Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.05.2020, Side 20
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.5. 2020
LÍFSSTÍLL
Hringdu í síma 580 7000 eða farðu áwww.heimavorn.is
HVARSEMÞÚERT
SAMSTARFSAÐILI
Öryggiskerfi
15:04 100%
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Flísarnar í íbúðinni
er einstaklega fal-
legar og litríkar.
Ásdís Rósa setti
rólu inn í annað
barnaherbergið.
Rólan fæst í Ikea.
Það sem er á eldhúsborðinu er það sem Ásdís
notar reglulega í matseld.
Ásdís Rósa raðar hlutunum fallega upp.
Svartur, viðarlitur,
bleikur og hvítur fer vel
saman í borðstofunni.
á veggjunum, hlýlega mottu á gólfinu og góðar
hirslur svo auðvelt sé að ganga frá. „Eins
finnst mér mikilvægt að allt dótið sé ekki sí-
fellt í augsýn, sem getur verið truflandi. Einn-
ig finnst mér sniðugt að vera með bókahillur
þar sem börnin ná í bækur sjálf og notalegan
stað til þess að lesa saman.“
Hvað getur þú sagt mér frá Heimaró?
„Heimaró er vefverslun þar sem ég sel
heimilisvörur og innifatnað sem ég hanna sjálf
og læt framleiða undir eigin nafni. Stráin sem
ég er með á nokkrum stöðum heima eru úr
versluninni og einnig marmarabakkar. Sum
húsgögnin í stofunni eru líka frá Heimaró, eins
og sjónvarpsbekkurinn og hliðarborðið. Í öðru
barnaherberginu er stjörnumerkjamynd sem
er hluti af því sem við seljum en við búum til
persónulega mynd með nafni og stjörnumerki
og setjum inn hnitin af fæðingarstað, tíma og
dagsetningu.
Fötin sem við erum að selja eru inniföt sem
eru eins fyrir foreldra og börn. Þau eru hugsuð
sem bæði náttföt en enn fremur eitthvað þægi-
legt sem þú skellir þér í eftir langan vinnudag.
Ég var með ákveðna mynd í höfðinu af svona
,,innisettum“ sem mig langaði í fyrir mig og
strákana. Ég ákvað svo að láta bara slag
standa og hannaði fötin og lét síðan framleiða
fyrir mig. Ég er ánægð með útkomuna og held
að þau eigi erindi víða núna.“
Er mikið fyrir að slaka á heima
Hver er uppáhaldsstaðurinn þinn heima?
„Það er í hengirólunni sem hangir inni í
stofu þar sem hægt er að njóta útsýnisins í al-
gjörri afslöppun. Í raun þar til strákarnir
koma til þess að ýta mömmu.“
Þegar kemur að barnaherbergjum finnst
henni skipta miklu máli að vera með fallega liti