Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.05.2020, Side 15
Morgunblaðið/Ásdís
inn að ná öllum mínum markmiðum í afl-
raunum. Ég hef fengið alls kyns tilboð en
mér fannst þetta mest spennandi,“ segir
Hafþór sem hyggst keppa við hinn breska
aflraunamann Eddie Hall. Mikil spenna ríkir
hjá aðdáendum aflraunamannanna tveggja
sem og annarra áhugamanna um bardaga-
íþróttir.
„Eddie hefur líka keppt í aflraunum og
vann Sterkasti maður heims árið 2017 en ég
vann árið 2018. Það hefur verið rígur á milli
okkar; við höfum ekki verið bestu vinir.“
Nú eruð þið svo sterkir. Rotið þið ekki
bara hvor annan í fyrsta höggi?
„Jú, það gæti skeð. Styrkurinn er ekki það
sem er að fara að vinna þennan bardaga, það
er tæknin og úthaldið. Ef hann mætir og
hefur ekki æft nóg og er með lélegt úthald
er hann að fara að tapa mjög hratt. Þetta er
mjög stórt og er orðið það nú þegar. Það
verður gerð heimildarmynd sem verður sýnd
á Netflix, bæði um aðdragandann og svo
sjálfan bardagann,“ segir Hafþór og segist fá
vel borgað, hvernig sem fer.
„Ég fæ lágmark milljón dollara,“ segir
Hafþór og bætir við að ýmislegt annað verði
til að hækka þá upphæð eins og miðasala inn
á bardagann, sala bola og fleira.
Heldurðu að þú vinnir bardagann?
„Já! Ég hef alla tíð haft mikla trú á mér.
Og það hefur skilað mér árangri. Ég legg
mikla vinnu í allt sem ég geri. Ég get alveg
séð það að ég roti hann í fyrstu lotu. Hann
er aðeins minni en ég og hann mun líklegast
reyna að hjóla í mig mjög hratt. Ég held að
það muni verða honum til falls.“
Bíðum spennt eftir stráknum
Eiginkona Hafþórs er hin kanadíska Kelsey
Morgan Henson. Þau kynntust á veitinga-
stað í Kanada árið 2017 þar sem hún vann.
„Þegar ég er að labba út biður hún mig að
fá að taka mynd af okkur saman. Hún vissi
að ég hefði leikið í Game of Thrones en hún
var mikill aðdáandi þáttanna. Mér fannst
hún hugguleg stelpa og segi við hana að hún
sé falleg. Svo póstar hún myndinni og seinna
um kvöldið sé ég að hún misritar nafnið mitt
þannig að ég hafði ástæðu til að senda henni
skilaboð til að leiðrétta það. Hún lagar það
og svo hægt og rólega förum við að spjalla á
netinu. Tveimur mánuðum seinna var ég á
leið til Spánar í vinnuferð og spyr hana
hvort hún vilji hitta mig þar. Hún sló til og
við náðum vel saman. Hún fór svo aftur heim
til Kanada og ég til Íslands. Mér fannst ég
þekkja hana mjög vel því við höfðum talað
saman hvern einasta dag í marga klukku-
tíma. Hún kom svo að heimsækja mig til Ís-
lands. Ég varð ástfanginn og við bæði og
innan árs var hún flutt hingað og við erum
gift í dag. Hún er yndisleg kona og góð sál
og við náum hrikalega vel saman. Við eigum
von á syni í október,“ segir Hafþór og er að
vonum spenntur.
„Hún fer oft til Kanada og heimsækir fjöl-
skyldu sína og hún nær mjög góðu sambandi
við mínar systur og mína fjölskyldu. Við er-
um ein stór fjölskylda og bíðum spennt eftir
stráknum. Það eru spennandi tímar fram-
undan. Og þótt árið 2020 sé erfitt í heim-
inum með öllu sem er í gangi, þá verður
2020 alltaf gott ár fyrir okkur. Þetta er árið
sem ég sló heimsmet og eignast son,“ segir
Hafþór en fyrir á hann ellefu ára dóttur,
Theresu Líf, sem býr í Danmörku.
Hafþór segir Kelsey fljótt hafa fundið sér
verkefni á Íslandi.
„Ég er áhrifavaldur með 3,3 milljónir
fylgjendur á Instagram og enn aðra á You-
tube og Twitch. Svo er ég líka með styrktar-
aðila frá ýmsum fyrirtækjum og ég auglýsi
þá þeirra vörur á þessum miðlum. Fólk fór
svo að tala mjög mikið um okkur Kelsey og
hún varð mjög vinsæl mjög hratt og er kom-
in með um hálfa milljón fylgjenda á Insta-
gram og er því orðin áhrifavaldur líka. Það
er hennar vinna og hún fær þar fínar tekjur.
Svo er hún núna í einkaþjálfaranámi.“
Ég sé að það er gert góðlátlegt grín að
hæðarmun ykkar, hvernig finnst þér það?
„Það var eiginlega það sem varð til þess
að hún stækkaði svona hratt því það voru
stórir fréttamiðlar sem voru að tala mikið
um hæðarmuninn. Þá fór fólk að fylgja henni
og það vatt upp á sig. Hún er um 1,57 en
þetta hefur aldrei truflað okkur. Ég pæli í
dag ekkert í hæð, þyngd, húðlit eða aldri. Ég
gef alltaf öllum séns. Hjartað er það sem
skiptir máli.“
Frægð eftir Game of Thrones
Árið 2013 höfðu framleiðendur Game of
Thrones samband við Hafþór og var hann
ráðinn í hlutverk. Upptökur hófust svo ári
síðar.
