Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.05.2020, Blaðsíða 14
H
afþór Júlíus er klárlega
sterkasti, stærsti og þyngsti
maður sem undirrituð hefur
hitt á lífsleiðinni. Hann tek-
ur á móti blaðamanni á
stuttbuxum og bol og virðist ekki finna fyrir
kulda en svalt loft smýgur inn um opinn
glugga. Sverir handleggir Hafþórs eru al-
settir húðflúrum sem og stórir og sterklegir
kálfar og ekki er laust við að blaðamanni
verði starsýnt á þessa ógnarstóru húð-
flúruðu vöðva. Slíkum manni myndi maður
tæplega vilja mæta í dimmu húsasundi en
strax við fyrstu kynni er ljóst að útlitið seg-
ir ekki allt. Hafþór er bæði ljúfur og þægi-
legur í viðmóti. Í dag gengur vel hjá Haf-
þóri og á hann aðdáendur um heim allan.
Hann er hamingjusamlega giftur, á eina
dóttur og á von á syni sem hann bíður
spenntur eftir. Nýlega sló Hafþór heimsmet
þegar hann lyfti yfir hálfu tonni í réttstöðu-
lyftu. Hann hyggst nú setja aflraunir á bið
því næst á dagskrá er að æfa box fyrir ein-
vígi sem haldið verður í Las Vegas á næsta
ári. Fyrir það fær Hafþór yfir milljón doll-
ara.
Úr körfu í aflraunir
Hafþór er rúmlega þrítugur, fæddur árið
1988 á Akranesi og bjó þar til tólf ára aldurs
en þá flutti fjölskyldan í Kópavoginn. For-
eldrar hans eru Björn Þór Reynisson og
Ragnheiður Margrét Júlíusdóttir og starfa
þau í dag bæði við fjölskyldufyrirtækið
Thor’s Power Apparel sem framleiðir og sel-
ur íþróttafatnað.
Hafþór hefur verið rúman áratug í aflraun-
um en fyrir þann tíma var hann mikið í
körfubolta, enda tilvalinn í þá íþrótt sökum
hæðarinnar.
„Ég æfði mikið körfubolta og var í lands-
liðinu en lenti í meiðslum og fór þá að lyfta,“
segir hann og segist þá hafa snúið sér alfarið
að kraftlyftingum.
„Ég var átján ára þegar ég keppti á mínu
fyrsta „power“ lyftingamóti, en þar er keppt
í hnébeygju, bekkpressu og réttstöðulyftu.
Árið 2009 fór ég að keppa í aflraunum sem
kallast „Strongman“ á ensku og féll fyrir
því,“ segir hann og segist núna aðallega vera
í aflraunum.
„Jón Páll var í aflraunum. Þetta er mjög
vinsælt úti í heimi og áhuginn að aukast. Á
mínu fyrsta móti á Íslandi setti ég Íslands-
met í helluburði og féll alveg fyrir sportinu.
Þetta hentaði mér mjög vel. Og síðan eru lið-
in um tíu ár og ég hef unnið Sterkasti maður
Íslands níu ár í röð. Ég hef unnið mörg mót
og varð sterkasti maður Evrópu fimm sinn-
um, einu sinni sterkasti maður heims og
þrisvar í röð hef ég unnið sterkt aflraunamót
sem Arnold Schwarzenegger heldur ár
hvert.“
Má aldrei gefast upp
„Þetta sport er að stækka en það er ekkert
fyrir alla. Maður þarf að vera þungur og
borða mikið og það er erfitt að vera svona
þungur, ég viðurkenni það. Fyrir stuttu var
ég kominn í 206 kíló en ég þyngdi mig fyrir
réttstöðulyftuna en er nú kominn niður í 198
kíló. Nú þarf ég að létta mig aðeins,“ segir
hann og segist æfa mikið í sinni eigin líkams-
ræktarstöð, Thor’s Power Gym.
