Harmonikublaðið - 01.09.2017, Side 22

Harmonikublaðið - 01.09.2017, Side 22
/ \W/i/\\X= IÞA GOMLU GOÐU Gamla síðan er úr Harmonikunni frá árinu 1987 og sýnir að ýmislegt var til gamans gert og blaðið var stöðugt á vaktinni. Birt með góðfúslegu leyfi ritstjóranna Hilmar Hjartarsonar og Þorsteinn R. Þorsteinssonar. Gömludansa keppni á Hótel Borg Danslagakeppni Hólel Borg — Mynd 2 Höfundar laganna sem lenlu í úrslitum, fyrir framan sviðið á Borginni talið frá vinstri: Bjarni Sigurðsson, Ólöf Jónsdótt- ir, Cuðjón Matthiasson, Valdimar J. Auðunsson og Viðar H. Guðnason (sitj- andi). Þeir Hörður Hákonarson og Karl Jónatansson voru ekki viðstaddir. Harmoníkuleikararnir á Borginni frá vinstri. Sigurður A Ifonsson og Jón Sig- urðsson. Verðlaunahafarnir, frá vinstri: Ólöf Jónsdóttir, Viðar H. Guðnason og Jó- hannes Benjamínsson, fyrir ofan höfuðið á Jóhannesi má sjá í Jón Sigurðsson. r Ihaust og fyrripart vetrar efndu forráðamenn Hótel Borgar í Reykjavík, til danslagakeppni í gömludönsunum. Skemmtiklúbbur Templara SGT stóð fyrir danslagakeppni hér á árun- um áður, en þá var keppt í bæði nýju og gömludönsunum. Núna var það hljómsveit Jóns Sig- urðssonar sem sá um flutning laganna á Borginni, ásamt Sigurði Alfonssyni harmoníkuleikara, sem er vel þekktur innan raða harmoníkuunnenda, og landsmönnum kunnur sem einn af umsjónarmönnum harmoníkuþátta RUV. í samtali við Jón Sigurðsson, tjáði hann mér að um 120 danslög hefðu borist í keppnina. Úr þessum fjölda voru síðan valin 25 lög til flutnings, og var Jón einn af fimm sem völdu úr lögunum. Hinir fjórir vilja halda nöfnum sínum leyndum, og er það miður, þar sem ekki verður annað séð, en að þeir (þau) vilji firra sig allri ábyrgð á vali laganna, og láta Jón ein- an um að axla þá byrði. Þessi 25 lög voru svo flutt á fimm sunnudags- kvöldum, og valin tvö lög til úrslita. Þegar eftir voru 10 lög, var þeim deilt niður á tvo sunnudaga og valin þrjú lög hvert kvöld, til úrslita. Síðasta kvöldið voru því 6 lög sem kepptu til verðlauna, sem voru öll flutt tvisvar um kvöldið eins og venja var í forkeppninni. Við talningu atkvæða voru fjórir úr hljómsveitinni, einn úr starfsliði Hótel Borgar og einn gestur úr saln- um. I efsta sæti varð svo lagið Hesta- mannaræll, lag Ólafar Jónsdóttur frá Akureyri við texta Jóns Sigurðssonar. í öðru sæti varð Skíðaferð, polki lag og texti eftir Viðar H. Guðnason og í þriðja sæti varð svo tangóinn Söknuður, lagið einnig eftir Viðar, en við texta eftir Jóhannes Benjamíns- son. Veitt voru peningaverðlaun fyrir þrjú efstu lögin, og voru þau svo gefin út á plötu, ásamt sjö öðrum lögum. Við óskum höfundunum til ham- ingju, svo og aðstandendum Hótel Borgar, sem eiga hrós skilið fyrir þetta lofsverða framtak. Það væri gaman ef þetta gæti orðið árviss við- burður, að fá bæði keppnina, og plötu á eftir. Þ.Þ. 4

x

Harmonikublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.