Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.05.2020, Page 4
Rynkeby er stór safaframleið-andi sem byrjaði með hjóla-lið til styrktar krabbameins-
sjúkum börnum. Þetta vatt upp á
sig og nú eru komin lið víða um
Evrópu. Íslendingar stofnuðu hjó-
lalið hér heima árið 2017 en und-
irbúningur stóð
lengur yfir. Í ís-
lenska liðinu eru
um fjörutíu manns
í ár. Á þessum
þremur árum hef-
ur þetta verkefni
styrkt Styrktar-
félag krabba-
meinssjúkra barna
(SKB) um fimmtíu
milljónir. Þetta er okkar lang-
stærsti styrktarfélagi,“ segir Gréta
Ingþórsdóttir, framkvæmdastjóri
SKB.
Síðbúnar afleiðingar
„Styrkirnir eru skilyrtir og renna
allir í rannsóknir. Þessir fjármunir
hafa farið í rannsóknir á síðbúnum
afleiðingum krabbameins í börnum.
Það geta verið alls konar afleiðing-
ar, bæði líkamlegar og andlegar. Al-
varlegustu afleiðingar eru líffæra-
bilanir. Eftir því sem fleiri greinast
og læknast verður þessi þáttur
fyrirferðarmeiri og nauðsynlegt að
sinna sérstaklega þessum síðbúnu
afleiðingum. Á Barnaspítala
Hringsins er nú verið að rannsaka
þetta og er hjúkrunarfræðingur þar
sem stýrir þeirri rannsókn. Við bú-
um svo vel hér á Íslandi að við þurf-
um ekki að notast við úrtak heldur
er verið að skoða alla sem hafa
greinst með krabbamein á barns-
aldri frá árinu 1981. Öllum er boðið
í viðtal þar sem lagðir eru fyrir
spurningalistar og svo er unnið úr
þeim gögnum. Þetta nýtist okkar
skjólstæðingum en þess má geta að
sumar afleiðingar koma ekki fram
fyrr en löngu síðar,“ segir Gréta.
„Með þessu áframhaldi getum við
fjármagnað fleiri rannsóknir og er
frábært að eiga svona öflugan bak-
hjarl.“
Hjólað hringinn um landið
Hjólafélagar í Team Rynkeby í
Evrópu hafa ár hvert hjólað frá
Danmörku til Parísar, Frakklands.
Í ár verður breyting á vegna kór-
ónuveirunnar en íslenska liðið deyr
ekki ráðalaust og hefur skipulagt
hjólaferð hringinn í kringum landið
dagana 4.-11. júlí. Þau munu ekki
hjóla á hringveginum, heldur finna
fallegar hjólaleiðir.
„Þetta tekur viku og verður gist
víða á leiðinni. Það er valið í lið í
september og þá er auglýst eftir
þátttakendum, og því er ekki laust í
liðið nú í sumar. Það er langur að-
dragandi og fólk þarf að vera tilbúið
til að leggja á sig miklar æfingar í
öllum veðrum,“ segir hún.
„Í Team Rynkeby hjóla allir allan
tímann og þarf fólk að læra að hjóla
í hóp. Svo skuldbinda þátttakendur
sig til að safna styrkjum og fer hver
einasta króna til SKB. Þau finna
sjálf styrktaraðila og lógóin þeirra
eru svo prentuð á treyjurnar en á
þeim er líka íslenski fáninn. Fólki
finnst spennandi að taka þátt í
þessu og það er alltaf einhver end-
urnýjun í liðinu á hverju ári,“ segir
Gréta og bætir við að hún sjálf sé
ekki í liðinu.
„Þetta var stærsta samnorræna
góðgerðarverkefnið en er í dag
stærsta evrópska góðgerðarverk-
efnið eftir að Þýskaland og Sviss
bættust í hópinn. Alls staðar rennur
ágóðinn til langveikra barna.“
Hjólað fyrir
krabbameins-
sjúk börn
Team Rynkeby-góðgerðarverkefnið er hið stærsta
í Evrópu. Hjólreiðafólk um alla álfuna hjólar til
styrktar krabbameinssjúkum börnum.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Í hringferðinni hjóla allir
allan tímann og þarf fólk
að læra að hjóla í hóp.
Ljósmynd/Elvar Jónsson
Gréta
Ingþórsdóttir
HEIMURINN
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.5. 2020
Góðgerðarverkefni Team
Rynkeby snýst um að safna pen-
ingum fyrir Styrktarfélag
Krabbameinssjúkra barna.
Fénu er meðal annars safnað
með styrkjum frá velviljuðum
styrktaraðilum og að minnsta
kosti 80% þess fara í rannsóknir.
Árið 2018 hafði Team Rynke-
by hvorki meira né minna en
5.100 styrktaraðila sem lögðu
fé eða nauðsynjar til verkefnis-
ins. Þetta þýddi að Team
Rynkeby gat lagt yfir 1.177
milljónir íslenskra króna til
styrktar krabbameinsjúkum
börnum í Danmörku, Svíþjóð,
Finnlandi, Noregi, Færeyjum
og Íslandi. Team Rynkeby er
rekið sem sjálfboðaliðastarf og
þurfa þátttakendur sjálfir að
greiða allan sinn kostnað við
búnað og kost.
Bæði fyrirtæki og ein-
staklingar geta lagt málefninu
lið.
Hægt er að hringja í þrjú
símanúmer til að styrkja mál-
efnið.
9071601: 1.500 krónur
9071602: 3.000 krónur
9071603: 5.000 krónur.
Allar upplýsingar má finna
inn á team-rynkeby.is og á
Facebook-síðunni Team Rynke-
by Ísland.
Gott málefni að styrkja
Ljósmynd/Brynja Kristinsdóttir
BORÐPLÖTUR
OG SÓLBEKKIR
• Gæðavörur úr harðplasti, akrílstein, Fenix og límtré
• Mikið úrval efna, áferða og lita
• Framleiðum eftir óskum hvers og eins
• Hentar jafnt fyrir heimili, vinnustaði og almenningssvæði
Fanntófell hefur sérhæft sig í framleiðslu á borðplötum og sólbekkjum síðan 1987.
Fanntófell ehf. | Gylfaflöt 6-8 | 112 Reykjavík | Sími 587 6688 | fanntofell.is
Halla
Lögg. fast.
659 4044
Ólafur
Sölu- og
markaðsstjóri
690 0811
Ellert
Sölustjóri
661 1121
Sigþór
Lögg. fast.
899 9787
Hafrún
Lögg. fast.
848 1489
Bárður
Sölustjóri
896 5221
Elín Urður
Lögg. fast.
690 2602
Elín Rósa
Lögg. fast.
773 7126
Lilja
Sölufulltrúi
820 6511
Kristján
Sölufulltrúi
691 4252
Grensásvegur 13 - 108 Reykjavík - Sími 570 4800 - gimli.is - gimli@gimli.is