Harmonikublaðið - 01.09.2017, Síða 15

Harmonikublaðið - 01.09.2017, Síða 15
ftríó á landsmótinu Óefað var stærsti viðburðurinn á ísafirði tónleikar Itríósins á laugardeginum. I fyrsta skipti voru heiðursgestirnir Islendingar og í fyrsta skipti var ekki leitað erlendis eftir snillingi til að leika fyrir landsmótsgesti. Segja má að margir hafi lengi verið búnir að bíða þessara tónleika enda stórviðburður. Félagarnir hófu leikinn á verkinu Stars (Stjörnur) úr smiðju Pawels Barneks og félaga hans úr Motion tríóinu. Alls ekki svo slæm hugmynd að byrja tónleika, enda verkið fallegt, draumkennt og dálítið óráðið. Næst var boðið upp á Himnalestina eftir Wojtarowicz. Þetta er eitt af frægari verkum Pólverjanna. Mjög krefjandi stykki þar sem lítið pláss er fyrir mistök. Taktfast eins og lest sem heldur áfram og hefur enga stoppistöð, aðeins endastöð. Þremenningarnir fluttu þetta af miklu öryggi. Þá var komið að Astor Piazzolla, þeim mikla meistara. Fyrir valinu varð Sumarið úr Arstíðunum. Þarna er allt með meiri ró og spekt, en sumarið hefur að geyma einstaklega fallega laglínu. Þá var komið að verkinu „mutta“ eftir eitt fremsta nútímatónskáld Finna, JukkaTiensuu. Þarna er nútímaverk frá 1985, sem hljómar eins og algjör framúrstefna. Laglína er aukaatriði en hljóðfærin fá að finna til tevatnsins. Hræddur er ég um að margir tónleikagesta hafi ekki fengið neinn botn í verkið. En mikið var gaman að fylgjast með þremenningunum koma þessu til skila. Þá var komið að Sailing eftir samnemanda þeirra í Kaupmannahöfn. Aheyrilegt en mjög sérstakt stykki. Þá var komið að eina verkinu sem ekki var samið á tuttugustu öldinni. Aría Bachs á G - streng var eitthvað sem tónleikagestir könnuðust við og kunnu svo sannarlega að meta. Flutningur tríósins var frábær enda undirtektir í takt við það. Trúlega hefðu áheyrendur þegið meira í Itríó á sviðinu á Isafirði þeim dúr. Þá var aftur komið að verki úr smiðju Motion tríósins. Að þessu sinni Café Paris. Einstaklega áheyrilegt verk úr smiðju Janus Wojtarowicz. Þetta féll vel í kramið á ísafirði í sérlega fallegum flutningi listamannanna. Þá var farið að líða að lokum veislunnar og næst fengu áheyrendur Rondo Caprissioso eftir Zolotaryev, fallegt verk úr penna Rússans. Lokalagið var svo Balkanskur dans, sem er þjóðlag frá Makedóníu. Gríðarlega fallegt og grípandi verk úr smiðju Pólverjanna í Motion Trio. Þarna fór tríóið á kostum sem aldrei fyrr og tónleikagestir voru sem dáleiddir. Þeir slepptu listamönnunum ekki fyrr en þeir höfðu leikið eigin útsetningu (nokkuð sem þau mættu gera meira af) af tveimur íslenskum þjóðlögum, Dýravísum og Krummavísum. Þarna fengu harmoniku- unnendur svo sannarlega að heyra hvers megnugur hópurinn er með frábærri útsetningu. Eftirminnilegum tónleikum var lokið með öruggum íslenskum sigri. Allur var flutningur þremenninganna öruggur og kynningar sömuleiðis. Spilamennskan var á köflum svo ótrúlega flott að áheyrendur svitnuðu. Eina, sem undirritaður heyrði frá gestum, sem flestir voru af barnsaldri, var að örlítið léttara hefði ekki sakað. Var jafnvel talað um Mozart og Strauss og Raddir vorsins í því sambandi. Komið sem fyrst aftur Helga Kristbjörg, Jón Þorsteinn og Jónas Ásgeir, þið voruð góðir gestir. Friðjón Hallgrímsson 15

x

Harmonikublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.