eftir að markaðurinn hafði verið kannaður auk ferðar til höfuðborgarinnar með kennaranum Grétari Geirssyni. Leggjum við til andvirði einnar harmoniku af Hohner gerð en tónlistarskólinn kaupir tvær kínverskt ættaðar. Verða alls fimm nemendur í námi í vetur allir í yngri kantinum og er þetta eflaust árangur kynninga á hljóðfærinu í yngri bekkjum grunnskólans en tónlistarskólinn býður þar upp á nám á forskólastigi. Einnig er fyrirhugað frekara samstarf tónlistarskólans og harmonikufélagsins í formi tónleika, frekari kynninga á hljóðfærinu og annarra viðburða. í okkar félagi er lögð áhersla á að allir geti spilað með sem vilja hvar svo sem menn eru staddir tónlistarlega séð og er þetta arfleið frá Jóa Bjarna heitnum og engin áform um að breyta því. Áhugi er á að reyna dansleikjahald hér fyrir austan fjall nú á haustdögum og eftir japl, jaml og fuður var ákeðið að halda dansleik í Básnum í Ölfusi 23. september nk. kl. 21:00. Við vitum að þetta stangast á við haustfundinn en það er ekki alltaf jólakaka með kaffinu eins og sagt er. Svo sjáum við til með ball hér í Rangárvallasýslu þegar líður meira á haustið. Bestu harmonikukveðjur til allra þeirra sem þetta lesa. Texti: Haraldnr Konráðsson Mynd: Siggi Harðar Hljómsveit Rangœinga og Seljyssinga á Isafirði 4

x

Harmonikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.