Harmonikublaðið - 01.09.2017, Side 17
Hvítasunnan á Borg
Fyrsta harmonikumót sumarsins fór fram
fyrstu helgina í júní. Að þessu sinni bar
hvítasunnu upp á þessa helgi. Af þeirri ástæðu
var sjómannadagurinn færður aftur um viku,
en Selfyssingar og Rangæingar héldu sínu striki
og stefndu fólki á Borg.
Heldur voru veðurguðirnir mótshöldurum
andsnúnir og sendu rigningaský í hrönnum
austur. Það varð því heldur minni þátttaka en
í fyrra og allt mótshald daufara fyrir vikið.
Strax á fimmtudegi mættu þeir fyrstu og urðu
fagnaðafundir hjá mörgum eftir vetrarlangan
aðskilnað. Föstudagurinn heilsaði með háu
rakastigi, sem við var brugðist á viðeigandi
hátt með fortjöldum og stígvélum. Garðar
Olgeirsson hóf síðan leik í félagsheimilinu á
tilsettum tíma og strax var góð þátttaka í
dansinum. Sveinn Sigurjónsson átti leið fram
hjá og var drifinn á svið og áfram hélt dansinn.
Sveinn á sumarbústað í Biskupstungum og
fann lykt af balli þegar hann kom austur fyrir
Kerið og datt í hug að líta inn. Þórður
Þorsteins og Birgir Hartmanns luku síðan
ballinu.
Daginn eftir hafði heldur dregið úr vætunni
og þá var tónleikadagskrá í félagsheimilinu.
Þar lék ma. sameinuð hljómsveit Rangæinga
og Selfyssinga undir stjórn Grétars Geirssonar
og gaf góð fyrirheit um þátttöku á
landsmótstónleikunum. Um kvöldið var
dansað og hafði lítið fjölgað, því miður. Það
var því nægt pláss fyrir dansarana, sem þáðu
það með þökkum. Reynir Jónasson hóf ballið
og fékk síðan hvíld þegar Guðmundur
Samúelsson og Grétar Geirsson tóku við. Þeir
léku þar til Vindbelgirnir mættu, sem síðan
hurfu til annarra verka þegar Svenni Sigurjóns
var gripinn á hlaðinu. Þórður og Birgir luku
síðan dansinum. Fyrsta harmonikumóti 2017
var lokið og gaf þrátt fyrir kröftug mótmæli
frá veðurguðunum góð fyrirheit um komandi
sumar.
FriSjón Hallgrímsson
Myndir: Siggi Harðar
Það vantaði eitthvaö annati enn pUssið á Borg
Júni var lengst afblautur á Suðurlandi
17