Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.05.2020, Síða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.5. 2020
LÍFSSTÍLL
Litina hennar Sæju
færð þú í Slippfélaginu
GÆÐIN
Ein af ástæðum þess að íslenskir hönnuðir velja Slippfélagið.
Votur
Volgur Ber
Borgartúni 22 og Skútuvogi 2, Reykjavík,
Dalshrauni 11, Hafnarfirði
Hafnargötu 54, Reykjanesbæ
Gleráreyrum 2, Akureyri
Opið: 8-18 virka daga og 10-14 laugardaga • Sími 588 8000 • slippfelagid.is
en drengi frá fæðingu. Einnig er
mikilvægt að drengir fái mikla
þjálfun á bókstaf hljóða tengingu í
byrjun lestrarkennslu. En fræði-
menn telja að áreitið, formið á bók-
stafnum, fari inn í hægra heilahvel,
þaðan yfir hvelatengsl (e. corpus
callosum) í vinstra heilahvel þar
sem hljóðið myndast. Þannig að sú
þjálfun er gífurlega mikilvæg fyrir
bæði kynin og sérlega fyrir drengi.
Þessi áhrif testósteróns á heila-
starfsemi gera drengi viðkvæmari
og auka möguleikann á að þeir
lendi í vanda með hreyfiþróun og
málþróun, greinist oftar með
ADHD og vandmál með lestur.
Aukið testósterón getur líka þýtt
meiri þörf fyrir líkamlega útrás og
að minnka þurfi kyrrsetu. Þess
vegna hafa rannsóknir mælt með
breyttu skipulagi skóladagsins
með meiri áherslu á daglega hreyf-
ingu í upphafi hans (sjá mynd 4).
Eftir góða hreyfingu skapast betri
ró og einbeiting sem er góður
grunnur fyrir nám.
Einnig er mælt með 10 mínútna
pásu eftir 35-40 mínútna tíma.
Fræðimenn hafa einnig mælt með
aukinni daglegri hreyfingu í leik-
skólanum. Rannsóknir hafa hins
vegar sýnt að stelpur alveg niður í
4 ára aldur eiga oft í meiri vanda-
málum/erfiðleikum með svefn en
strákar. Þær eiga líka oftar í
erfiðleikum tengdum streitu og
sársauka á unglingsárum.
Prófessor Paul Gilbert skrifaði bók
sem kom út árið 2009 og heitir The
Compassionate Mind. Þar leggur
hann áherslu á mikilvægi samúðar,
vingjarnleika og góðrar samveru
og samtals fyrir heilastarfsemina.
Hlý samvera hefur jákvæð áhrif á
hormónastarfsemina. Hríða-
hormón (e. oxytocin) hefur áhrif á
vellíðunartilfinningu okkar. Gil-
bert bendir á að þróun umhyggju,
það að upplifa góðvild, hlýju og
samúð er lykilatriði til að hjálpa
okkur við að öðlast hamingju og
tilgang með lífinu. Þessi upplifun
hefur jákvæð áhrif á alla okkar
starfsemi, minnkar streitu, styrkir
ofnæmiskerfið og segja má að það
sé einskonar vítamín fyrir heila-
starfsemina. Jákvæð viðbrögð,
þegar einstaklingar eru að gera
sitt besta eða ná að framkvæma
það sem þeir ætluðu sér, eru einnig
mjög mikilvæg. Þar eru foreldrar,
þjálfarar og kennarar í lykilhlut-
verki.
Möguleikar:
Gefum okkur tíma með börnum
okkar og unglingum. Sköpum
gæðastundir. Verum meðvituð um
kynjamuninn og bregðumst við
honum. Eflum hugarfar grósku á
heimilum, skólum og í allri félags-
starfsemi. Ræktum jákvæð sam-
skipti og notum jákvæða styrkingu
í anda Csikszentmihalyi og já-
kvæðrar sálfræði. Þar sem áskor-
anir miðað við færni eru lykill að
því að skapa ástríðu, sterkan
áhuga og þar með á námi. Finnum
okkar ástríðu á ákveðnu sviði/
þema og færni og þróum hana.
