Bæjarins besta - 03.06.1986, Qupperneq 8
í sól og sumaryl...
Mikið úrval sólgleraugna
fyrir karla, konur og börn
HAMRABORG
í
BÆJARINS
BESIA
BÆjARINS BESTA
HLERAÐI
að dómur sérfróðra sé að
kosningaúrslitin á ísafirði hafi
verið einstæð í sögu kosninga á
Islandi og þó víðar væri leitað.
Ekki hafi það komið fyrir áður
að tveir flokkar fái nákvæmlega
jafn mörg atkvæði tvennar
kosningar í röð. Petta þykir
benda til góðs heilsufars innan
þessara flokka og um leið lít-
illar endurnýjunar.
að aðfaranótt sunnudags,
þegar kosningaúrslit virtust
Ijós. hafi íhaldsmenn arkað af
stað til hinna flokkanna og
reynt að mynda nýjan meiri-
hluta strax. Það mun ekki hafa
gengið. en hins vegar er Krist-
ján Jónasson, Alþýðuflokki,
sagður vera kominn langt með
að endurreisa hinn gamla;
A+B+G
að pólitíkusar telji nú vissara
að skipta við H-Prent í næstu
kosningum. Þrír flokkar létu
prenta málgögn sín. dreifirit og
annan áróður í H-Prent fyrir
þessar kosningar. Það voru
Alþýðuflokkurinn á ísafiröi
sem bætti við sig manni. Al-
þýðubandalagið í Bolungavík
sem vann stórsigur. og S-listinn
í Súðavík sem hlaut hreinan
meirihluta; 3 menn af 5.
Þeir vinna á
sem prenta hjá H (-Prent)
að mörgum hafi þótt ræða
Péturs sýslumanns, sem hann
flutti við skólaslit Tónlistar-
skólans, vera full bláleit svona
tveimur dögum fyrir kosningar.
Töldu margir að Pétur hefði
betur látið frambjóðendur
íhaldsins eina um atkvæða-
veiðarnar.