„Það var mest tekið upp í Króatíu og svo í
Belfast á Írlandi og aðeins á Spáni. Ég lék
Gregor Clegane sem var kallaður The
Mountain, eða Fjallið. Þeir breyttu svo um
nafn og hann hét Robert Strong í lokin,“
segir Hafþór og segist hafa verið í tökum í
mörg ár, alltaf af og til.
„Ég flaug á milli og stundum var það
minna og stundum meira. Þetta var hrika-
lega mikið ævintýri og mjög gaman. Þetta
var mikil áskorun, enda er ég ekki lærður
leikari. Ég gerði bara það sem mér var sagt
að gera og fékk ráð frá hinum leikurunum.
Ég var auðvitað stressaður því ég vildi ekki
vera sá sem var alltaf að klúðra einhverju,
en sem betur fer gerðist það ekki. Ég var
mest í bardagasenum og því höfðu þeir ekk-
ert áhyggjur af mínum leiklistarhæfileikum.
Þeir vissu að ég væri svo sterkur og mikill
íþróttamaður að ég myndi líta vel út í ka-
meru, svo lengi sem ég gæti lært að slást.
Það var í raun eins og að læra dans. Ég fór
á æfingar og lærði skrefin. Svo þurfti ég
bara að „performa“. Ég gerði bara það sem
ég var búinn að læra.“
Hvernig fannst þér að horfa á þig í Game
of Thrones?
„Mér hefur alltaf þótt mjög óþægilegt að
horfa á sjálfan mig. Fjölskyldan vildi alltaf
horfa saman en mér leið alltaf kjánalega.“
Fannstu fyrir frægðinni eftir að hafa leikið
í þáttunum?
„Já, og það tók mikinn kipp eftir fyrstu
seríuna þegar bardaginn við Pedro Pascal
var sýndur. Ég man vel eftir því augnabliki
og fólk talaði mikið um þennan bardaga sem
einn flottasta bardaga í sögu kvikmynda.
Síminn hætti ekki að pípa og ég skildi ekki
hvað væri í gangi en þá var ég að fá nýja
fylgjendur á Instagram og mína miðla; nýja
á hverri einustu sekúndu. Ég þurfti að
slökkva á þessu hljóði; taka það af,“ segir
hann og hlær.
Tölvuleikir og þúsund manns
Hafþór segist hafa stytt sér stundirnar nú í
kórónuveirufaraldrinum við að spila tölvu-
leiki. Hann spilar á Twitch og leyfir þá aðdá-
endum að fylgjast með sér spila.
„Ég hef bætt við mig mörgum aðdáendum,
en það tók mig smátíma að átta mig á þessu
forriti. Ég skildi ekki alveg hver ætti að vilja
horfa á mig spila tölvuleiki en þetta er orðinn
ákveðinn kúltúr og fólk hefur mjög gaman að
því að horfa á sína uppáhaldsspilara. Ég er
stundum að spila tölvuleiki sem ég hef ekki
spilað áður og þá er fullt af fólki sem er tilbú-
ið til að hjálpa mér en það eru kannski þús-
und manns eða fleiri að horfa á mig spila. Ég
get svo verið í sambandi við mína fylgjendur í
gegnum þetta því fólk er að tala saman
þarna,“ segir hann.
„Og af því að þetta er „live“ þá myndar
maður betri tengsl.“
Við förum að slá botninn í samtalið. Haf-
þór sýnir blaðamanni líkamsræktarstöðina
Thor’s Power Gym og búðina og þar er mætt
Kelsey ásamt systur og foreldrum Hafþórs.
Við drífum Kelsey inn í sal til að fá mynd af
hjónunum og sést þá glögglega hæðarmun-
urinn. En eins og Hafþór segir; það er hjart-
að sem skiptir máli og er augljóst að á milli
þeirra ríkir kærleikur. Hafþór segir þeirra
áhugamál helst vera lyftingar, göngutúra,
útilegur og að hafa það kósí yfir sjónvarpinu.
Þau hyggjast hafa það notalegt í sumar á
meðan beðið er eftir erfingjanum.
„Það er erfitt að plana sumarið nú í þess-
um faraldri. En ef allt lagast förum við til
Kanada að heimsækja hennar fjölskyldu.
Annað hefur verið sett á bið. Við sjáum til og
vonum það besta.“
Hafþór sló heimsmet og
lyfti 501 kílói 2. maí síð-
astliðinn. Hann segist hafa
fellt tár af gleði.
’Að trúa á sjálfan siger númer eitt, tvö ogþrjú. Þó að það sé stund-um langt í mark verður
maður að halda áfram og
gefast aldrei upp. Ég gefst
aldrei upp, enda hef ég
náð öllum markmiðum
sem ég hef sett mér.
„Ég varð ástfanginn og við bæði og innan
árs var hún flutt hingað og við erum gift í
dag. Hún er yndisleg kona og góð sál og
við náum hrikalega vel saman. Við eigum
von á syni í október,“ segir Hafþór sem
sést hér á mynd með eiginkonunni Kelsey.
Hafþór sést hér á góðri stundu með leik-
aranum Rory McCann sem lék Sandor „The
Hound“ Clegane í Game of Thrones.
Hafþór lék Gregor Clegane í Game of Thrones
og segir það hafa verið mikið ævintýri.
17.5. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15