Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.05.2020, Side 28
upphafi virðast ótengdir þar til
Stella afhjúpar leynda þræði á milli
þeirra. Nafn bókarinnar vísar til
hryðjuverks sem framið er á kosn-
ingahátíð í Háskólabíó. Sumir póli-
tíkusar halda því strax fram að
hryðjuverkasamtök múslima standi
á bak við ódæðið og gera sitt ýtr-
asta til að veiða atkvæði í því
grugguga vatni. Stella tekur að sér
vörn hins grunaða og verður fyrir
miklu aðkasti af þeim sökum. En
hún er einnig að takast á við tvö
önnur alvarleg mál, annað nýtt en
hitt grafið í fortíðinni. Eldra málið
tengist mannvonsku og skepnuskap
á sveitabæ fyrir norðan á tíunda
áratug síðustu aldar, en hitt árás á
gamla vinkonu sem Stella hefur
ekki séð síðan á háskólaárunum.
Og þá fer eins og vænta mátti að
loga glatt í gömlum glæðum.
Nú er Stella mikill töffari, er
hún ekkert að mýkjast með ár-
unum?
Hvað er að frétta af Stellu? Stella er á hverjumdegi að hamast á tölvunni
við að skrifa um baráttu sína við
krimma og skúrka í íslensku sam-
félagi. Henni finnst enn rosalega
gaman að plotta og plana glæpi
sem eiga að vera leyndó – og eru
það gjarnan allt þar til söguhetjan
eitursnjalla kemur til skjalanna og
sviptir hulunni af leyndarmálinu
þrátt fyrir tregðu og andstöðu
kerfisins. Núna ætlar Stella líka að
fagna því með tvöföldum Nonna að
bókin um Morðin í Háskólabíó sé
komin út þrátt fyrir veiruna ógeðs-
legu sem lamað hefur þjóðfélagið
mánuðum saman, og að bókin
gengur firna vel samkvæmt met-
sölulista Eymundsson.
Síður en svo að linast
Um hvað fjallar nýjasta bókin?
Allar bækur Stellu Blómkvist
hafa fleiri en einn söguþráð sem í
Nei, Stella er síður en svo að lin-
ast í baráttunni. Hún er að vísu
komin yfir fertugt í síðustu bók-
unum, en það er auðvitað enginn
aldur. Stella heldur sér í góðu
formi líkamlega og hún verður al-
veg jafn reið núna og í fyrstu bók-
inni þegar hún lendir í klónum á
kerfisköllum eða krimmum sem
reyna með bellibrögðum að halda
henni niðri. Hitt er annað mál að
Stella á núna sjö ára dóttur sem
hún þarf að taka tillit til þegar
leikarnir æsast, en líka vernda
gegn hættulegum kuldabolum þjóð-
félagsins. Það hefur haft viss áhrif
á hegðun hennar.
Hvernig kvikna hugmyndirnar?
Er alltaf af nógu að taka?
Eftir að fyrsta sagan kom út fór
ég að plana marga söguþræði til að
hafa í handraðanum. Suma notaði
ég næstu árin í þær fimm bækur
sem komu út með stuttu millibili á
árunum 2000 til 2006. En þá átti ég
enn eftir fullt af hugmyndum í
gagnabanka mínum í tölvunni, og
skráði síðan hjá mér nokkra sögu-
þræði til viðbótar þau ár sem ég
hafði ekki tíma til að skrifa nýjar
Stellubækur. Það hefur því aldrei
verið skortur á hugmyndum. Þeir
söguþræðir sem bæst hafa við síð-
ustu árin kvikna stundum við lest-
ur frétta af glæpum, bæði hér-
lendis og erlendis. En slíkar fréttir
eru bara kveikjan því Stella þróar
söguþráðinn alltaf í nýjar áttir og
fellir þær að veröld bókanna. Það
er enn mjög gaman að plana sann-
færandi en um leið hæfilega flókn-
ar morðgátur fyrir Stellu að leysa.
Afhjúpunin bíður
Er ekkert erfitt að vera rithöf-
undur í leyni í svona litlu sam-
félagi?
