Bæjarins besta - 03.06.1986, Síða 2
2 BÆJARINS BESTA
BÆJARINS BESTA kemur út á þriðjudögum. Útgefandi: H-PRENT sf., Suður- tangi 2,400 ísafjörður, sími 94-4560. Ritstjórar og ábyrgðarmenn: Sigurjón J. Sigurðsson, Stórholt 7, sími 4277 og Halldór Sveinbjörnsson, Aðalstræti 20, sími 4101. Blaðamaður: Snorri Grímsson, símar 4560 og 3667 Prentun: H-Prent sf. Pósthólf 210. Efnis- og auglýsinga móttaka í ofangreindum sfmum.
BÆJARINS BESTA
Að afloknum
kosningum
Bæjarstjórnarkosningunum er lokið. Líkt og í fyrri
kosningum áttu sér stað talsverðar sveiflur á fylgi
flokkana og þeir voru margir spekingarnir, sem viður-
kenndu að þeir hefðu ekki „búist við þessum úrslitum“
eins og þeir orða það eftirá.
Talsverð pólitísk umræða fór fram á síðum B.B.
Blaðið bauð upp á það og frambjóðendur töldu sér
feng í að koma skoðunum sínum á framfæri í blaðinu.
Þar voru allir velkomnir eftir því sem blaðrými leyfði.
Blaðið tók ekki afstöðu til flokka eða framboða.
En nú er kosningum lokið og þá tekur blaðið afstöðu
- það ætlast til þess að kjörnir bæjar- og sveita-
stjórnarfulltrúar vinni af heilindum að öllum þeim
málum, sem verða mega Vestfirðingum til heilla.
Þar sem það liggur ekki fyrir strax við úrslit kosninga
er það fyrsta verk nýkjörinna fulltrúa að mynda
„ábyrgan meirihluta11 einsog það heitir á pólitísku máli
og velja fólk til starfa í nefndum. Hvernig til tekst með
hið síðarnefnda er mjög mikilvægt. Þó svo að bæjarráð
sé þýðingarmesta nefnd bæjarins eiga upphöf hinna
ýmsu mála sér oft á tíðum stað í nefndum, auk þess
sem þeim eru iðulega send mál til umfjöllunar og álits-
gerðar frá bæjarráði og bæjarstjórn.
Þegar nú nýkjörnar sveitastjórnir taka til starfa veitir
þeim áreiðanlega ekki af því veganesti, að íbúarnir
standi með þeim. Með þessum orðum er átt við það, að
við sem utan bæjarstjórnar stöndum spyrjum ekki
endalaust hvað bæjarstjórnin ætli að gera í þessum og
hinum efnum, heldur einnig hvað við getum gert fyrir
bæinn okkar.
Spurningar eins og þessar eiga ekki síst við í öllu er
lýtur að umgengis- og náttúruverndarmálum. Um-
gengnin í einu bæjarfélagi er engan veginn og alfarið
spegilmynd bæjarstjórnar heldur íbúanna sjálfra. í
þeim efnum þurfum við að gera stórátak og fyrsta
skrefið erað líta í eigin barm. Vilji bæjarstjórnarinnarer
af hinu góða, en vilji okkar sjálfra er allt sem þarf.
Fyrir kosningarnar kepptust frambjóðendur við að
kynna okkur viðhorf sín og vilja til góðra verka í okkar
þágu. Nú er kosningum lokið og röðin komin að þeim
að taka til hendinni. En við sem utan bæjarstjórnar
erum verðum að gera okkur Ijóst, að hinir níu bæjar-
fulltrúar mega sín lítils nema við stöndum samahent að
baki þeim bæjarfélaginu til framdráttar.
SSHPRENT
ÖLLALMENN
PRENTÞJÓNUSTA
Sími4560
■HH
vrsA
EUROCAPO
Fimmtudagskvöld, opið frá kl. 21.00 - 01.00
Föstudagskvöld, opið frá kl. 23.00 - 03.00
DISKÓTEK
Laugardagskvöld, opið frá kl. 19.00 - 03.00
Hinn landskunni
ÓMAR RAGNARSSON
skemmtir matargestum
MATSEÐILL
Forréttur: Blandaðir sjávarréttir
Aðalréttur: Hamborgarhryggur
Eftirréttur: ís og ávextir, Irish coffee
Húsið opnað fyrir matargesti kl. 19.00
BG-flokkurinn leikur fyrir dansi
Miðaverð kr. 1.350,-
Pantið í tíma í síma 3803 eða 3985
Opið sjómannadag frá kl. 19.00 - 03.00
Húsið opnað fyrir matargesti kl. 19.00
Uppselt í matinn
BG-flokkurinn leikurfyrirdansi
Opnað fyrir dansgesti kl. 23.30
S jóman nadagsráð
18 ára aldurstakmark öll kvöldin
UPPSALIR
Veitinga- og skemmtistaður í hjarta bæjarins
SÍMI3985