Feykir - 12.06.2019, Side 10
Kristín Árnadóttir, skólastjóri
á eftirlaunum og djákni,
svarar spurningum Bók-
haldsins að þessu sinni.
Kristín hefur verið mikill
bókaunnandi frá blautu
barnsbeini þegar hún beið
eftir því að fá bækur að gjöf á
afmælum og um jól.
Fræðibækur, æviminningar
og skáldsögur eru meðal
þess efnis sem hún les mest
þó lestrarefnið spanni vítt
svið.
Hvers konar bækur lestu
helst? Fræðibækur eru ofar-
lega á listanum hjá mér,
sömuleiðis æviminningar og
skáldsögur, bæði eftir íslenska
og erlenda höfunda, þó
einkum íslenska. Ég leita oft í
ljóðabækur, einkum ef ég þarf
að geta vitnað í ljóð í skrifum
og ávörpum.
Hvaða bækur voru í uppáhaldi
hjá þér þegar þú varst barn?
Ég var sílesandi sem barn og
unglingur og beið alltaf eftir
að fá bækur í jóla- og af-
mælisgjöf. Möggubækurnar
voru mjög spennandi og
skemmtilegar og Skottubæk-
urnar sömuleiðis og eignaðist
ég flestar í þeim flokkum. Þær
eru þýddar úr dönsku.
Hver er uppáhaldsbókin af
þeim sem þú hefur lesið
gegnum tíðina? Margar af
þeim bókum sem ég hef lesið
hafa orðið mér hugleiknar,
s.s. Híbýlí vindanna og Lífsins
tré eftir Böðvar Guðmunds-
son sem fjalla um fyrstu
landnámskynslóðirnar í
Vesturheimi, örlög, erfiðleika
og hugrekki landnemanna.
Ég hreifst sérstaklega af
lýsingu fyrsta Íslendinga-
dagsins í Gimli 2. ágúst 1907,
er fólkið kom þar saman víða
að eftir langan aðskilnað,
hátíðahöldin og þó sérstak-
lega er Klettafjallaskáldið,
Stephan G. Stephanson, sté í
ræðustól og flutti í fyrsta
skipti hið undurfagra ljóð: Þó
þú langförull legðir, sérhvert
land undir fót. Ég tárast alltaf
er ég hugsa til þessa, svo
áhrifarík er þessi saga. Margar
aðrar bækur eru mér kærar,
s.s. Við sagnabrunninn, sögur
og ævintýri frá ýmsum
löndum í vandaðri þýðingu
Helga Hálfdanarsonar. Ég
eignaðist þá bók um 1972 og
las upp úr henni fyrir nem-
endur mína í sögustundum í
áratugi, hvort sem börnin
voru 6 ára eða 15 ára. Brekku-
kotsannáll Halldórs Kiljans
sömuleiðis, Upp á Sigur-
hæðir-Saga Matthíasar Joch-
umssonar eftir Þórunni Jörlu
og Saga Ástu eftir Jón Kalman
Stefánsson, Galdra-Manga-
Dóttir þess brennda eftir
finnska Íslandsvininn Tapio
Koivukari, þýdd af Sigurði
Karlssyni.
Hver er þinn uppáhaldsrit-
höfundur og hvers vegna? Ég
hef miklar mætur á Þórunni
Jörlu Valdimarsdóttur og á
flestar hennar bækur. Hún er
afar vandvirkur og frjór
rithöfundur, hvort sem um er
að ræða sjálfsævisögur eða
ævisögur annarra. Enn frem-
ur met ég Karl Sigurbjörns-
son, biskup, mikils sem
höfund dásamlegra bóka um
kærleika, trúfesti, uppörvun
og von ásamt því að setja á
bók áhrifaríkar predikanir,
ræður og ljóð „Í helgum
steini“. Einn af mínum upp-
áhaldsrithöfundum er Jón
Kalman Stefánsson sem
skrifar af tærri snilld sem ekki
er hægt annað en að hrífast
með og að lokum nefni ég
Kristínu Steinsdóttur sem
hefur skrifað margar áhuga-
verðar bækur, s.s. Ljósu og
Vonarlandið, þar sem hún
lýsir á áhrifaríkan hátt
erfiðum lífsskilyrðum kvenna
á 19.öld.