Foreldrar/forráðamenn:
Hlúið að börnum ykkar og ung-
lingum. Ræktið samveru með ykkar
barni/unglingi og eflið/ræktið með
þeim virðingu og tillitssemi svo
hegðun þeirra sé til fyrirmyndar.
Farið í göngutúr saman, æfið saman
eða farið í sund saman. Spilið á spil
eða farið í brettaspil (til dæmis
Trivial Pursuit). Lesið bækur sam-
an. Leggið áherslu á samveruna og
verið til staðar. Gætið að jafnvægi
frítíma og tómstunda. Hugið að holl-
ustu/hollri næringu og nægum
svefni og að daglegur skjátími sé
hæfilegur.
Skólar:
Þeir sem stjórna skólum lands-
ins geta unnið að því að breyta
skipulagi skóladagsins með niður-
stöður rannsókna í huga, beina
meiri fókus á grunnleggjandi
færni, auka hreyfingu á hverjum
skóladegi og gefa nemendum meira
val. Mikilvægt er að brjóta upp
skóladaginn og huga að vellíðan og
byggja upp gott sjálfstraust. Nauð-
synlegt er að taka mið af kynja-
mun.
Ráðamenn:
Gegna veigamiklu hlutverki við
að byggja upp þjóðfélag sem gefur
fólki möguleika á mannsæmandi
launum fyrir 37,5 stunda vinnu-
viku. Það að fólk þurfi að vinna
mikið til að hafa ofan í sig og á
kemur niður á góða samtalinu og
tíma sem mikilvægt er að að verja
með fjölskyldu og vinum. Tíminn
fyrir börnin og unglingana verður
oft af skornum skammti í hringiðu
hvers dags. Við þurfum öll að
rækta góða samtalið og nærveruna
þar sem jákvæðni og hlýja er í há-
vegum höfð. Byggjum upp barna-
vænlegt samfélag og gefum af okk-
ur til hins besta fyrir komandi
kynslóðir. Staðan núna í þjóðfélag-
inu kemur til með að skapa áskor-
anir sem við megum ekki leiða hjá
okkur.
Verið velkomin á Facebook-
síðuna Vísindi og menntun. Þar má
finna umfjöllun um rannsóknir sem
geta nýst við skipulag skólastarfs og
menntunar.
Árið 2010 Árið 2019
Drengir
Ísland 8,3% Ísland 15%
Noregur 5% Noregur 4,9% (2016)
Stúlkur
Ísland 2,8% Ísland 7%
Noregur 2,1% Noregur 3% (2016)
Mynd 3
ADHD-lyf hjá 10-14 ára börnum
Mynd 4
Skipulag skóladags, 1.-7. bekkur
8.30-9.10 Hreyfing *
9.10-9.30 Frímínútur **
9.30-11.50 Þrjár 40 mín. kennslustundir með 10. mín.
frímínútum á milli. Lestur, stærðfræði og náttúrufræði.***
11.50-12.30 Hádegismatur
12.30-13.10 Heimanámshjálp / þjálfunartími Í þessum tíma fá
þau börn sem þurfa mesta hjálp með grunnliggjandi fög,
viðbótarþjálfun og eftirfylgni – gjarnan í minni hópum
með einn kennara eða sérkennara. Meginmarkmiðið
er að finna eins snemma og hægt er hverjir þurfa auka
eftirfylgni og/eða þurfa að fá greiningar með alþjóðlega
viðurkenndum aðferðum.****
Kennsla í öðrum fögum samfélagsgreinar / enska /
mynd- og handmennt / tónlist / heimilisfræði
13.10-13.20 Frímínútur
13.20-14.50 Kennsla í öðrum fögum valfag / ástíðutíminn (tón-
list / skák / myndlist / dans / leiklist
Virðing og
tillitssemi
Grósku-
hugarfar
Colorbox