Feykir - 06.03.2019, Blaðsíða 10
Karlakórinn Heimir
Margir tónleikar
framundan
För kórsins til Ísraels túlkuð.
MYNDIR: FE
Karlakórinn Heimir er á faraldsfæti um þessar mundir. Á
sunnudaginn var hélt kórinn tvenna tónleika, í Siglufjarðar-
kirkju og á Hofsósi og var aðsókn með ágætum. Efnisskrá
tónleikanna var að hluta til afmælisdagskrá sem flutt var
á síðasta ári í tilefni af 90 ára afmæli kórsins þar sem þeir
Agnar Gunnarsson og Björn Björnsson röktu feril kórsins á
gamansömum nótum og nokkrir kórfélagar ásamt leikurum úr
Leikfélagi Hofsóss túlkuðu nokkur atriði úr sögu hans.
Um miðjan mánuðinn er svo ætlunin að halda í suðurátt og
verður sungið í Langholtskirkju að kvöldi föstudagsins 15. mars.
Sérstakur gestur á þeim tónleikum verður Elmar Gilbertsson
sem syngur um þessar mundir í La Traviata í Hörpu. Þaðan
verður haldið austur fyrir fjall og haldnir tvennir tónleikar á
laugardegi, í Skálholtskirkju og í Selfosskirkju. Gísli Árnason,
formaður kórsins, vill þó ekki taka neina ábyrgð á trúarhita sinna
manna þó þrjár kirkjur séu heimsóttar í ferðinni, heldur segir
hann að nýrri kirkjurnar séu undantekningalítið afbragðs góðar
til tónlistarflutnings.
Í byrjun apríl er svo ætlunin að halda í Húnaþing og sækja
Hvammstanga heim og að vanda verður kórinn með tónleika á
Sæluviku í byrjun maí. /FE
Slagarasveitin. F.v. Stefán Ólafsson, Ragnar Karl Ingason og Geir Karlsson Á bak við
sést í Skúla Þórðarson á trommum. MYND: GUÐMUNDUR JÓNSSON
Efri mynd: Agnar Gunnarsson, annar sögumanna kvöldsins.
Neðri mynd: Birgir Björnsson syngur einsöng.
Vel var mætt á samkomuna. MYND: GUÐMUNDUR JÓNSSON
Konur undirbúa veisluna. MYND: KRISTÍN JÓHANNESDÓTTIR
Munir sem Bangsi smíðaði. MYND: KRISTÍN JÓHANNESDÓTTIR
10 09/2019
Kótilettukvöld/Bangsadagur á Hvammstanga
Margt um manninn
og vel heppnuð dagskrá
Þann 23. febrúar sl. var haldið
Kótilettukvöld/Bangsadagur í
Félagsheimili Hvammstanga.
Kótilettunefnd, sem skipuð
er félögum úr Lionsklúbbnum
Bjarma, Kvenfélaginu Björk
og Húsfreyjunum á Vatnsnesi
stóð fyrir degi og dagskrá.
Var dagurinn og kvöldið fyrst
og fremst helgað minningu
Björns Sigurðssonar – Bangsa,
sem fæddist á Hvammstanga
1935, bjó þar alla tíð og
lést þar sl. haust.
Bangsi var annálað góðmenni,
gangandi kærleikur, sem brá
birtu á hversdaginn og lagði sig
eftir því að eiga góð og
uppbyggileg samskipti við börn,
fullorðna og eldri borgara.
Markmiðið með dagskránni var
að safna fjármunum til þess að
láta gera minningar- og upp-
lýsingaskilti um Bangsa á
Bangsatúni á Hvammstanga og
forverja og varðveita Bangsabát,
bátinn sem Bangsi smíðaði fyrir
60 árum síðan og réri á um
tæplega sextíu ára skeið.
Á Bangsadegi var skemmti-
dagskrá fyrir börnin þar sem
þau voru frædd um Bangsa með
viðtali sem tekið var við hann á
fimmtugsafmælinu, sunginn
var fjöldasöngur, farið í hóp-
leiki og Krakka Zumba. Loks
var boðið upp á Conga súkku-
laði, gos, harðfisk og hákarl að
hætti Bangsa.
Um kvöldið var dagskrá
fyrir fullorðna og var þar margt
í boði. Kótiletturnar voru í boði
SKVH og meðlætið í boði
KVH. Vilko á Blönduósi og
Kjarnafæði á Akureyri lögðu
einnig hráefni á borð. Einnig
var margháttað menningarefni í
boði. Sýnd voru myndbrot úr
fimmtugsafmæli Bangsa sem
Birgir Karlsson hafði klippt
saman. Þór Magnússon fyrr-
verandi þjóðminjavörður flutti
erindi um bernsku Bangsa og
fólkið hans í Syðsta-Hvammi.
Þorvaldur Böðvarsson fræddi
fólkið um sögu Bangsabáts.
Harpa Þorvaldsdóttir söng
einsöng og stýrði fjöldasöng.
Ólafur Rúnarsson söng einnig
einsöng og stýrði söng hjá kór
eldri borgara. Leikarar og
söngvarar úr Hárinu fluttu eitt
lag úr söngleiknum sem
frumsýndur verður um
páskana. Næturgalarnir, um
þrjátíu ára gamall karlakvartett
heldri borgara á Hvammstanga,
rifjaði upp gamla takta og
hljómsveitin Slagarasveitin flutti
nokkra slagara undir forystu
Geirs Karlssonar læknis. Inn á
milli atriða var leikflokkur
þorrablóts Hvammstanga með
stutt innslög til gamans.
Um 280 manns voru
samankomnir í Félagsheimili
Hvammstanga þetta kótilettu-
kvöld og þótti kvöldið hafa
heppnast vel í alla staði.
Veislustjórar skyldu verið hafa
Unnur Valborg Hilmarsdóttir og
Magnús Magnússon en Magnús
forfallaðist á síðustu stundu og
töldu gárungarnir að það hafi
stytt dagskrána um tvær stundir!
Magnús Magnússon