Ég man að þegar ég ræddi dul-
nefnið við Halldór Guðmundsson,
fyrsta útgefanda minn, sagði hann
það gott ef sér tækist að halda
þessu leyndu í þrjá mánuði! En
ekkert hafði spurst út þegar næsta
bók var klár og þá ákváðum við að
halda leiknum áfram. Mér datt
aldrei í hug að leyndarmálið gæti
haldist svona lengi, en markaði þá
stefnu um aldamótin að eiga ekki
frumkvæði að afhjúpun Stellu
Blómkvist fyrr en síðasta bókin
væri komin út. Auðvitað er það du-
lítið sérkennileg reynsla að þurfa
að halda því leyndu að ég hafi
skrifað ellefu bækur sem mjög fáir
vita að eru eftir mig. Og það er
snúið við að eiga til dæmis þegar
kerfiskallarnir brjóta á mér, eins
og stjórn Bókasafnssjóðs sem hef-
ur í áratugi barist gegn því að ég
fái greitt fyrir útlán bóka minna
eins og aðrir rithöfundar. Sem bet-
ur fer reyndist embætti umboðs-
manns Alþingis standa undir nafni
sem síðasti verndari réttlætis borg-
aranna gagnvart opinbera kerfinu,
en ég hef þurft að standa í þessu
langvarandi stríði án þess að geta
Egóið mitt er í fantaformi!
Ellefta bókin um Stellu Blómkvist er komin út. Enn veit enginn deili á höf-
undi en blaðamaður fékk Stellu til að svara nokkrum spurningum skriflega.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Ellefta bókin um stjörnulögmanninn kjaft-
fora er komin út hjá Máli og menningu. Í
bókinni leitar prestur á líknardeild til
Stellu með hinstu játningu sem snýst um
nauðgun og hvarf tólf ára stúlku norður á
Ströndum tuttugu árum fyrr. Gömul kær-
asta Stellu verður fyrir dularfullri líkams-
árás á Snæfellsnesi og skjólstæðingur
ferst í hrikalegri sprengingu á flokksþingi
Þjóðfrelsisflokksins í Háskólabíó. Það er
því í nógu að snúast fyrir grjótharðan lög-
mann sem lætur ekkert stöðva sig í að fá réttlætinu framgengt.
Stella Blómkvist hefur haldið svartfuglum, jakkalökkum og glæp-
onum við efnið í meira en tvo áratugi og á dyggan aðdáendahóp.
Morðin í Háskólabíó
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.5. 2020
LESBÓK
ER PLANIÐ SKÍTUGT?
Fáðu tilboð í s: 577 5757
GÖTUSÓPUN
ÞVOTTUR
MÁLUN
www.gamafelagid.is
MATUR Hvað er til bragðs þegar veitingastaðnum er
lokað vegna kórónuveirunnar? Franski kokkurinn Marc
Lanteri, sem rekur veitingastað með stjörnu frá Michel-
in á Ítalíu, ákvað að bjóða upp á heimsendingar.
Veitingastaðurinn er í kastala frá 11. öld fyrir ofan
bæinn Grinzane Cavour. Oftast eru gestirnir langt að
komnir, en nú leitar hann viðskiptavina nær sér og gerir
að auki allt sjálfur; finnur til matinn, eldar og sendist.
„Við ákváðum að fara út í heimsendingar þannig að
við færum ekki úr æfingu og fengjum að auki nýja við-
skiptavini,“ sagði Lanteri, sem er lærisveinn meistara-
kokksins Alains Ducasse, við AFP. Viðskiptavinurinn
þarf að reka smiðshöggið á réttina, sem koma í loftþétt-
um umbúðum, og gríma fylgir í pakkanum.
Stjörnukokkur sendist
Marc Lanteri,
kokkur og sendill.
AFP
TÓNLIST Kassagítar úr fórum rokkstjörn-
unnar sálugu Kurts Cobains af gerðinni Martin
D-18E frá 1959 verður settur á uppboð 19. júní
í Beverly Hills og á að hefja tilboð á einni millj-
ón dollara eða tæpum 150 milljónum króna.
Cobain lék á gítarinn með hljómsveitinni
Nirvana á frægum órafmögnuðum tónleikum
stöðvarinnar MTV í nóvember 1993. Voru tón-
leikarnir gefnir út á plötu. Fimm mánuðum síð-
ar var hann allur, aðeins 27 ára að aldri.
Fyrir tveimur árum fékkst tæplega hálf
milljón dollara fyrir gítar sem Bob Dylan not-
aði um það leyti sem hann var að skipta úr
þjóðlagatónlist yfir í rokk.
Vilja milljón dollara fyrir gítar Cobains
Gítar Cobains verður seldur hæstbjóðanda.
AFP