Harmonikublaðið - 01.09.2017, Blaðsíða 10

Harmonikublaðið - 01.09.2017, Blaðsíða 10
Þingeyingar á landsmóti SÍHU á ísafirði 2017 Þann 28. júní sl. fór hópur Þingeyinga til Isafjarðar á rútu, að taka þátt í landsmóti Sambands íslenskra harmonikuunnenda. Bílstjóri var SigurðurTryggvason, en fararstjóri Sigurður Olafsson. Ekki þóttum við afkastamiklar í kveðskapnum, en á leiðinni vestur varð þetta til. Andinn kom ogandinnfór enginn slíkan gratur. En fyrir vestan bíður bjór og bjartar sumarnœtur Við komuna til ísafjarðar blasti Skutulsfjörðurinn við í allri sinni dýrð. Fjörðurinn er fagurblár fjöllin speglar sjórinn. A okkur bœrist ekki bár og ekki gárast bjórinn. A Isafirði gisti hópurinn í Herkastalanum við Mánagötu, en félagar á eigin vegum gistu á tjaldsvæðum bæjarins. Veðrið lék við mótsgesti þó eina nóttina hafi gert hvell þegar tjald félaga okkar Friðriks Steingrímssonar fauk. Eftir jjögur upp hann rauk ekki lítill krafiur. Tjaldið burt með Friðrik fauk. Hann fannstpví miður afiur. Daginn eftir komuna litum við á bæinn og fórum á sýningu Asgeirs Sigurðssonar í Safnahúsinu. Klukkan tvö á föstudaginn var mótið sett. Þann dag vorum við á tónleikum í íþróttahúsinu frá þrjú til fimm og daginn eftir frá tvö. Þá byrjuðu félagar okkar Rúnar, Katrín ogÁsta Soffía, svo við vorum stundvís. Stóð dagskrá til ríflega sex og endaði á glæsilegum tónleikum harmonikuleikara, sem eru við nám í Danmörku. Þessir dagar voru alger veisla. Á kvöldin voru böll. Fyrstu Hópurinn við komuna til Isafjarðar kvöldin, fórum við milli Hússins, Krúsarinnar og Edinborgarhússins. Allsstaðar var dúndrandi fjör. I Edinborgarhúsinu bauð ungur piltur Sigríði í dans og fóru þau létt yfir. Með strengi oggigt í hœgri hupp hími ég og þjóra. En Sigríður, hún yngir upp um áratugi jjóra. Er ég skána í hœgri hupp og haustnóttin er dimm mun ég og reyna aðyngja upp um áratugi fimm. Aldrei verð ég á pví leið að iðka rallið. En aLLa stiga upp ég skreið eftir priðja ballið. Síðasta kvöldið var stórdansleikur í íþróttahúsinu. Allt fór mótið vel fram og á formaður Vestfirðinga Karítas Pálsdóttir heiður skilinn. Fyrir utan dagsskrá var spilað á tjaldstæðum og sungið. Trúi ég að allir hafi verið sælir, enda veðrið gott. Á heimleiðinni gerðust menn værir og míkrófónninn lá í gólfinu, vanræktur af öllum og þegar ég tók hann upp reyndist sambandsleysi í snúrunni. I mér heyrist ekki neitt eitthvað dapurt tólið. Það líkist okkur, lúið ogpreytt og langar kannske í bólið. Hólmfríður Bjartmarsdóttir tók saman Mynd: Sigurður Olafsson Harmonikusdfn Ásgeirs S. Sigurðssonar býður öldruðum harmomkum farsælt ævikvöld á Byggðasafni Vestfjarða. Sími: 456 3485 cg 844 0172. Nctfang: assigu@mtcrnct.is Vcffang: www.ncdsti.is BygiuWwlii 10

x

Harmonikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.