Bæjarins besta


Bæjarins besta - 01.07.1986, Side 2

Bæjarins besta - 01.07.1986, Side 2
2 BÆjARINS BESTA BÆJARINS BESIA BÆJARINS BESTA kemur út á þriðjudögum. Útgefandi: H-PRENT sf., Suður- tangi 2,400 ísafjörður, sími 94-4560. Ritstjórarog ábyrgðarmenn: Sigurjón J. Sigurðsson, Stórholt 7, sími 4277 og Halldór Sveinbjörnsson, Aðalstræti 20, sími 4101. Blaðamaður: Hlynur Þór Magnússon, simar 4560 og 4446. Prentun: H-Prent sf. Pósthólf 210. Efnis- og auglýsingamóttaka í ofangreindum símum. Um forsendur menningar á íslandi Fiskveiðar eru undirstaða mannlífs á íslandi. Ef ekki væri útgerðin, þá væri hér engin menningarþjóó. Ef sjórinn væri ekki stundaður frá ísafirði, þá væri hér enginn menntaskóli og enginn tónlistarskóli. Þá væru hér engar verslanir. Og engin prentsmiðja. Byggðin við utanvert ísafjarðardjúp hefur lifað á sjófangi frá öndverðu, allt fráþvierÞuríðursundafyllir setti Kvíarmið. En löngum hafa verðmætin átt það til aó hverfa burt úr sjávarplássunum, burt frá þeim sem afla þeirra. Þannig studdist auður Vatnsfjarðar löngum við ítök í Bolungarvík. Ekki er nóg með aó útgerð frá ísafirði, Bolungan/ík, Súðavík og Suðureyri standi undir menningarlífi og mannlífi öllu á þessum stöðum. Hætt er við að Reykjavíkurborg yrði öllu fátæklegri og listahátíðirnar dauflegri ef Vestfirðingar hættu að sækja sjóinn. HÞM Iðnaðarráðherra hlynntur yfirtöku langtímaskulda Orkubús Vestfjarða Verðjöfnunargjald af raforku var afnumið með lögum 1. mars sl. Hingað til hefur OV haft verulegar tekjur af þessu gjaldi eða um 20% af heildar- tekjum sínum. Menn eru á einu máli um að þetta teknatap OV skuli ekki bætt með hækkun á gjaldskrá, heldur verði að leysa málið á annan hátt. A föstudag og laugardag var Albert Guðmundsson iðnaðar- ráðherra hér vestra að ræða þetta mál við forráðamenn OV. Kristján Haraldsson orkubússtjóri sagði í samtali við BB að Orku- búsmenn hefðu í huga ákveðna leið til lausnar og væri iðnaðar- ráðherra á sama máli. Þessi lausn er í því fólgin að Ásgeir í mál? Nýjasti bíllinn hans Ásgeirs Sigurðssonar skemmdist mikið ríkið yfirtaki langtímaskuldir OV og komi það á móti tekjutapinu af niðurfellingu jöfnunargjaldsins. Nú vonast menn til að fjármála- ráðuneytið snúist einnig á þessa sveif, sagði Kristján. í þessu efni hafa tvær leiðir verið ræddar. Auk þeirrar sem Orkubúsmenn vilja fara hefur verið rætt um að leysa málið frá ári til árs með framlögum úr ríkis- sjóði sem yrðu ígildi verðjöfnun- argjaldsins. Þá leið teljum við hins vegar varasama, sagði Kristján, því að þurfi einhvern tíma að skera eitthvað niður, er hætt við að slík framlög lendi undir hnífnum. Því væri öruggara að leysa málið í eitt skipti fyrir öll. á laugardag. Þá hálffylltist hann af vatni í Hofsá í botni Borgarfjarðar inn af Arnarfirði, skammt frá Mjólká. Vegagerðin stendur þarna í brúarframkvæmdum og hefur lagt bráðabirgðaveg yfir ána., Ásgeir sagði í viðtali við BB að Föstudagskvöld opið frá kl. 23.00 - 03.00 Hljómsveitin Dolby og Herbert Guðmundsson skemmta Laugardagskvöld opiðfrá kl. 19.00-03.00 ÞRÍRÉTTAÐUR MATSEÐILL Húsið opnað fyrir matargesti kl. 19.00 Hljómsveitin Dolby og Herbert Guðmundsson skemmta ATH! Borðapantanir í símum 4318 og 3985 UPPSALIR Veitinga- og skemmtistaður í hjarta bæjarins SÍMI3985 fjöldi manns hefði lent þarna í vandræðum, en það hefði hann ekki vitað fyrr en eftir á. Að sögn Ásgeirs voru þarna engin aðvörunarmerki og ekkert sem benti til annars en þarna væri greiðfært. Hann taldi óhappið algerlega sök Vega- gerðarinnar og kvað málshöfðun koma til greina ef þörf krefði. Fánasaga Nú á sunnudaginn sáu menn álengdar torkennilegan bláan fána á stöng í Neðstakaupstað. Þarna var reyndar kominn fáni Jörundar konungs (flatfiskfán- inn). Ekki var þó búið að endur- reisa konungdæmi Jörundar hér á ísafirði, heldur var Jón Sigurpálsson að byrja á fána- sögu íslendinga. Byggðasafn Vestfjarða hefur eignast alla fána íslands. Þeir eru fjórir talsins: Jörundarfáninn, fálkafáninn, bláhvíti fáninn og lýðveldisfáninn. Á sunndögum í sumar prýða þeir húsin fjögur í Neðstakaupstað: Turnhúsið. Faktorshúsið, Krambúðina og Tjöruhúsið, einn í einu, en síðan verða þeir allir sýndir.

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.