Feykir


Feykir - 16.10.2019, Qupperneq 2

Feykir - 16.10.2019, Qupperneq 2
Undanfarið hefur verið unnið að nýjum sóknaráætlunum landshlutanna sem munu ná yfir tímabilið 2020-2024. Drög að nýjum sóknaráætlunum eru birtar í samráðsgátt stjórnvalda og er það í fyrsta sinn sem mál utan ráðuneyta eru birt þar. Nú þegar hafa sóknaráætlanir þriggja landshluta verið birtar í samráðsgáttinni, Suðurlands, Vestfjarða og nú síðast Norðurlands vestra. Í samráðsgáttinni segir að við vinnslu sóknaráætlunar Norðurlands vestra hafi mikil áhersla verið lögð á samráð við íbúa svæðisins enda séu þeir sérfræðingar í málefnum landshlutans. Einnig var gengið út frá fyrirliggjandi gögnum um stöðu svæðisins, svo sem niðurstöðum íbúakannana, fyrirtækjakönnunar, gögnum frá þjóðskrá, Byggðastofnun o.fl. Fjórir íbúafundir voru haldnir í tengslum við gerð Sóknaráætlunarinnar. Þrír þeirra voru minni fundir sem settir voru upp í hverri sýslu, V-Húnavatnssýslu, A-Húna- vatnssýslu og Skagafjarðarsýslu, og komu um 20 manns á hvern þessara funda. Einnig var haldinn stórfundur fyrir allt svæðið og sóttu þann fund um 70 manns. Þessu til viðbótar var við upphaf vinnunnar gerð íbúakönnun og tóku um 320 manns þátt í henni. Það má því segja að á fimmta hundrað íbúa Norðurlands vestra hafi komið að gerð áætlunarinnar með einum eða öðrum hætti. Allir voru fundirnir opnir öllum íbúum svæðisins. Sóknar- áætlun Norðurlands vestra mun stýra ákvörðun um val á áhersluverkefnum og úthlutun styrkja úr Uppbyggingarsjóði landshlutans. Lokað var fyrir athuga- semdir og ábendingar í gær um drög að sóknaráætlun Norður- lands vestra. Aðeins ein ábend- ing barst þrátt fyrir að íbúar og aðrir hagaðilar hafi verið hvattir til að kynna sér nýja sóknaráætlun landshlutans. Nánar á https://samradsgatt. island.is. /FE Margir eru þeir sem þekkja betur til í fjarlægum löndum eða stöðum heldur en í sínu næsta nágrenni, kunna betur skil á borgum í öðrum löndum en kaupstöðum á Austfjörðum, veitingastöðum í London eða Róm en í Reykjavík eða Hafnarfirði, boltabullum á Spáni en á Íslandi og svo mætti lengi telja. Víst er það að þekking er góð, af hvaða toga sem hún er og það er hér um bil sama hvert við sækjum hana. Hitt er svo allt annar handleggur að nú á tölvuöld getur vissulega verið erfitt að greina milli falsfrétta og þess sem er sannarlega rétt. Það að þekkja sitt nánasta umhverfi er kannski ekki lífsnauðsynlegur þáttur en samt sem áður hlýtur það að vera allnokkuð skemmtilegra að vera sæmilega með á því sem gerist í kringum mann og að þekkja þá staði sem eru á næstu grösum við eigin heimkynni. Þannig er bæði gott og gaman að skoða sig um á erlendri grund en þó er ekkert síðra að ferðast um landið sitt og kynnast þeim margbreytileika sem það hefur upp á að bjóða. Einhvern veginn verður það þó oft þannig að þeir staðir sem næst manni eru verða stundum útundan. Kannski er ástæðan sú að einmitt af því að þeir eru svo nærri hugsar maður gjarnan sem svo að þetta megi alltaf gera seinna. Þetta seinna kemur svo stundum alveg ótrúlega seint, jafnvel aldrei. Ég verð til dæmis að játa það að ég hef alls ekki kannað alla þá afkima Skagafjarðar, Húnavatnssýslna og Strandasýslu sem í vegasambandi eru, þrátt fyrir að hafa varið stærstum hluta ævinnar á þeim slóðum. Ég fór að hugsa um þetta í framhaldi af því að nokkrir aðilar hér í Skagafirði hafa tekið sig saman um að bjóða upp á viðburði fyrir fjölskylduna í vetrarfríi skólabarna í firðinum. Að heimsækja sögusvið Haugsnesbardaga og fara svo aftur í tímann