Feykir


Feykir - 12.06.2019, Side 6

Feykir - 12.06.2019, Side 6
sumt af því er einsamalt í gömlum húsum sínum og lítt fært um að annast daglegar þarfir sínar. Flest af þessu fólki hefir átt hér heima um áratuga skeið, sumt frá barnæsku, hefir starfað hér, átt hér heimili, maka og börn, lifað hér meðlæti og mótlæti. Það hefir bundið tryggð við staðinn, er að vissu leyti samgróið umhverfinu. Því vill það dvelja hér uns yfir lýkur, vill ekki fara héðan, t.d. á Þórði var umhugað um að blaðamaður kynnti sér starfsemi Sæborgar þar sem hann fullyrti að þar færi fram gott starf og það sem meira væri, að aðstaða fyrir heimilisfólk á dvalarheimilinu væri framúrskarandi góð og sá hann fyrir sér að slíks væri þörf á Sauðárhæðum á Sauðárkróki. Eyjólfur er framkvæmdamaður mikill, líkt og þær 50 íbúðir Búhölda sýna sem risu á Sauðárkróki undir hans forystu, og heyrðist blaðamanni að sá gamli væri kominn í framkvæmdaham. Ekki kæmi á óvart ef hann færi að hreyfa við málum til að stækka og auka aðstöðu dvalarheimilis á Sauðárkróki. Þegar við komum í Sæborg á Skagaströnd tekur Jökulrós Grímsdóttir, hjúkrunarfor- stjóri, fagnandi á móti Þórði sem færði henni blóm og konfekt í þakklætisskini fyrir þann tíma er hann dvaldi á heimilinu. Okkur er boðið inn, kveðju kastað á þá sem sitja frammi í sameiginlegu rými áður en bankað er upp á hjá heimilisfólki og aðstaðan skoðuð. Uppi á vegg í sameiginlegu stofunni hangir bréf Lárusar Guðmundssonar til Jóns Ísbergs, sýslumanns Austur- Húnvetninga, þar sem hann fer þess á leit að hann beiti sér fyrir því að á Skagaströnd, eða Höfðakaupstað eins og byggðin hét þá, risi dvalarheimili enda ástæðan ærin og líklegt að íbúar staðarins kæmi að málum með myndarlegum hætti. Bréfið hljóðar svo: Herra sýslumaður Jón Ísberg. Hér í Höfðakaupstað er margt af öldruðu og vanheilu fólki, UMFJÖLLUN Páll Friðriksson Fyrir 30 árum síðan og hálfu ári betur var Sæborg, dvalarheimili aldraðra á Skagaströnd, vígt formlega eða þann 22. október 1988. Undirbúningur og bygging þess var ekki alveg átakalaus en Lárus Guðmundsson, sem kenndur var við Herðubreið á Skagaströnd var mikill baráttumaður fyrir því að dvalarheimili risi á staðnum og lagði til eina miljón króna og bað sýslumann Austur-Húnvetninga, Jón Ísberg, um að greiða götu byggingarinnar. Sýslumaður fór í málið og tók föstum tökum en var sakaður um að misfara með opinbert fé. Enn stendur húsið líkt og Jón og fleiri sýslungar hans stefndu að og ber þess vitni að vel hefur að allri hönnun og skipulagningu verið staðið. Blaðamaður slóst í för með Þórði Eyjólfssyni, sem dvaldi á heimilinu um skeið, til Skagastrandar og heimsótti Sæborg fyrir skömmu. Kaffið drukkið í sameiginlegri stofu dvalarheimilisins sem staðsett er í miðju hússins. MYNDIR: PF Dvalarheimilið Sæborg á Skagaströnd heimsótt „Þið getið tekið af mér æruna, en húsið stendur“ elliheimilið á Blönduósi fyrr en því eru öll önnur úrræði þrotin. Spurning vaknar í huga mér, hvað sé hægt að gjöra öldruðu og vanheilu fólki hér til úrbóta á komandi tímum. Að sjálfsögðu þarf að byggja hér íbúðir fyrir aldrað fólk í Höfðakaupstað, sem væri starfrækt af hrepps- félaginu. Þessu verður á næstu árum brýn þörf, þar sem Höfða- kaupstaður er í örum vexti og fólksflutningur hingað auðsær. Ég legg til úrbóta ofanrituðu máli lítinn byrjunarvísi, gef hér með eina miljón krónur, sem er innstæða til 10 ára (frá 1. júní 1974) ásamt vöxtum, í sparisjóði Skagastrandar, er á bók 830. Ég hugsa mér að ráðamenn Höfðakaupstaðar standi einhuga saman að undirbúa framkvæmd þessa máls án tafar. T.d. með því að ákveða byggingarlóð, ákveða árlega framlag í fjár- hagsáætlun Höfðahrepps, vekja áhuga hreppsbúa fyrir þessu málefni, styðja að því að einstaklingar leggi fram fjárgjafir ef vilji og fjárgeta er fyrir hendi. Ennfremur benda á fjáröflunarleiðir, t.d. ef sjómenn eða verkafólk hafa áhuga á að helga eins dags störf, einn róður, o.fl. Elfa tímans rennur áfram, þeir sem nú eru á manndóms- skeiði og telja sér „alla vegi færa“ lifa kannski ár elli og vanheilsu. Rétta þarf hug og hönd til hjálpar fyrr en síðar. Og þá framkvæmdir hefjast, má vænta þess að það opinbera leggi fram einn hluta. Hjálagt sendi ég yður herra sýslumaður sparisjóðsbókina nr. 830 með einnar milljón króna innistæðu til varðveislu, þar til skipuð hefir verið bygg- ingarnefnd af hreppsnefnd Höfðahrepps. Herðubreið í Höfðakaupstað 16. sept. 1974, Lárus G. Guðmundsson. Þórður Eyjólfsson færir Jökulrós Grímsdóttur, hjúkrunarforstjóra, blóm og konfekt með þökk fyrir góðar velgjörðir er hann dvaldi á Sæborg. Emilía Jökulrós var í heimsókn hjá ömmu sinni og var tilbúin að vera á myndinni. Hólmfríður Pálsdóttir var heimsótt og er hún mjög ánægð með dvölina á Sæborg. 6 22/2019

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.