„Það þyngsta sem ég hafði lyft áður en ég
setti heimsmetið var 480 kíló. Ég æfði vel
fyrir þetta. Það var mikil pressa á mér því
þetta var sýnt „live“ um allan heim. Það var
gríðarlegt áhorf og ég er mjög stoltur af því.
Það erfiðasta við svona lyftu er undirbúning-
urinn; það liggur að baki rosaleg vinna. Ég
pæli mikið í mataræði, svefni og æfingum, ár
eftir ár. Ég vill vera bestur og þá er ég
reiðubúinn að leggja þá vinnu á mig.“
Var einhver efi í þínum huga að þú gætir
þetta?
„Nei, ég hef mikla trú á mér. Þetta byrjar
allt í hausnum og um leið og maður fer að
efast fer maður að tapa. Að trúa á sjálfan sig
er númer eitt, tvö og þrjú. Þó að það sé
stundum langt í mark verður maður að halda
áfram og gefast aldrei upp. Ég gefst aldrei
upp, enda hef ég náð öllum markmiðum sem
ég hef sett mér. Eins og að verða sterkasti
maður heims. Það tók mörg ár en ég gafst
ekki upp. Ég sagði nei við mörgum öðrum
tækifærum á þessum tíma, eins og að leika í
kvikmyndum, af því að ég hafði þetta mark-
mið og þennan draum. Og nú þegar ég hef
náð því get ég gert eitthvað annað sem gefur
meira í aðra hönd. „Strongman“ er ekki
tekjumikið sport og ég hef þurft að vinna
mikið með því. Nú loksins fer ég að fá eitt-
hvað til baka eftir alla þessa vinnu. Það er
bara tímabært.“
Hvernig var tilfinningin að ná að lyfta 501
kílói, meira en nokkur annar hefur gert?
„Konan mín kom hlaupandi grátandi til
mín og ég varð sjálfur mjög tilfinninga-
samur. Maður felldi tár. Þetta var stórt
augnablik. Þetta var góð tilfinning.“
Rígur á milli okkar
Hvað þarftu að innbyrða margar kalóríur á
dag og hvað borðar þú þá mikið?
„Þegar ég er að þyngja mig og æfa fyrir
stórmót borða ég um tíu þúsund kaloríur á
dag. Ég borða mjög mikið af grjónum, mikið
af kjöti og grænmeti. Ég trúi því að þetta sé
besta fæðan fyrir vöðvastyrk. Ég er mjög lít-
ið í skyndibita. Þetta er mjög stíft mataræði
en ég borða sex stórar máltíðir á dag,“ segir
hann.
„Þetta hefur verið svona í tíu ár. Það er
fyrst núna sem ég er kannski að slaka á en
ég er ekkert hættur í aflraunum. Ég ætla að
keppa í Sterkasta manni Íslands því ég setti
mér það markmið að vinna það mót tíu sinn-
um í röð. En núna er ég kominn með nýtt
markmið; ég er að fara að boxa. Ég er byrj-
aður að æfa fyrir það og er mikið í tækni-
vinnu. Ég geri mér grein fyrir að ég er eng-
inn boxari en ég fékk gott tækifæri. Mér var
boðinn samningur sem ég gat ekki hafnað og
hef ég nú eitt og hálft ár til að æfa mig. Mér
fannst það spennandi verkefni því ég er bú-
„Ég hef
mikla trú
á mér“
Aflraunamaðurinn Hafþór Júlíus
Björnsson er einn sterkasti maður
heims og sló nýlega heimsmet í
réttstöðulyftu þegar hann lyfti
rúmlega hálfu tonni. Hafþór rekur
eigin líkamsræktarstöð, tekur þátt í
keppnum víða um heim og æfir nú
box fyrir einvígi sem fer fram á
næsta ári. Hann lék í Game of
Thrones og fékk þá viðurnefnið
Fjallið, en Hafþór er yfir tveir metr-
ar á hæð og tvö hundruð kíló.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Morgunblaðið/Ásdís
VIÐTAL
14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.5. 2020