Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.05.2020, Qupperneq 8
Gulli er duglegur að pósta myndum frá starfseminni á instagramsíðunni gulliarnar. Þar má finna bakkelsi sem kitlar bragðlaukana svo um munar.
Ég bjó til vörumerkið Gulli Arnar fyrirnokkrum árum þegar ég var nýbúinnmeð bakstursnámið og ætlaði að sigra
heiminn,“ segir hann og hlær.
Gulli er alinn upp í Hafnarfirði og var mikið í
íþróttum á sínum yngri árum. Hann segist
ekki alltaf hafa stefnt á bakarann.
„Ég var hálfstefnulaus en var á fullu í hand-
bolta, fótbolta og körfu. Auðvitað var draum-
urinn að verða atvinnumaður í fótbolta,“ segir
Gulli og brosir.
„Ég hef alltaf haft áhuga á matreiðslu og
bakstri og fylgdist mikið með svoleiðis þáttum
í sjónvarpinu. Ég hef alltaf haft ástríðu fyrir
mat og finnst leiðinlegt að borða vondan mat.
Sumir félagar mínir borða bara til að nærast,“
segir Gulli.
„Mamma hvatti mig til þess að fara í bak-
arann; hún vissi af þessum áhuga hjá mér.
Hún sendi mig í Kökulist hér í Hafnarfirði og
sagði mér að banka þar upp á og biðja um að
komast á samning. Jón Arilíus tók mig í læri
og ég hef ekki litið til baka síðan. Mér fannst
þetta hrikalega gaman frá fyrsta degi. Mér
finnst gaman að vinna og afkasta einhverju.
Það er góð tilfinning að skila af sér góðri
vöru.“
Hefurðu einhvern tímann bakað vonda
köku?
„Nei, ég man ekki eftir því,“ segir Gulli og
brosir.
Lærði hjá sögufrægu kondítoríi
Gulli útskrifaðist með sveinspróf í bakstri og
hélt svo á vit ævintýranna til Kaupmannahafn-
ar. „Ég fór strax eftir útskrift og lærði þar í
Conditori la Glace sem á 150 ára afmæli í ár.
Þetta er sögufrægt kondítorí sem heldur í
gamlar hefðir og er mikið handverksbakarí.
Þetta var yndislegur tími og ég sakna margs
þaðan en ég fílaði Kaupmannahöfn alveg í
botn,“ segir Gulli en námið tók tvö ár.
„Ég var þarna að hoppa út í djúpu laugina
eftir að hafa verið á Íslandi alla tíð en námið
var yndislegt og ég er gríðarlega þakklátur
fyrir að hafa komist í þetta nám. Þarna lærði
ég tertugerð, konfektgerð og súkkulaðivinnu.
Ég lærði líka að sjóða allar fyllingar sjálfur og
steypa í terturnar frá grunni. Þetta er þolin-
mæðisvinna.“
Gulli flutti heim í janúarbyrjun en hann
hugðist taka þátt í heimsmeistaramóti kondí-
tora 25 ára og yngri í Taívan.
„Keppnin átti að vera í mars og ég ákvað að
drífa mig heim og nota tímann til að æfa mig.
Ég fékk aðstöðu í Menntaskólanum í Kópavogi
og var þar átta til tíu tíma á dag að æfa. Ég
fékk styrktaraðila til að hjálpa mér við að
dekka kostnað og annað slíkt. Svo undir lok
febrúar var tekin ákvörðun um að fresta
keppninni fram í byrjun ágúst, en þótt veiran
hafi þá varla verið komin hingað var hún kom-
in til Asíu,“ segir Gulli, sem ákvað þá að taka
sér einnar til tveggja vikna frí áður en hann
færi að leita sér að vinnu.
Allt selst upp
„Svo breytast hlutirnir hratt á tveimur vikum í
þessum heimsfaraldri og veiran komin til Evr-
ópu. Ég var eiginlega búinn að ráða mig í
vinnu þegar samkomubannið var sett á. Þá
breyttist allt,“ segir Gulli og segir starfið þá
ekki hafa verið lengur í boði. Nú voru góð ráð
dýr.
„Þegar ég var að æfa fyrir keppnina var ég
duglegur að pósta á Instagram og var mjög
sýnilegur þar. Fólk var að spyrja mig hvort
það gæti keypt af mér tertur eða konfekt, en
þá var ég ekki með neitt til sölu né neina að-
stöðu til að sinna slíku. Þá kviknaði þessi hug-
mynd, að opna kondítorí, því það var enga
vinnu að fá nú þegar veitingabransinn á Ís-
landi varð fyrir svona miklu höggi,“ segir Gulli
sem tók sig til og leigði húsnæði, græjaði á
stuttum tíma bakarofn, vélar og vaska og opn-
aði Gulli Arnar – Fine pastry and delicacies.
„Þetta er núna þriggja vikna gamalt fyrir-
tæki, ég opnaði á sumardaginn fyrsta. Þetta er
ekki bakarí heldur undir hatti veisluþjónustu.
Hér baka ég eftir pöntun en ég reyni alltaf að
eiga franskar makkarónur fyrir fólk sem vill
koma við. Það er alltaf smá reytingur af fólki
sem stoppar við. Stundum auglýsi ég á Insta-
gram nokkurs konar „pop up“-verslun og þá
baka ég einhverjar tegundir sem eru þá til sölu
þann daginn. Fólk getur þá haft samband og
látið taka frá. Þetta selst allt upp fyrirfram.“
Einn á vaktinni
Það hefur verið nóg að gera hjá hinum unga
kondítormeistara. „Það var brjálað að gera fyr-
ir mæðradaginn og ég hafði ekki undan. Ég
geri allt sjálfur og er einn á vaktinni og það er
allt gert frá grunni. Ég er hér frá sex á morgn-
ana og oft til tólf á kvöldin. Það er mest að gera
í kringum helgarnar. En það er lokað á mánu-
dögum; það er minn frídagur,“ segir Gulli.
„Ég sel hér tertur og makkarónurnar og svo
hef ég verið að búa til litlar kökur sem henta
vel í eftirrétti og er það selt í stykkjatali. Það
hefur verið mjög vinsælt.“
Þannig að viðskiptin ganga vel?
„Já, þetta hefur farið hraðar af stað en ég
bjóst við, en maður vissi svo sem ekki við
hverju var að búast í þessu ástandi. Svo eru
ekkert margir staðir sem eru að gera það ná-
kvæmlega sama. Þetta er ekki bakarí og ekki
kaffihús og ég sérhæfi mig bara í mínu. Ég
geri allt hér sjálfur og það hefur vakið lukku
að þetta sé lítið og persónulegt,“ segir Gulli og
bendir á instagramsíðuna sína gulliarnar.
Morgunblaðið/Ásdís
Aldrei bakað
vonda köku
Gunnlaugur Arnar Ingason, kallaður Gulli, er 25 ára
kondítormeistari. Hann lét ekki kórónuveiruna
stöðva sig og opnaði veisluþjónustu á sumardaginn
fyrsta. Viðtökurnar hafa komið skemmtilega á óvart.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Gulli skreytir terturnar gjarnan með ferskum
berjum, makkarónukökum og gulli.
Instagram/gulliarnar
KÖKUGERÐ
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.5. 2020