Harmonikublaðið - 01.09.2017, Side 9
Flemming á Borg
Heiðursgestur harmonikuhátíðarinnar „Nú er
lag“ á Borg í Grímsnesi um verslunarmanna-
helgina var Flemming Viðar Valmundsson.
Það hefur verið regla hjá FHUR að bjóða upp
á fyrsta flokks harmonikutónleika á sínum
mótum, en yfirleitt hafa þeir verið erlendir,
með fáum undantekningum. Flemming hefur
verið nánast fastagestur á „Nú er lag“ frá unga
aldri og vel þekktur innan FHUR og jafnvel
leikið á danleikjum á Varmalandi. I vikunni
fyrir mótið birtist í Morgunblaðinu heil-
síðuviðtal við kappann og varla hægt að fá betri
auglýsingu. Það mátti greina á tónleikunum
því annar eins fjöldi hefur ekki sótt tónleika
hjá FHUR í háa herrans tíð. Klukkan tvö mátti
heita að hvert sæti í húsinu væri setið.
Flemming hóf tónleikana á gamla
standardinum Dizzy fingers eftir Confrey í
útsetningu flytjandans. Þessu var fylgt eftir
með annarri útsetningu hans á lagi úr Mjallhvít,
Someday my prince will come eftir Churchill.
Síðan kom hver perlan af annarri, Libertango
eftir Piazzolla fékk að fljóta með ásamt hinu
kostulega verki Got a match eftir Chick Corea,
sem talsvert hugrekki þarf til að reyna að leika.
Næst var boðið upp á hinn gullfallega Vals nr.
2 eftir Shostakovich í útsetningu Flemmings.
Þá kom Prelúdía í g-moll eftir Rachmaninoff
ásamt búlgörsku þjóðlagi Gankino Horo í
aldeilis afbrigðilegum takti. Þarna fengu menn
að heyra Flemming spinna í
algleymi. Allt þetta leysti
hann af miklum glæsibrag,
auk þess að sjá um unggæð-
ingslegar og grallaralegar
kynningar sem skildust vel.
Hins óviðjafnanlega Valse a
Margeux eftir franska
snillinginn Richard Galliano
fengu gestir þar næst að njóta
með tónlistarmanninum.
Valsinn sá er talinn einn
fallegasti vals sem saminn
hefur verið í seinni tíð. Þá var
næst á dagskránni íslenskt
verk, þegar Flemming spann
eigin útsetningu af Bláu
augun þín eftir Gunnar
Þórðarson. Þarna naut lagið
sín sannarlega vel í glænýrri útsetningu.
Tónleikunum lauk á Sverðdansinum eftir
Khatchaturian. Það höfðu margir gestanna
heyrt Flemming leika áður, en aldrei sem á
Borg, enda ætlaði fagnaðarlátum aldrei að
linna. Þá bætti okkar maður við
Hríseyjarvalsinum eftir Pálma Snorrason,
sérlega fallegum valsi, dálítið í stíl Ragnar
Sundquist. Ekki dugði þetta áheyrendum og
það var ekki fyrr en Flug Býflugunnar
(Gyðingaflugmaðurinn) eftir Evgeny
Derbenko, sem er eins konar útúrsnúningur
á býflugu Rimsky-Korsakov hljómaði að ríflega
tvö hundruð gestir þökkuðu fyrir sig og risu
úr sætum. Eftirminnilegum tónleikum var
lokið. Tónlistarmanninum fylgdu hlýjar
kveðjur á leið hans til Kaupmannahafnar, en
þangað hélt hann til framhaldsnáms tveimur
vikum eftir tónleikana. Næstu tónleikar eru
sannarlega tilhlökkunarefni.
Friðjón Hallgrímsson
Mynd: Siggi Harðar
Úrval af nýjum og notuðum harmonikum
/® BORSiNi / Z6R0 S6TT6 polverini Q Æm
lencuf>
Fisitalia 120 bassa
kr. 430.000,-
Excelsior 140 bassa
kr. 220.000.-
Serenelli 120 bassa
kr. 80.000,-
Eigum einnig ólar og aukahluti
Zero-Sette 120 bassa
kr. 225.000,-
Guerrini 120 bassa
kr. 160.000,-
Golden Cup 96 bassa
kr. 129.000,- ný
Frontanelini
120 bassa
kr. 35.000,-
TDNAR
Akureyri: Mosateig 5
Reykjavík: Álfalandi 7
Sími 462 1520 & 660 1648
Sími 568 3670 & 824 7610
Fisitalia frábærar
harmonikur á góöu verði
9