Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.05.2020, Page 19
Hefur tekið sér góðan tíma
í að gera heimilið upp
Ásdís Rósa Hafliðadóttir er í fæðingar-orlofi um þessar mundir. Hún er íaukastarfi hjá Icelandair en ákvað í
fæðingarorlofinu að opna vefverslunina
Heimaró, sem hefur átt hug hennar allan
undanfarna mánuði. Ýmislegt úr versluninni
er að finna heima hjá henni.
„Við Hjörtur Hjartarsson eiginmaður minn
og drengir okkar tveir, þeir Hjörtur Benjamín
og Mímir Hrafn, búum á Laugarásvegi í Laug-
ardalnum. Við fluttum hingað fyrir rúmlega
einu og hálfu ári og ætlum ekki héðan í bráð.
Húsið er byggt í kringum 1960 og er okkar
hluti hússins ca 160 fm og á þremur hæðum. Á
neðstu hæðinni er þvottahús og geymsla, á
miðhæðinni eru fjögur svefnherbergi og eitt
baðherbergi og á efstu hæðinni erum við með
eldhús, borðstofu, stofu og annað baðher-
bergi.“
Finnst gaman að hafa fallegt í
kringum sig
Ásdís Rósa segir erfitt að útskýra sinn eigin
stíl, en að henni finnist mjög gaman að hafa
fallegt í kringum sig.
„Heimilið skiptir mig miklu máli. Ég reyni
að velja vel það sem kemur hingað inn en ég
laðast mikið að svörtu og er ef til vill ekki sú
litaglaðasta. Ég vil samt sem áður hafa heim-
ilið mitt mjög hlýlegt og þannig að öllum líði
vel heima.“
Hvaða sess hefur heimilið í þínum huga?
„Það skiptir mig mjög miklu máli að það sé
fallegt og hreint í kringum okkur. Heimilið er
þó okkar allra og verður að virka vel fyrir alla
heimilismeðlimi. Ég er oft að breyta og bæta
og mér finnst maður aldrei vera „búinn“ þegar
kemur að heimilinu. Manninum mínum til mik-
illar gleði og ánægju. Hann er farinn að þekkja
svipinn á mér þegar ég stari á hluti í lengri
tíma og veit þá að ég er farin að hugsa um
breytingar.“
Fær fagurfræðina frá
æskuheimilinu
Ásdís Rósa segir að áhuga hennar á heimilinu
megi rekja til æskuheimilisins.
„Mér fannst heimilið mitt í æsku alltaf mjög
fallegt og mamma hefur einstaklega gott auga
fyrir því að gera notalegt í kringum sig.
Áhuginn minn kviknaði þó ekki fyrr en fyrir
kannski fimm árum, þegar við tókum íbúðina
sem við áttum áður á Vesturgötu í gegn. Ég
valdi inn hluti þar og gerði hluti sem ég hafði
ekki hugsað út í áður.
Áhugi minn hefur síðan vaxið mikið og ég
elska að skoða innanhússhönnunarblöð, vef-
svæði og fallega Instagram-reikninga. Og síð-
an að gera notalegt í kringum mig.“
Þegar fjölskyldan flutti inn í íbúðina sína í
Laugardalnum var anddyrið lokað rými og það
fyrsta sem þau gerðu var að stækka dyrnar al-
veg upp í loft.
„Við breikkuðum þær einnig og opnuðum
þannig anddyrið, sem okkur fannst tengja
rýmið betur við restina af íbúðinni. Flísarnar
voru á anddyrinu fyrir en við teiknuðum upp
stálhurðina og fengum frábæran stálsmið til
þess að byggja hana fyrir okkur og gerði það
anddyrið aðeins grófara og meira töff.“
Ásdís Rósa segir að hún vilji ekki hafa mikið
dót eða skrautmuni uppi, svo að hver hlutur á
sinn stað í húsinu.
„Ég verð stundum hálf óróleg ef mér finnst
vera of mikið dúllerí uppi við.
Við erum með nokkra hluti sem okkur þykir
vænt um og finnst fallegt að hafa sjáanlega en
ég er líka dugleg að pakka niður og hvíla og
skipta út svo það sé ekki of mikið af hlutum
hverju sinni. Svo þarf maður ekkert alltaf að
henda, gefa eða selja og kaupa nýja hluti. Oft
er bara gott að hvíla hluti eða finna þeim nýja
staði og þá fá þeir nýtt líf.“
Hvernig bjóstu til þetta fallega heimili?
„Grunnurinn hér var mjög góður. Útsýnið,
stiginn og gluggarnir hér eru þannig að það er
dásamlegt að vera hér og svo settum við okkar
svip á heimilið smám saman. Það er mikið til í
því sem maður heyrir oft hvað það sé mikil-
vægt að flytja inn á heimili og bíða í smá tíma
með framkvæmdir. Það hentar mér hins vegar
frekar illa því ég vil að hlutirnir gerist á ljós-
hraða. Við biðum hins vegar aðeins með eld-
húsið og skiptum nýlega um framhliðina á eld-
húsinnréttingunni, sem breytti miklu. Við
erum mjög ánægð með það.“
Eruð þið hjónin sammála um hvað skal gera
heima?
„Ég myndi segja það en maðurinn minn
kannski ekki. Ég tek vanalega ákvarðanirnar
og hann endar svo vanalega á því að vera al-
sæll með hlutina, svo þetta fyrirkomulag virk-
ar vel fyrir okkur.“
Stofan er hugguleg þar sem
ljósmyndir af fjölskyldunni eru
í forgrunni. Sófinn er úr Ikea.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Lögfræðingurinn Ásdís Rósa Hafliðadóttir á einstaklega fallegt heimili í Laugar-
dalnum sem hún hefur gefið sér góðan tíma í að gera upp. Hún kann að njóta sín
og slaka á heima og gefur góð ráð þegar kemur að því að gera heimilið barnvænt.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Ísskápurinn inni í eldhúsinu
setur svip á rýmið.
17.5. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19
Þú finnur bæklinginn
husgagnahollin.is
RIMINI
2,5 og 3ja sæta,
meira á bls. 2 og 3
Reykjavík
Bíldshöfði 20
Akureyri
Dalsbraut 1
Ísafirði
Skeiði 1
SUMAR
GARÐHÚSGÖGN | SMÁVARA
| HÆGINDASTÓLAR | HILLUR
, SKÁPAR, BORÐ OG STÓLA
R | SÓFAR
DAGAR
www.husgagnahollin.is
S
ENDUM FR
ÍT
T
V E
F V E
R S L U N
– ÚTI OG INNI –
SUMARHÚSGÖGN
Vönduð og stórglæslieg útihúsgögn frá sænska fyrirtækinu Brafab. Húsgögnin þola vel íslenska veðráttu.
RYÐFRÍTT STÁL Í ÖLLUM GRINDUM. | OLIFIN ÁKLÆÐI SEM ENDIST. | FALLEG OG EINSTAKLEGA ÞÆGILEG ÚTIHÚSGÖGN.
SOHO
Flottur þriggja
sæta útisófi
Stærð:
187 x 79 x 90 cm
111.992 kr. 139.990 kr.
SOHO
Stóll
Stærð: 79 x 74 x 90 cm
42.392 kr. 52.990 kr.