Bæjarins besta


Bæjarins besta - 06.05.1986, Qupperneq 4

Bæjarins besta - 06.05.1986, Qupperneq 4
4 MiJARlNS BESTA Nú færist ofurlítið fjör í daufa kosningabaráttu. Blöð stjórn- málaflokkanna koma út á nýjan leik. ísfirðingur birtist og upplýsti leyndardóminn um framboðslista Framsóknarflokks á ísafirði. í Vesturlandi gefur að líta stefnu- skrá Sjálfstæðisflokks. Hann er sá fyrsti sem opinberar stefnu sína. Hún er að vísu almennt orðuð í mörgu. Þó er tekið á sumu. Boðað er aðhald í fjár- málum. Byggja skal næsta áfanga vöruhafnar við Sundin. Margt fleyramætti tína til en það verður ekki gert hér. Skutull kom út á laugardag og gefur þar á að líta lista Alþyðu- flokksins. Vestfirðingurerkominn og skartar fríðum flokki á forsíðu. Allt er þetta þó heldur bragð- dauft. ísfirðingur reynir þó að lífga upþ á tilveruna. Gripið er til þess gamla ráðs að færa baráttuna á þersónulegt plan. Sá sem fyrir skotum verður er listi sjálfstæðis- manna. Reynir blaðið að gera upp á milli efstu frambjóðend- annafimm. Aðalvandamálið er eftir því sem best verður séð, það, að engin hálfvelgja er í efsta manni á lista Sjálfstæðisflokks. Auk þess gerir framsóknarblaðið ráð fyrir því, að maðurinn viti lítið um Orkubú Vestfjarða. Telur höf- undur þess stutta máls, sem flennir sig yfir nærri hálfa blað- síðu, að aðrir frambjóðendur listans viti meira um orkumálin. En umræddur maður hefur það eitt sér til saka unnið að vera tilnefndur af iðnaðarráðherra i stjórn Orkubús Vestfjarða. Áður hafði setið þar af hálfu sama ráðuneytis efsti maður af lista Framsóknarflokks. Það virðist ófyrirgefanleg synd að sitja ekki í bæjarstjórn ísafjarðar á því augnabliki er tilnefning er gerð Ekki verður betur séð en jafnt hefði verið komið á með fyrr- verandi fulltrúa iðnaðarráðu- neytisins, efsta manni á lista Framsóknar. Það skyldi þó ekki vera að full- trúinn núverandi hafi sýnt það af sér að vera traustsins verður. Sannleiksást Eftir stendur þó það, að ísfirð- ingur hefur ekki hirt um að kanna það t.d. með viðtali hvort skatt- stjórinn veit minna um orkumál en aðrir. Er það raunin, að sú viska sé fáum gefin? Eða öðlast menn þekkingu á þessu máli með ein- hverjum leyndardómsfullum hætti, sem er ekki tiltækur nema útvöldum? Hvernig ber annars að skilja þessa skemmtilegu tilraun ,,ritara“ orðanna til snúa frá deyfðinni til fjörsins? Að þora Við ísfirðingar viljum a.m.k. í orði fá fólk til að flytja til okkar. En við ættum þá að gæta þess að hnýta ekki í þá menn sem hafa kunnáttu og vilja til að gera vel. Efsti maður á lista Sjálfstæðis- flokks tók það hlutverk að sér að fengnum úrslitum í fjölsóttu próf- kjöri í febrúar. Kratar einir þorðu að hafa sömu aðferð. Að gefa hinum almenna kjósenda færi til beinna áhrifa á skipan framboðs- lista sýnir mikið og gagnkvæmt traust. Þetta gerðu hvorki Alþýðu- bandalag né Framsóknarflokkur. Það er von að ,,ritaranum“ svíði að fyrirliði Sjálfstæðisflokksins þori. Getur verið að skilyrði fyrir tilnefningu í stjórn Orkubús Vest- fjarða, sé seta í bæjarstjórn ísa- fjarðar, aö mati „ritarans." Litlaus kosningabarátta KOSNINGASKRIFSTOFA SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS hefur verið opnuð að Hafnarstræti 12, 2. hæð. Opið er virka daga kl. 9.00 - 12.00 og 14.00 -19.00. Um helgar er opið frá kl. 10.00-19.00 Símar skrifstofunnar eru: 3232 — 4469 — 4559 Allir stuðningsmenn eru hvattir til að hafa samband við skrifstofuna. Sérstaklega er minnt á utankjörfundarkosningu sem hefst 10. maí 1986. Starfsmaður skrifstofunnar er Jóhann Eiríksson Vilji fólk ná tali af frambjóðendum D-listans mun skrifstofan hafa milligöngu um það. Alltaf heitt á könnunni Sjálfstæðisflokkurinn á ísafirði ý.VsAlS‘:v.:L-‘. *ní« : '*V* .. Snyrting — Snyrting — Snyrting Halldóra Jónsdóttir, snyrtisérfræðingur, verður hér dagana 8.-15. maí og býður upp á, m.a. andlitsbað, húðhreinsun, andlitsnudd og margt fleira HALLDÓRA VINNUR MEÐ VÖRUR FRÁ HELENU RUBENSTEIN TÍMAPANTANIR í SÍMA4442

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.