Bæjarins besta - 01.07.1986, Síða 6
6
BÆIARINS BESTA
Frá lesanda
Opið bréf til Ólafs
Helga Kjartanssonar.
Sæll og blessaður Ólafur mlnn.
Ég óska þér til hamingju með
árangurinn í kosningunum og að þú
skulir hafa komist í bæjarstjórn.
Þú hefur tíðkað það allnokkuð að
skrifa greinar um málefni kaup-
staðarins, og í þeim komið fram með
nokkrar ábendingar um ýmis mál.
Fyrir þetta vil ég þakka þér, því ekki
veitir af að ibúar bæjarins viti af og
geti fylgst með gangi mála svona
yfirleitt, en ekki bara í einn til tvo
mánuði á fjögurra ára fresti.
Ég get að því leyti tekið undir
hvatningu þína til bæjarbúa um að
fylgjast vel með störfum bæjar-
stjórnar.
Nú vil ég taka það fram að til þessa
tíma hef ég ekki talið neina ástæðu til
svara eóa leiðréttinga við skrif þin,
þar sem éq hef ekki talið málið mér
skylt.
Nú horfir öðruvísi við.
Þess vegna tel ég fulla ástæðu til
að gefa þér og bæjarbúum nokkrar
ábendingar og leiðréttingar við mál
þitt í síðasta tbl. BB.
Fyrsta skilyrði til að bæjarbúar taki
þig alvarlega í greinarskrifum sem
þessum, er að þú segir söguna alla.
Þetta á ekki síst við um „frásögn" af
fundi bæjarstjórnar, eins og umrædd
grein þín.
Þetta tel ég að þú hafir ekki gert
TROÐFULL BÚÐ
AF NÝJUM FATNAÐI
Fatalagerinn
MÁNAGÖTU 1 — SÍMI: 4669
Skrifstofustarf
Óskum aö ráöa starfsmann til
skrifstofustarfa.
SKIPAAFGREIÐSLA
GUNNARS JÓNSSQNAR
ÁRNAGATA 2 — 400 ÍSAFJÖRÐUR — SÍMI 3136
þegar þú minntist ekki á skýra og
ótvíræða afsökun bæjarstjóra
vegna boðunar fundarins. Haraldur
bæjarstjóri tók það skýrt fram að
hann hefði boðað fundinn.
Úr því aldursforseti féllst á að
fundurinn yrði haldinn þrátt fyrir
þessa annmarka á boðun hans,
hvers vegna nöldrar þú þá nú eftir
fundinn?
Hefði ekki verið nærtakara að láta
fundinn alls ekki fara fram og fara
þannig bókstaflega eftir ákvæði
sveitarstjórnarlaganna?
Til þess höfðuð þið tækifæri.
Nei, Ólafur minn, hér stendur ekki
steinn yfir steini. Þið í minnihluta
bæjarstjórnar báruð ábyrgð á boðun
fundarins með samþykki ykkar og
berið þar af leiðandi sökina, hafi ekki
verið rétt að því staðið.
Alveg með sömu orðum stenst
ekki mál þitt um að þið, í Sjálf-
stæðisflokknum, hafið verið rænd
tækifæri til að koma málum á
dagskrá. Þið áttuð völina.
Þau vinnubrögð sem þú lýsir eru
ekki dæmigerð fyrir eitt né neitt því
meginhluti fundarins voru fundar-
gerðir frá því fyrir kosningar. Nema
þá helst vitnisburður um hvernig
unnið var á síðasta kjörtímabili með
aðstoð Sjálfstæðismanna.
Þessi fundur gefur ekki loforð um
framhaldið hjá öðrum en ykkur
minnihlutamönnum, og sýnirvonandi
að íbúar þessa bæjar völdu rétta leið
í kpsningunum.
Ég sakna þess í grein þinni að þú
fjallar ekkert um ráðningu bæjar-
stjóra, þar sem minnihlutinn kaus að
sitja hjá og leggja þess í stað fram
sérstaka bókun um að honum væri
málið „óviðkomandi“.
Skýringin á þessari þögn þinni er
kannski eðlileg, þegar tekið er tillit til
ummæli tveggja samherja þinna
Árna Sigurðssonar og Geirþrúðar
Charlesdóttur um að þeim þætti það
voðalega leiðinlegt að geta ekki
greitt atkvæði (mega ekki greiða
atkvæði) með ráðningu bæjar-
stjórans.
Fleiri orð ætla ég nú ekki að hafa
um þetta mál, en ítreka þá ósk mína
að þú segir skýrar frá næst.
Svona mál skipta ekki svo ýkja
miklu um framtíð þessa bæjarfélags
og væri nær að ágreiningurinn væri
um eitthvað stærra en þetta.
Ég vona svo að okkur bæjar-
fulltrúum auðnist að vinna saman að
framfaramálum kaupstaðarins, og áð
treysta megi því að horft verði fram á
við en ekki til baka.
Með kratakveðju,
Halldór S. Guðmundsson
Til sölu verslunin IRPA, sem er
sérverslun með skófatnað o.fl.
Nánari upplýsingar
í símum 4544 og 4168.
SKOR & TOSKUR
Ljóninu Skeiði - sími 4168