Harmonikublaðið - 01.09.2017, Qupperneq 8
harmonikuleikarar. Fyrsti heiðursgestur SIHU
á landsmóti var sænski harmonikuleikarinn
Nils Flacke, en hann lék fyrir gesti landsmótsins
á Laugum í Reykjadal árið 1990. Þá skapaðist
sú hefð á bjóða upp á tónleika snillings á
landsmóti. Síðan hafa margir snillingar leikið
listir sínar á landsmótum. Tónleikum Itríos
verður gert betri skil á öðrum stað í blaðinu.
Nú var aðeins eftir að fá sér eitthvað í gogginn
og mæta galvaskur á ballið í íþróttahúsinu sem
skyldi hefjast klukkan níu. Lokadansleikurinn
fór að vonum. Nikkólína hóf leikinn. I kjölfar
þeirra komu félagar úr Harmonikufélagi
Reykjavíkur og síðan Eyfirðingar. Allar þessar
hljómsveitir sáu til þess að gólfið var fullt af
dansandi unnendum í sínu besta skapi. Það
voru síðan heimamenn með þá Villa Valla og
Baldur Geirmunds í fararbroddi, sem luku
þessum skemmtilega dansleik á þann hátt sem
þeim er einum lagið. Máttu þeir leika nokkur
aukalög, enda stuðið ósvikið. Skemmtilegu
landsmóti var lokið og gestir héldu heim næstu
daga með sarpinn fullan af ljúfum minningum
um góðra vina fund við Skutulsfjörð. Mótið
var gestgjöfunum, Harmonikufélagi Vestfjarða,
undir stjórn formannsins Karítasar Pálsdóttur
til mesta sóma, enda gestrisni Vestfirðinga
viðbrugðið.
Texti: FriSjón Hallgrímsson
Myndir: Siggi HarSar
TIL SÖLU
Vönduð og vel með farin
hnappaharmonika,
Bugari Armando 508
gold,til sölu.
Verð 500.000 kr.
Jón Sigurjónsson
Sími 464 3148
Hjarðarhóli 1
640 Húsavík
V_______________________)
8
Roar Kwam með sína hljómsveit FHUE
Lokatónninn sleginn á tónleikunum afléttsveit Harmonikufélgs Reykjavíkur
Góðþátttaka í dansinum á laugardagskvöldinu
Itríó ásamt nokkrum jylgifiskum á ballinu