Feykir


Feykir - 12.06.2019, Blaðsíða 12

Feykir - 12.06.2019, Blaðsíða 12
Hin árlega prjónahátíð, Prjónagleði, var haldin á Blönduósi um hvítasunnu- helgina í fjórða sinn. Það er Textílmiðstöð Íslands sem stendur að hátíðinni. Boðið var upp á fjölda atburða alla helgina en á Prjónagleði kemur fólk saman sem hefur áhuga á prjónaskap og skiptir þá engu máli hvað mikil innistæða er í reynslubankanum. Þema hátíðarinnar að þessu sinni var „hafið“ en dagur hafsins er haldinn hátíðlegur þann 8. júní ár hvert. /PF Hvað er betra en að prjóna í heita pottinum? MYND AF FB-SÍÐU PRJÓNAGLEÐI. Þann 6. júní lauk formlega námskeiðum vetrarins í Farskólanum, miðstöðvar símenntunar á Norðurlandi vestra, með útskrift úr Námi og þjálfun í almennum bóklegum greinum og úr matarsmiðjunni Beint frá býli. Brugðið var út af venjunni í þetta sinn og fór útskriftin fram í Eyvindarstofu á Blönduósi. Það var hátíðarstemning í Eyvindarstofu en námsmenn úr matarsmiðjunni komu með sýnishorn af því sem þeir hafa verið að búa til í vetur í tengslum við smiðjuna. Var gerður góður rómur að þeim kræsingum og námsfólk hvatt til að koma vörum sínum á framfæri. Meðal gesta voru Valdi- mar O. Hermannsson, sveitar-stjóri Blönduóss og Unnur Valborg Hilmarsdóttir, framkvæmdastjóri SSNV. /PF Ertu með fréttaskot, mynd eða annað skemmtilegt efni í Feyki? Hafðu samband. Síminn er 455 7176 og netfangið feykir@feykir.is 23 TBL 12. júní 2019 39. árgangur Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981 Síðasta útskrift Farskólans þetta vorið Farskóli Norðurlands vestra Hluti útskriftarnema úr Námi og þjálfun í almennum bóklegum greinum og úr matarsmiðjunni Beint frá býli. MYND: PF Prjónagleði í fjórða sinn Fjölbreytt dagskrá alla helgina Mfl. kvenna í körfubolta Árni Eggert nýr þjálfari Stjórn körfuknattleiksdeildar Tindastóls bauð í síðustu viku vildarvinum og árskorthöfum til spjallfundar og kynningar á nýráðnum þjálfara meistaraflokks karla, Baldri Ragnarssyni í Síkinu. Þá var upplýst að Árni Eggert Harðarson yrði næsti þjálfari mfl. kvenna og skrifað var undir tveggja ára samning við hann. Vel var mætt á fundinn en áður en þeir Baldur og Árni voru kynntir til leiks var boðið upp á hamborgara og gos. Þeir Baldur og Árni voru ánægðir með mætinguna og sögðu hana sýna hve áhuginn væri mikill í körfubolta- samfélaginu norðan heiða. Þeir voru sammála um að Tindastóll ætti ætíð að berjast á toppnum og er það sýn Árna að stelpurnar eigi heima í efstu deild. Á Facebooksíðu deildarinnar segir að Árni hafi áður þjálfað kvennalið Breiðabliks, karlalið Vængja Júpíters ásamt því að hafa verið aðstoðarþjálfari meistaraflokks ÍR í Dominosdeild karla síðustu ár. Einnig hefur Árni Eggert unnið mikið og gott starf fyrir KKÍ. /PF Ingólfur Jón Geirsson formaður Kkd. Tindastóls og Árni Eggert Harðarson, nýráðinn þjálfari, handsala samninginnn. MYND: PF Þjóðhátíðarkaffi í Skagabúð Hæ, hó, jibbí, jey og jibbí, jei Kvenfélagið Hekla í Skagabyggð verður með sitt árlega og sívinsæla þjóðhátíðarkaffi á þjóðhátíðardaginn 17. júní í Skagabúð kl. 14:00 - 17:00. Í tilkynningu frá félaginu segir að verð fyrir eldri en 12 ára sé 2.000 kr. en einungis 1.000 kr. fyrri 7-12 ára börn. Frítt er fyrir yngri en 7 ára. „Við hlökkum til að sjá ykkur í þjóðhátíðarskapi,“ segja kvenfélagskonur. Feykir óskar öllum gleðilegs þjóðhátíðardags, 17. júní, og hvetur það til að taka þátt í hátíðarhöldum. /PF Hesteyri 1 550 Sauðárkróki Sími 453 5923 DÖGUN AUGLÝSIR: Gæðastjóri Dögun leitar að metnaðarfullum og jákvæðum einstaklingi í starf gæðastjóra. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf fljótlega. Gæðastjóri Dögunar ber ábyrgð á rekstri og þróun gæða- og öryggis- kerfa félagsins. Gæðastjóri sér einnig um ýmis önnur verkefni er snúa að daglegri framleiðslu og vöruþróun. STARFSSVIÐ: • Ábyrgð á gæða- og öryggismálum félagsins. • Gæðaeftirlit og framkvæmd gæðastefnu félagsins. • Samskipti við erlenda viðskiptavini. • Umsjón með úttektum viðskiptavina. • Upplýsingagjöf og fræðsla um gæðamál. • Ýmis önnur verkefni tengd framleiðslu og vörþróun. HÆFNISKRÖFUR: • Menntun sem nýtist í starfi. • Reynsla og þekking á matvælavinnslu æskileg. • Þekking á gæðamálum. • Mjög góð tölvukunnátta. • Mjög góð enskukunnátta. • Jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum. • Þjónustulund og fagleg framkoma. • Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði í starfi. Vinsamlegast sendið umsókn á oskar@dogun.is. Upplýsingar gefur Óskar í síma 892-1586 eða Hilmar í síma 898-8370. Dögun sérhæfir sig í veiðum og vinnslu á rækju og starfrækir mjög fullkomna rækjuvinnslu á Sauðárkróki. Félagið hefur nýlokið við miklar endurbætur á framleiðslubúnaði með frekari tækni- væðingu, sjálfvirkni og möguleikum á aukinni vinnslu. Dögun gerir út rækju- togarann Dag SK 17. Dögun hefur starfað samfleitt í 35 ár. Stefna félagsins er að auka framleiðslu og sölu á næstu árum og vera áfram leiðandi á sínu sviði.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.