Hvaða bækur eru á nátt-
borðinu hjá þér þessa dagana?
Skúli fógeti, faðir Reykjavíkur
eftir Þórunni Jörlu (var rétt að
ljúka við hana), Móðir, missir,
máttur eftir þrjár konur í
Vestmannaeyjum sem skrifa
um barnsmissi og hvernig
þær tókust á við sorgina,
Syndafallið eftir Mikael
Torfason og Stórar steplur fá
raflost eftir Gunnhildi Unu
Jónsdóttur.
Áttu þér uppáhaldsbókabúð?
Mér finnst alltaf gott að koma
í Pennann Eymundsson,
hvort sem er í Reykjavík eða á
Akureyri.
Hvað áttu margar bækur í
bókahillunum heima hjá þér?
Um 700 bækur svona lauslega
talið.
Hvað kaupirðu eða eignast að
jafnaði margar nýjar bækur
yfir árið? Þrjár til fjórar bækur
og maðurinn minn annað
eins.
Eru ákveðnir höfundar eða
bækur sem þú færð „alltaf“ í
jólagjöf? Til dæmis Þórunn
Jarla og Jón Kalman Stefáns-
son og við hjónin fáum alltaf
góðar óskabækur frá sonum
okkar og fjölskyldum.
( BÓK-HALDIÐ ) frida@feykir.is
Híbýli vindanna og
Lífsins tré í miklum metum
Kristín Árnadóttir / Borðeyri
Kristín gluggar í eina góða. MYND ÚR EINKASAFNI
Hefur einhver bók sérstakt
gildi fyrir þig? Já, Ritverk
Kristínar Sigfúsdóttur, 1876-
1953. Amma mín og nafna
gaf mér bækurnar þrjár sem
innihalda öll verk hennar, en
þær voru systradætur. Kristín
Sigfúsdóttir ólst upp á Helga-
stöðum í Saurbæjarhreppi í
Eyjafirði og á þeim tíma voru
engir möguleikar fyrir
efnalítið bændafólk að senda
börn sín til mennta, allra síst
stúlkur. Hún var afburða
greind og las allt sem hún
náði í frá fimm ára aldri og fór
að skrifa á blaðasnifsi ung að
árum, en lét engan vita af því
og brenndi jafnóðum. Síðar á
ævinni voru það stolnar
stundir sem nýttar voru til
skrifa, því ekki gafst
húsmóður á barnmörgu
sveitaheimili mikill tími til
ritstarfa á þeim árum.
Móðurbróðir hennar, Páll J.
Árdal, kennari og skáld á
Akureyri, hvatti hana ætíð til
dáða og átti mikinn þátt í að
skrif hennar komu fyrir sjónir
samferðafólksins, og stuðlaði
að því að hún sótti síðar um
rithöfundastyrk til Alþingis,
sem hún naut á meðan hún
lifði. Kristín skrifaði bernsku-
minningar sínar og nokkrar
smá- og skáldsögur ásamt
fjölda ljóða, t.d. minningaljóð
sem hún var beðin um og lágu
henni töm á tungu og eru góð
heimild um vitra og göfuga
konu sem kunni svo vel að
miðla kærleiksgjöfum hugg-
unar og trúar. Þessar bækur
eru mér afar dýrmætar og hef
ég lesið mikið upp úr þeim í
starfi mínu sem djákni á
helgi- og samverustundum
með öldruðum.
Hefur þú heimsótt staði sem
tengjast bókum eða rithöf-
undum þegar þú ferðast um
landið eða erlendis? Já, t.d.
kom ég að Helgastöðum í
Saurbæjarhreppi þar sem
Kristín Sigfúsdóttir fæddist, í
Nonnahús á Akureyri og
Gljúfrastein í Mosfellssveit.
Ef þú ættir að gefa einhverjum
sem þér þykir vænt um bók,
hvaða bók yrði þá fyrir valinu?
Bænabók Karls Sigurbjörns-
sonar biskups. Dásamleg bók
þar sem finna má fagrar
frásagnir, bænir, ritningavers
og sálma og er skipt í kafla
eftir kirkjuárinu. Mér finnst
hún einnig tilvalin fermingar-
gjöf og í raun fyrir hvern
kristinn mann.
10 22/2019