Harmonikublaðið - 01.09.2017, Qupperneq 21
Harmonikudagurinn á Breiðamýri
Harmonikudagurinn var
haldinn hátíðlegur á
Breiðamýri laugardaginn 6.
maí. Asgeir Stefánsson reið
á vaðið og fórst vel úr hendi
sem endra nær. Þá var
komið að Tónlistarskóla
Húsavíkur. Við skólann
kenna þau Arni Sigur-
bjarnarson, Line Werner og
Krista Sildoja og sýndu þau
öll að þar eru frábærir
kennarar. Nemendur þeirra
stóðu sig hver öðrum betur og þurfum við harmonikuunnendur ekki
að örvænta með framtíð harmonikunnar. Nöfn þeirra eru Hildur Gauja
Svavarsdóttir, Helgi Jóel Jónasson, Hermann Veigar Ragnarsson, Karitas
Embla Kristinsdóttir, Hilmar Bjarki Reynisson, Klara Hrund
Baldursdóttir, Brynja Kristín Elíasdóttir, Fannar Ingi Sigmarsson,
Almar Örn Jónasson, Magnús Karl Kjerúlf, Guðmundur Kjartan
Kjerúlf, Mihkel Sildoja. Þá komu úr Bakkafirði, Skeggjastaðasystkinin
Njáll, Himri og Þórey Lára Halldórsbörn ásamt Ragnari Jóni
Grétarssyni tónlistar-kennara og sýndu þau enn og aftur frábæra
hæfileika. Þá lék Jón Árni Sigfússon af sinni einstöku snilli og það var
síðan Jón Sigurjónsson sem endaði tónleikana og tókst vel upp. Mjög
góð mæting var og fengu allir viðstaddir veitingar að loknum
tónleikunum, en endapunkturinn var samspil allra okkar spilara og
tóku þeir nokkur þekkt lög. Varð harmonikudagurinn á Breiðamýri
hin besta samverustund sem endranær og ætíð tilhlökkunarefni íyrir
harmonikuunnendur.
Texti og myndir: Sigurður Olafsson
Upprennandi tónlistarfólk Þingeyinga. Einu sinni varÁsta Soffía í hópnum
Skeggjastaðasystkinin ásamt kennara sínum
Skemmtanir Félags harmonikuunnenda
í Reykjavík veturinn 2017-2018:
14. október
4. nóvember
25. nóvember
6. janúar
14. apríl
Laugardagur
Laugardagur
Laugardagur
Laugardagur
Laugardagur
Dansleikur í Breiðfirðingabúð
40 ára Afmæliskaffi FHUR í Breiðfirðingabúð
Dansleikur í Breiðfirðingabúð
Dansleikur í Breiðfirðingabúð
Dansleikur í Breiðfirðingabúð
21