Harmonikublaðið - 01.09.2017, Qupperneq 19
Þórður G. Halldórsson
Höfundur lagsins að þessu sinni er Þórður
G. Halldórsson. Þórður var fæddur í
Hnífsdal 9. desember 1921 en flutti sex
ára gamall til Hafnarfjarðar. Hann var ekki
frægur fyrir tónlistariðkun, en hann átti
auðvelt með að setja saman lög á píanó.
Þetta lag sendi hann í danslagakeppni SKT
(skemmtiklúbbs templara) vorið 1953 og
hlaut þriðju verðlaun í flokki gömlu
dansanna. Sjómannavalsinn hlaut fyrstu
verðlaun. Stjörnunótt var gefið út á 78 sn.
plötu árið sem það tók þátt í keppninni.
Það var trió Bjarna Böðvarssonar sem flutti
ásamt söngvaranum góðkunna Sigurði
Olafssyni. Þórður starfaði sem sjómaður
og skipstjóri framan af ævi, en söðlaði um
á miðjum aldri og fór í Samvinnuskólann.
Að því loknu sneri hann sér að fasteignasölu
og stofnaði Eignasöluna, sem hann rak í
áratugi. Hann hafði gaman af að setja
saman melódíur og orti jafnvel sjálfur
texta, en allt var þetta til gamans gert og
dægrastyttingar. Góður kunningi Jón
Sigurðsson (í banknum) útsetti lögin
gjarnan, sem ekki hafa heyrst opinberlega,
nema örfá. Ekki er að vita nema þar leynist
gullmolar. Þórður lést þann 26. október
1999.
Harmonikan í Árbæ
Guðmundur og Grétar nutu sín ígömlu Lœkjargötu 4
Smárinn, pau Ólafur, Eyrún Isfold og Guðný Kristín meðpapajazz á trommunum
Harmonikuhátíð Reykjavíkur var haldin í Árbæjarsafni sunnudaginn
16. júlí. Þetta mun vera í átjánda skiptið sem þessi hátíð er haldin.
Stofnandi hátíðarinnar, Karl Jónatansson, harmonikukennari með
meiru féll frá í janúar á síðasta ári og er hátíðin áfram haldin í minningu
hans og hans starfa í þágu harmonikunnar á Islandi.
Margir urðu til að taka þátt í þetta skipti. Grétar Geirsson og
Guðmundur Samúelsson fluttu sína mögnuðu dúetta, Reynir Jónasson
og Sigurður Alfonsson léku listir sínar fyrir gesti safnsins. Smárinn
með meistara Guðmund Steingríms á trommurnar. Systurnar Inga og
Þorgerður Eiríksdætur létu sig ekki vanta og Félag harmonikuunnenda
á Suðurnesjum lék fyrir dansi í kornskemmunni. Vitatorgsbandið með
Guðrúnu Guðjónsdóttur í fararbroddi mætti á svæðið og lék fyrir
gesti, auk margra fleiri sem gerðu daginn eftirminnilegan.
Aðstandendur Harmonikuhátíðar Reykjavíkur, Ingi og Jónatan
Karlssynir vilja koma á framfæri sérstöku þakklæti til Guðrúnar
Guðjónsdóttur og Sigurðar Alfonssonar fyrir elju við smölun
harmonikuleikara til að koma og spila á Harmonikuhátíð Reykjavíkur
en þetta annaðist Karl sjálfur á meðan hans naut við. Auk þess stóðu
þau skötuhjú, ásamt fleira góðu fólki, nemendum Karls, að
afmælistónleikum sem haldnir voru í Salnum, Kópavogi á níræðisafmæli
hans árið 2014.
Texti og myndir: Ingi Karlsson
Þorgerður og Inga í sólinni við Dillonshús
19