Harmonikublaðið - 01.09.2017, Page 7
einkenni dansleikja harmonikuunnenda. Allir
voru glaðir og reifir, en allt í mesta hófi, þó
trúlega hafi einhverjar undantekningar
fundist, eftir nákvæma leit. I það minnsta varð
þessi vísa til hjá Friðriki Steingrímssyni.
Bakkusar hin beisku kynni,
býsn, þau reyna á mœðu stráið.
Þú lifir aðeins einu sinni,
en ótal skipti getur dáið.
Laugardagurinn heilsaði með brosi á brá. Eftir
hefðbundin morgunverk hófust tónleikar
klukkan tvö og fyrstir á svið voru fulltrúar
Þingeyinga. Þar var blandað saman nýju og
gömlu og gestir fengu ma. að kynnast
frábærum hæfileikum Astu Soffíu
Þorgeirsdóttur. I kjölfar Þingeyinga kom svo
sameinað lið Rangæinga og Selfyssinga. Þar
var léttleikinn í fyrirrúmi undir öruggri stjórn
Grétars Geirssonar. Héraðsbúar voru næstir,
en eins og hjá fleirum hefur fækkað í þeirra
hópi. Þá var komið að óvæntu atriði til að
brjóta aðeins upp dagskrána. Þar voru mættar
fimm ungar heimakonur (Margrét og
aumingjarnir), sem glöddu gesti með
skemmtilegum flutningi á gömlum
dægurperlum. Það sem sérstaklega var
áhugavert var að allar þessar konur leika á
hljóðfæri, en að þessu sinni léku þær á önnur
hljóððfæri en þær eru vanar og tókst mætavel.
Friðrik Steingrímsson naut tónleikanna eins
og aðrir gestir og stóðst ekki mátið
Lagaflóðið tónatœrt,
trega og kvíða fargar.
Upp á sviðið skína skært,
skrautdívurnar margar.
Hljómsveit Félags harmonikuunnenda við
Eyjafjörð kom sér nú fyrir á sviðinu og hóf
upp raust sína af miklu öryggi sem fyrr undir
stjórn Roars Kvam. Að því loknu voru kallaðir
á svið félagar sem stjórn SIHU hafði ákveðið
að heiðra. Var það glæsilegur hópur sem um
árabil hefur verið í fylkingarbrjósti harmoniku-
unnenda á landinu. Frá Harmonikufélagi
Reykjavíkur voru þeir Einar Friðgeir Björnsson
og Sigurður Alfonsson, frá Harmonikufélagi
Vestfjarða Magnús Reynir Guðmundsson.
Skagfirðingarnir Jón St. Gíslason og Hermann
Jónsson. Þá var Sigurður Leósson úr Eyjafirði
og síðan Þingeyingarnir Kristján Kárason og
Rúnar Hannesson. Þrír Héraðsbúar voru
ennfremur í hópnum, þeir Sigurður Gylfi
Björnsson, Sveinn Vilhjálmsson og Jón
Sigfússon. Hlutu allir þessir verðskuldað
lófaklapp. Að því loknu var komið að síðasta
atriði tónleikanna. Það var Léttsveit
Harmonikufélags Reykjavíkur sem sá um það
eins og þeim er lagið undir öruggri stjórn
Einars Friðgeirs Björnssonar. Var það ágætur
endir á skemmtilegri dagskrá, sem nú var
frestað um stutta stund þar til Ítrío kæmi sér
fyrir á sviðinu. I fyrsta skipti í sögu
landsmótanna voru heiðursgestirnir íslenskir
Setning mótsins í blíðunni d Isafirði
1)2017 13. indsmót 2017
SMÍBANDS íSLENSKRA HARMONIK'UUNNENDA?
Heimamenn pakka fyrir sig í upphafi tónleikanna
Hljómsveit aldursforsetans FHUR
dsmot
MnNIKLLNNENDA.
w: A L • ^ Æ
i T I
wl f’lt'® 1
Kvennakór Isafiarðar. Skrautlegastar af öllum sem fam komu
7