Feykir - 06.03.2019, Blaðsíða 12
Skagfirðingurinn Kristinn Gísli Jónsson og Selfyss-
ingurinn Hinrik Lárusson, tóku þátt í alþjóðlegri
matreiðslukeppni sem klúbbur matreiðslumeistara í
Norður Grikklandi stóð fyrir á dögunum og sigruðu með
glæsibrag. Yfir 350 keppendur voru skráðir til leiks í
mismunandi keppnisgreinum og kepptu þeir Kristinn
Gísli og Hinrik í Liði ársins eða „Team of the year“.
Á vefnum Veitingageirinn kemur fram að í
keppninni hafi verið einboðið að nota bláskel, ólífuolíu,
ólífur og rissotto grjón. Kristinn Gísli sagði, í samtali
við Feyki, að þeir félagar hefðu lítið vitað við hverju var
að búast í keppninni. Hann segir að þeir Hinrik hafi
búið yfir meiri reynslu en keppendur hinna liðanna en
þó hafi komið á óvart hversu hörð keppnin reyndist.
Hann var ánægður með árangurinn og var þakklátur
fyrir allan þann stuðning sem þeir félagar fengu til
fararinnar. /PF
Krabbameinsfélag Austur-Húnvetninga hélt veglega
afmælisveislu í tilefni af 50 ára afmæli félagsins sl.
sunnudag, þann 3. mars. Fjölmargir velunnarar
félagsins mættu í Félagsheimilið á Blönduósi og
samfögnuðu félaginu sem starfað hefur af miklum
krafti í hálfa öld.
Dagskrá samkomunnar samanstóð af tónlist og
töluðu máli. Sveinfríður Sigurpálsdóttir, formaður
félagsins, rakti sögu þess í stuttu máli og ávörp fluttu
þær Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri
Krabbameinsfélags Íslands og Halldóra B. Sævars-
dóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélags Akur-
eyrar og nágrennis. Tónlistaratriðin voru ekki af
lakara taginu, Hugrún Lilja Pétursdóttir lék á píanó,
trúbadorinn Friðrik Halldór söng af innlifun og
hjónin Hugrún og Jonni frá Skagaströnd ásamt
bakraddafélögum sínum, Siggu og Dóra, fluttu
nokkur hugljúf lög. Botninn í dagskrána sló svo Kór
Íslands, Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps sem söng af
sinni alkunnu snilld.
Að tónlistarflutningi loknum voru allir flytjend-
ur leystir út með Mottumarssokkum. Kynningu
dagskrár annaðist Birgitta H. Halldórsdóttir. Að
dagskrá lokinni var svo boðið upp á glæsilegt
veislukaffi. /FE
Ertu með fréttaskot, mynd eða
annað skemmtilegt efni í Feyki?
Hafðu samband. Síminn er 455 7176
og netfangið feykir@feykir.is
09
TBL
6. mars 2019 39. árgangur
Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981
Starflok nú
í góðri sátt aðila
Yfirlýsing vegna starfsloka
dr. Hólmfríðar Sveinsdóttur
KS og Hólmfríður Sveinsdóttir, fráfarandi framkvæmda-
stjóri Iceprotein og Protis, hafa komist að samkomulagi
um starfslok Hólmfríðar. Í nokkurn tíma hefur staðið yfir
undirbúningur að samþættingu rannsókna-, nýsköp-
unar-, markaðs- og sölumála hjá KS samstæðunni, sem til
þessa hefur farið fram á nokkrum stöðum.
Það er sýn aðila að breytingarnar leiði til markvissara
starfs og sé tækifæri til að efla enn frekar þessa
starfsþætti til framtíðar. Breytingarnar leiða
óhjákvæmilega af sér breytt skipulag þeirra mörgu
starfseininga sem undir eru.
Hólmfríður mun verða fyrirtækinu innan handar á
næstunni í þeim breytingum sem fram undan eru.
Hólmfríður hefur starfað við rannsóknir og þróun hjá
fyrirtækjunum um nokkurra ára skeið og eru starflokin
nú í góðri sátt aðila og í takt við það sem þekkist hjá
fyrirtækinu.
Hólmfríður Sveinsdóttir þakkar samstarfsfólki og
fyrirtækinu samstarfið á liðnum árum. KS færir
Hólmfríði þakkir fyrir störf sín fyrir félagið og óskar
henni velfarnaðar á nýjum vettvangi.
Sigurjón Rafnsson
Hólmfríður Sveinsdóttir
Fimmtíu árunum fagnað
Krabbameinsfélag Austur-Húnvetninga
Hinrik Lárusson og Kristinn Gísli Jónsson með sigurlaunin.
MYND: VIKTOR ÖRN ANDRÉSSON
Vel var mætt til veislunnar. MYNDIR: FE
Kristinn Gísli í sigurliði
Kokkalandslið í alþjóðlegri keppni
Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélags Íslands.Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps.
Trúbadorinn Friðrik Halldór.Hugrún og Jonni ásamt Dóra og Siggu.
Sveinfríður Sigurpálsdótttir, formaður Krabbameinsfélags Austur-Hún.Glæsilegt veisluborð.