Harmonikublaðið - 01.09.2017, Síða 14
Sumarhátíðin að Ýdölum 2017
Félag harmonikuunnenda í Eyjafirði ásamt
Harmonikufélagi Þingeyinga héldu að þessu
sinni sína árlegu sumarhátíð sem alla jafna fer
fram helgina fyrir verslunarmannahelgi að
Ýdölum í Aðaldal en undanfarin ár hafa þessi
mót verið haldin að Breiðumýri í Reykjadal.
Ástæða fyrir þessari nýbreytni voru ýmis atriði
sem ekki þóttu nógu góð að Breiðumýri en
þar má nefna að húsnæði þar var orðið of lítið
vegna mikillar aðsóknar og staðurinn
óhentugur að ýmsu öðru leyti. Því var ákveðið
að reyna fyrir sér á nýjum stað og er skemmst
frá að segja að þetta þótti takast með afbrigðum
vel. Að Ýdölum er aðstaða öll mikið betri, þar
er samkomuhúsið langtum stærra og rýmra
um mótsgesti og einnig er mikið meira og
betra pláss fyrir ferðahýsi af allskonar gerðum
útifyrir.
Eins og venjulega var fólk farið að koma strax
á fimmtudaginn en á föstudaginn fóru
mótsgestir að flykkjast að. Flestir gistu í
allskonar ferðahýsum svo sem húsbílum,
hjólhýsum, fellihýsum, tjaldvögnum og
tjöldum. Einnig komu margir úr nágrenninu
á dansleikina og tónleikana án þess að gista.
Ætla má að vel yfu 300 manns hafi komið til
að skemmta sér saman þessa helgi.
A föstudagskvöldið byrjaði svo ballið í orðs
þess fyllstu merkingu. Nú var leikið einungis
á einum stað en á Breiðumýri var jafnan auka
samkomutjald útifyrir til að auka dansplássið.
Nægt pláss var nú á stóru dansgólfi og næg
sæti fyrir alla sem vildu.
Fjórar hljómsveitir léku hvort kvöld en á
föstudagskvöldið byrjuðu þau Omar Skarp-
héðinsson ásamt fleirum frá Neskaupstað. Við
af þeim tók Akureyringurinn Einar Guð-
mundsson og fleiri, þá Fjörkálfarnir frá
Akureyri og Þingeyingurinn SigurðurTryggva-
son endaði svo dansleikinn um klukkan tvö
eftir miðnætti.
A laugardaginn voru svo tónleikar þar sem
margt góðra hljóðfæraleikara komu fram.
Fyrst lék Asta Soffía Þorgeirsdóttir frá Húsavík
nokkur klassísk lög af mikilli snilld. Þá lék
Sérsveitin svokallaða sem er hópur harmo-
nikuleikara frá Akureyri sem komið hefur
saman til að leika sér með hljóðfærin. Þá kom
dúettinn Agnes og Elsa einnig frá Akureyri og
eru þær af yngri kynslóð harmonikuleikara og
hafa þær æft saman um skeið. Reynsluboltinn
Einar Guðmundsson lék af sinni alkunnu snilli
og fór létt með eins og venjulega og að endingu
léku svo Vesturfararnir undir stjórn Roars
Kvam en nafn sitt fengu þeir af því að vera
fulltrúar Eyfirðinga á landsmótinu á Isafirði í
sumar.
Hlé var gert á tónleikunum um stund og voru
bornar fram vöfflur með rjóma og sultu eins
og best gerist. Þótti það vera vel til fundið og
sátu gestir yfir kaffibolla og spjalli um stund.
14
HéraSsbúar ásamt aðstoðarmönnum á sviðinu í Ýdölum
Gamalkunnug blanda Eyfirðinga og Þingeyinga
Elsa ogAgnesfrá Akureyri á tónleikunum
Um kvöldið var sameiginlegt grill og þar gátu
gestir lagt kræsingar á glóðir og svo snæddu
margir sameiginlega á eftir.
Happdrætti var og fjöldi góðra vinninga sem
dregið var úr um kvöldið fyrir ballið.
Klukkan tíu hófst svo dansleikurinn en þar
léku hljómsveitirnar BRAZ frá Akureyri,
Aðalsteinn ísfjörð ásamt fleiri góðum,
Héraðsbúar með Jón Sigfússon í fararbroddi
voru næstir og Strákabandið frá Húsavík sló
síðustu tónana þegar klukkan var farin að
ganga þrjú.
Leið svo þessi helgi í vellystingum og góðu
veðri og áttu þar margir góðar stundir í góðra
vina hópi og undu sér við hljóðfæraleik og
nutu samvista sem aldrei fyrr.
Texti og myndir:
Valberg Kristjánsson - ritari FHUE