Feykir


Feykir - 16.10.2019, Blaðsíða 9

Feykir - 16.10.2019, Blaðsíða 9
Þykir skemmtilegast að prjóna barnaföt Hverju ertu að vinna að um þessar mundir? -Ég er nú alltaf með nokkur verk í gangi en er að leggja lokahönd á lopapeysu fyrir yngstu dóttur mína sem hefur aldrei viljað vera í lopa. Einnig er ég að prjóna ung- barnapeysu fyrir ófætt barn í fjölskyldunni. Svo gríp ég alltaf í heklið inn á milli og er búin að gera nokkuð mikið magn af slefsmekkjum sem alltaf er gott að eiga í gjafir. Hvernig fékkstu hugmyndina? ( HVAÐ ERTU MEÐ Á PRJÓNUNUM ) frida@feykir.is Sigríður Ólína Ásgeirsdóttir á Skagaströnd Sigríður Ólína í glæsilegri peysu. MYNDIR ÚR EINKASAFNI. Að þessu sinni er það Sigríður Ólína Ásgeirsdóttir sem segir okkur frá handverkinu sínu. Sigríður býr á Skagaströnd ásamt manni og tveimur börnum en tvö eru flogin úr hreiðrinu. Hún segist gera mest af því að prjóna og hekla og segir það gefa sér mjög mikið að sjá eitthvað verða til í höndunum á sér. Hve lengi hefur þú stundað hannyrðir? -Ég hef stundað hannyrðir síðan ég var barn, það fyrsta sem ég lærði var útsaumur sem var kenndur í grunnskólanum á Skaga- strönd. Þegar ég var ólétt af mínu fyrsta barni árið 1990 vaknaði áhugi minn á prjóna- mennsku og var það móðir mín sem kenndi mér að prjóna. Það eru svo bara um tíu ár síðan ég byrjaði að hekla. Hvaða handavinnu þykir þér skemmtilegast að vinna? -Ég er mest að prjóna og hekla í dag og það sem ég geri mest af og finnst skemmtilegast að prjóna eru barnaföt sem ég hef gert á barnabarnið og fyrir aðra fjölskylduvini. Prjónaður kjóll. Heklað teppi. -Hugmyndina að peysunni fyrir dóttur mína fékk ég einfaldlega vegna þess að hún var byrjuð að stela lopa- peysunni af pabba sínum og því ákvað ég að nú væri kominn tími til að hún eignaðist sína eigin peysu! En annars er megnið af því sem ég geri óskir sem fjölskyldumeðlimir leggja inn og listinn er eiginlega ótæmandi. Hvaða handverk sem þú hefur gert ert þú ánægðust með?- Verkið sem ég hef alltaf verið mjög ánægð með eru vesti sem ég prjónaði á strákana mína fyrir jólin þegar þeir voru þriggja og fimm ára. Einnig stendur upp úr kjóll sem ég prjónaði á barnabarn mitt. Annars er ég yfir höfuð mjög sátt við verkin sem ég skila af mér. Ég er mjög þakklát fyrir að hafa lært handavinnu. Það gefur manni nefnilega svo mikið að sjá eitthvað verða til í höndunum og að aðrir geti notið afrakstursins. Inga Maja Reynis ætlar að taka við prjónunum af Sigríði Ólínu. Barnakjóll. Ungbarnasett. Slefsmekkir sem gott er að eiga í gjafir. 39/2019 9

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.