Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.05.2020, Side 2
Geturðu útskýrt þáttinn Sápuna?
Ég og Benni (Benedikt Valsson) bjuggum til „sápuóperu-
murdermystery-sitcom-comedydrama-þátt“. Í rauninni fjallar
hann um vitleysuna sem gerist á bak við tjöldin og við sjáum
tökurnar á þáttunum inn á milli. Þannig sjáum við sápu-
óperuna en líka aðalleikarana leika sjálfa sig. Svo koma
alltaf sex til tíu þjóðþekktir Íslendingar inn sem gestaleik-
arar.
Er þetta allt eftir handriti?
Já, þetta er allt skrifað en það gerist alltaf eitthvað í tök-
unum og stundum erum við ekki búnir að skrifa hverja
einustu línu í þessum baksviðsheimi.
Er þetta einhvers konar morðgáta?
Það tvinnast inn í þetta sagan um að Katla og Aron
skipuleggja morðið á Jóhannesi, en hann leikur mann
Kötlu. Það er sagan í sitcom-þættinum. Jói erfir frænda
sinn og þá fer Katla af stað með Aroni og ætlar fyrst að
giftast Jóa og svo drepa hann.
Nú ertu búinn að ljóstra upp
söguþræðinum.
Já, en fólk má alveg vita þetta. Það kemur svo í ljós hvað
gerist. Ég hef heyrt að sumir fatti ekki hvað ég er að fara
með þessum þáttum. Mamma mín horfði og sá að það var
mórall á setti og allir voru að rífast. Hún spurði mig hvort
það væri í raun svona lélegur mórall í gangi. Ég þurfti að
útskýra fyrir henni að þetta væri allt leikið. Frá a til ö.
FANNAR SVEINSSON
SITUR FYRIR SVÖRUM
Allt leikið
frá a til ö
Morgunblaðið/Eggert
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.5. 2020
Einu sinni reykti ég. Því miður. Það er nefnilega það heimskulegastasem ég hef gert í lífinu. En tíðarandinn var allt annar þegar ég var aðalast upp; það er mín afsökun. Það þótti töff að reykja og það gerðu
ansi margir. Ég man að við vinkonurnar æfðum okkur stíft og púuðum reyk
út um gluggann á herbergi hennar, þar til við stóðum varla vegna svima.
Á sama tíma vorum við að passa börn hjá konu sem bjó á móti Vífils-
stöðum. Þar voru þá lungnasjúklingar sem gengu um gangana með súrefn-
iskúta, þeir sem ekki voru í hjólastól. Þarna var sjoppa og hvað var selt þar?
Jú, sígarettur! Það er lýsandi fyrir hugsunarhátt tveggja unglingsstúlkna
um eigin ódauðleika að við skottuðumst oft yfir götuna, framhjá gamla fólk-
inu með súrefniskútana, og keyptum okkur rauðan Prince.
Það sem gerðist svo var að nikó-
tínfíknin tók öll völd og það tók mig
um tvo áratugi að leggja endanlega
sígarettunni, með mörgum til-
raunum og mislöngum pásum frá
rettunum. Það tókst sem betur fer
að lokum og nú horfi ég til baka og
skil ekkert í mér. Bara alls ekki!
Sem betur fer er ekkert töff leng-
ur að reykja. Ég skammast mín bara
og tala ekkert um þetta við neinn og
allra síst börnin. Unglingssynir mín-
ir spurðu mig eitt sinn hvort ég hefði
einhvern tímann reykt. Í fyrstu
reyndi ég að neita. Þeir trúðu mér
ekki og sögðust hafa sannanir; þeir
höfðu séð ljósmyndir af mér með
sígarettu. Nú voru góð ráð dýr.
Ljósmyndir fortíðarinnar geta nefnilega komið upp um mann. Nú var erfitt
að ljúga. Næst spurðu þeir hversu mikið ég hefði reykt á dag. Ég hefði átt að
fegra aðeins sannleikann og svara að ég hefði bara reykt nokkrar sígarettur í
mánuði, eða nokkrar á ári! En eins og asni svaraði ég, og var að draga veru-
lega úr sannleikanum, að ég hefði bara reykt fimm sígarettur á dag. Það ætl-
aði að líða yfir drengina sem hrópuðu upp yfir sig: „Fimm sígarettur á dag!?“
Nú er mikið rætt um sígarettuna hans Bubba. Á hún að vera eða fara?
Málið er að það er ekki hægt að endurskrifa söguna. Það væri fölsun. Bubbi
reykti í gamla daga. Ég reykti í gamla daga. Synirnir fundu sönnunargögnin
en ég stórefa að það verði til þess að þeir byrji að reykja. Alveg eins og ég
efast um að plakatið af Bubba með sígó verði til þess að auka reykingar í
landinu. Fólk veit betur í dag. Ég styð Bubba en ætla þó að sleppa því að
birta myndina af mér á Facebook þar sem ég er með sígarettu í annarri og
Smirnoff-pela í hinni. Það myndi endanlega ganga frá sonunum.
Á að fegra fortíðina?
Pistill
Ásdís
Ásgeirsdóttir
asdis@mbl.is
’Það er lýsandi fyrirhugsunarhátttveggja unglingsstúlknaum eigin ódauðleika að
við skottuðumst framhjá
gamla fólkinu með súr-
efniskútana og keyptum
okkur rauðan Prince.
Ólöf Ólafsdóttir
Ég ætla að halda upp á afmæli hjá
kærastanum. Býð bara allra nánustu.
SPURNING
DAGSINS
Hvað á að
gera í góða
veðrinu um
helgina?
Bojan Stefán Ljubicic
Ég er að fara í framkvæmdir heima,
skipta um glugga og fleira.
Sigríður Ottósdóttir
Fara upp í bústað að slaka á.
Valur Logason
Ég er að norðan og er hér í fjöl-
skylduferð og ætla bara að njóta mín.
Ritstjóri
Davíð Oddsson
Ritstjóri og
framkvæmdastjóri
Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri
og umsjón
Karl Blöndal kbl@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Forsíðumyndina tók
Ásdís Ásgeirsdóttir
Fannar Sveinsson er handritshöfundur, leikstjóri og
leikari Sápunnar, nýrra íslenskra grínsápuóperuþátta á
Stöð 2. Einnig er fylgst með leikurum á bak við tjöldin.
Þjóðþekktir Íslendingar verða í gestahlutverkum.
Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi
Sími 535 4300 · axis.is
Vandaðar íslenskar innréttingar