í sýndarveruleika í Aðalgötunni á Króknum eða skreppa í listasmiðju og ratleik í Glaumbæ. Þetta þykir mér afskaplega góð hugmynd og vona að hún mælist vel fyrir og að fólk taki þessu framtaki fagnandi. Það er nefnilega stundum algjörlega óþarft að sækja vatnið yfir lækinn. Fríða Eyjólfsdóttir, blaðamaður LEIÐARI Að líta sér nær Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur Ritstjóri & ábyrgðarmaður: Páll Friðriksson, palli@feykir.is & 861 9842 Blaðamenn: Fríða Eyjólfsdóttir, frida@feykir.is & 867 9744, Óli Arnar Brynjarsson, oli@feykir.is Auglýsingastjóri: Sigríður Garðarsdóttir, nyprent@nyprent.is Áskriftarverð: 555 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 685 kr. m.vsk. Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf. Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum Sóknaráætlun Norðurlands vestra Drög birt í samráðsgátt stjórnvalda Mynd af vef Svf. Skagafjarðar. Rétt rúm 72 tonn bárust á land á Skaga- strönd í síðustu viku og á Sauðárkróki var landað rúmum 662 tonnum. Þá var rúmum 17 tonnum landað á Hofsósi. Heildarafli vikunnar á Norðurlandi vestra í síðustu viku var 771.811 kíló. /FE Aflatölur 6. – 12. okt. 2019 á Norðurlandi vestra 72 tonn til Skagastrandar SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG HOFSÓS Þorleifur EA 88 Dragnót 17.168 Alls á Hofsósi 10.816 SAUÐÁRKRÓKUR Dagur SK 17 Rækjuvarpa 12.313 Drangey SK 2 Botnvarpa 223.192 Gammur SK 12 Þorskfiskinet 655 Guðrún GK 47 Lína 11.677 Hafborg SK 54 Þorskfiskinet 1.526 Hafborg SK 54 Botnvarpa 1.355 Kristinn SH 812 Landbeitt lína 25.236 Kristín GK 457 Lína 58.621 Málmey SK 2 Botnvarpa 143.624 Már SK 90 Handfæri 1.443 Onni HU 36 Dragnót 2.347 Steini G SK 14 Handfæri 1.142 Viðey RE 50 Botnvarpa 186.359 Vinur SK 22 Handfæri 499 Þorleifur EA 88 Dragnót 12.479 Alls á Sauðárkróki 656.765 SKAGASTRÖND Auður HU 94 Landbeitt lína 2.553 Dúddi Gísla GK 48 Lína 14.760 Elfa HU 191 Handfæri 1.212 Geirfugl GK 66 Landbeitt lína 9.403 Gulltoppur GK 24 Landbeitt lína 2.749 Hafdís HU 85 Handfæri 1.818 Hafrún HU 12 Dragnót 11.257 Hjalti HU 313 Handfæri 768 Kristinn SH 812 Landbeitt lína 6.281 Ólafur Magnússon HU 54 Þorskfiskinet 845 Ragnar Alfreðs GK 183 Handfærri 282 Sara KE 11 Handfæri 203 Særif SH 25 Lína 10.778 Sævík GK 757 Lína 9.266 Alls á Skagaströnd 169.267 Sameiginlegur starfs- dagur leikskólanna í Húnavatnssýslum og Strandabyggð var haldinn í Húnavallaskóla föstudaginn 11. október. Starfsdagurinn markar upphaf að þróunar- verkefni skólanna „Færni til framtíðar“. Í upphafi verkefnisins er áhersla lögð á að kynna hug- myndafræði jákvæðrar sál- fræði fyrir starfsfólki skólanna og hvernig hægt sé að nýta hana bæði í starfi og einkalífi. Markmiðið er að starfsfólk öðlist aukna færni í að vinna með mannlega hegðun og hafa áhrif á börn og nær- umhverfi. Fengnir voru fyrir- lesarar sem lögðu áherslu á að kenna hvernig ná má fram því besta hjá fólki og hvernig það hjálpar til í öllum sam- skiptum./PF Leikskólar í Húnavatnssýslum og Strandabyggð Sameiginlegur starfsdagur Á fundi umhverfis- og sam- göngunefndar Svf. Skagafjarðar í gær voru nýsamþykkt umferð- arlög tekin til meðferðar en þau kveða á um að hámarkshraði í þéttbýli skuli standa á heilum tug og má því ekki vera 35 km/klst eins og raunin er á Sauðárkróki í dag. Leggur nefndin til að há- markshraði verði lækkaður úr 35km/klst niður í 30km/klst á þeim svæðum sem núverandi hraðatakmarkanir ná til. /PF Ný umferðarlög Hraði lækkar 2 39/2019

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.