Bæjarins besta - 01.07.1986, Page 1
BÆÍARINS BESTA
1. JULI 1986
3. ÁRGANGUR
27.
HERM SCHEPERS
Á ÍSAFIRÐI
EIMSKIP
STRANDFLUTNINGAR
AÐ SUNNAN, ALLA MIÐVIKUDAGA SÍMAR:
AÐ NORÐAN, ALLA MÁNUDAGA f KRIFSTOFA
4555
4556
Plötuburstar og hreinsivökvi.
Hreinsispólur og vökvi fyrir segul- og
myndbandstæki.
Hljómtorg
AÐALSTRÆTI 27 — Sími 3072
Ofveiði á rækjunni?
Á fimmtudaginn kom Sigrúnin
með Tjald í drætti til ísafjarðar og
hafði verið sautján tíma á leiðinni.
Tjaldur var á úthafsrækju fyrir
norðan land og fékk í skrúfuna.
Kafari var innan við hálftíma að
losa úr henni og báturinn fór strax
aftur út.
Þetta var ekki neitt, sagði Arnór
Sigurðsson skipstjóri, ekki einu
sinni rifið.
Við spurðum Arnór hvernig
hefði gengið á rækjunni.
Það hefur verið ákaflega tregt,
sagði hann. Við erum nýbyrjaðir,
fórum fyrir sjómannadaginn. Það
var ágætt þá í tvo daga, við
fengum þá fimm og hálft tonn. En
eftir sjómannadaginn hefur verið
alger ördeyða. Það er þó eitthvað
að byrja að glæðast aftur hjá
þessum stærri.
Svona var líka í fyrra og hitt-
eðfyrra, sagði Arnór. Það er alltaf
svona á þessum tíma. Rækjan er í
skelskiptum núna, hygg ég, og þá
virðist þetta deyja út. Hún er
afskaplega drulluleg og virðist ekki
vera við botninn á þessu tímabili.
En það ætti að fara að lagast
upp úr þessu. Það er að segja ef
við klárum ekki rækjuna. Flotinn á
þessu er orðinn alveg óskaplegur.
Mér líst ekkert á þetta. Allur
loðnuflotinn er kominn á rækju,
frystitogararnir hvað þá annað'. í
fyrra var veiði á togtíma þegar
farin að minnka. Ég er smeykur
um að þetta fari að segja til sín.
TEC bílaútvörp
Á vörði sem fáir leika eftir
Verö á bílútvarpi m/cassettuspilara, frá kr. 3,980,-
Komið og lítiö á gripinn og heyriö tóngæöin
0
Rafþjónusta sími 30921