Bæjarins besta - 01.07.1986, Síða 10
10
fr£[AR[NS BESTA
Gífurleg auðæfi fara gegnum útibú
Landsbankans á ísafirði
Rætt við Birgi Jónsson bankastjóra
Bankastjórinn í útibúi Landsbankans á ísafirði er Birgir
Jónsson. Hann tók við starfinu af Haraldi Valsteinssyni um
síðustu áramót. Birgir er Sunniendingur og hefur alið aldur
sinn að mestu á Suðurlandi. Hann er Biskupstungnamaður
að uppruna en fluttist til Selfoss og byrjaði starfsævi sína í
Landsbankanum þar fyrir rúmum tuttugu árum. Síðan hefur
hann unnið bankastörf „og kann ekkert annað” að eigin
sögn.
Lengst af hefur Birgir verið á Selfossi. Eitt sinn var hann
þó tæpt ár á Höfn í Hornafirði og tvisvar hefur hann dvalist
utan lands við nám.
Ég kom að máli við Birgi í bankanum og spurði hann fyrst
hvernig honum þætti að vera kominn hingað til ísafjarðar.
Birgir Jónsson
Þetta er auðvitað heilmikil breyting,
bæði fyrir mig og fjölskylduna, að
koma úr iðnaðarbæ í landbúnaðar-
héraði og setjast að í sjávar-
útvegsbæ. En ég get ekki annað en
verið bjartsýnn á veruna hér. Okkur
hefur verið afskaplega vel tekið. Hér í
bankanum eru mörg verkefni að fást
við og mikið líf í kringum hann. Ég hef
eignast hér eínstaklega góða vinnu-
félaga. Það hefur mikið að segja, því
að starfið er stór hluti af lífinu.
Eru viðskiptavinir bankans hér
ámóta skilvísir og gengur og
gerist?
Ég held að vanskil hér séu ekki
meiri en ég á að venjast. Auðvitað er
fólk misjafnlega á vegi statt, en það
er ekki lögbrot að vera fátækur.
Hingað eru fátækir jafnvelkomnir og
—
Afmælisboð
Landsbankans
á Isafirði
Á afmælisdaginn, þriðjudaginn
1. júlí, verður viðskiptavinum
Landsbankans boðið upp á
kaffi og afmælistertu á af-
greiðslutímanum. Allir þeir sem
eiga erfitt með að komast í
bankann á venjulegum tíma eru
líka velkomnir í afmæliskaffi kl.
5-7 um kvöldið.
Um hádegið frá hálftólf til
hálftvö verður grillveisla í
bankanum fyrir yngri kyn-
slóðina.
BB sendir afmælisbarninu og
þó einkum stjórnendum þess
og öðru starfsfólki bestu
kveðjur í tilefni dagsins.
______________________________________7
aðrir. Hins vegar er gamla sagan að
takmarkað fjármagn er til. Vandinn er
að útdeila því.
Hefur eftirspurn eftir lánsfé ekki
minnkað neitt við verðtryggingu
útlána?
Ekki verður séð að hún hafi
minnkað að neinu marki. Hér er full-
bókað í vitjunum alla daga og menn
spyrja yfirleitt ekki um kjörin.
Hvað einkennir helst þetta
bankaútibú?
Sérkenni þess er að gífurleg
auðæfi fara í gegnum það. Hér á
Vestfjörðum koma geysileg verð-
mæti á land. Hlutur Vestfirðinga í
fiskveiðum og fiskiðnaði er afar stór
ef miðað er við aðra landshluta.
Aftur á móti er sjávarútvegurinn í
heild rekinn með tapi, þannig að
fjármagnið fjarar undan okkur aftur.
Reyndar eru meðaltekjur hér mjög
háar, en spurningin er hvort fólk vill
festa peningana sína hér. Töluvert
ber á því að fólk trúi ekki á framtíð
sjávarþorpanna. Það er auðvitað
mjög alvarlegt fyrir þjóðfélagið. Við
búum hér við gullkistu þjóðarinnar.
Til þess að hægt sé að nýta hana
verður að vera hér áfram blómleg
byggð og gott og duglegt fólk.
Ef þú ættir þér eina ósk sem úti-
bússtjóri á ísafirði...
...þá mundi ég óska þess að bankinn
hér héldi áfram að vera bakhjarl
atvinnulífs og einstaklinga á Vest-
fjörðum eins og hann hefur verið í
rúm áttatíu ár.
HÞM
VERKFRÆÐISTOFA
SIGURÐAR THORODDSEN HF.
AÐALSTRÆTI 24, 400 ISAFIRÐI
Útboð
Byggingasamvinnufélagið Hlíf á ísafirði óskar
eftir tilboðum í annan áfanga byggingu sjálfs-
eignaíbúða fyrir aldraða, Hlíf II.
Verkið felst í fullnaðarfrágangi innanhúss, frá
fokheldu stigi að fullfrágengnu húsi. í húsinu
verða 42 íbúðir, auk sameiginlegrar þjónustu.
Útboðsgögn verða afhent hjá V.S.T. hf.,
Aðalstræti 24, 400 ísafirði, frá og með 27.
júní, gegn 10.000 kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð í Hlíf I, ísafirði mánu-
daginn 21. júlí 1986 kl. 11:00.
VERKFRÆÐISTOFA
SIGURÐAR THORODDSEN HF.
AÐALSTRÆTI 24. 400 ÍSAFIRÐI
Til sölu
Mazda 626 1600, árgerð 1982,
ekinn 26.000 km
Vel með farinn bíll.
Upplýsingar í síma 7459 eftir kl
19.
Til sölu
Til sölu er opnanlegur þakgluggi
(plastkúpull).
Glugginn er ónotaður 60 x 60 cm
og er á sökkli.
Upplýsingar í síma 4017.
Barnapössun
Óska eftir 12-13 ára stelpu eða
strák til að passa í Holtahverfi til
16. ágúst.
Upplýsingar í síma 3997 eftir kl. 7
á kvöldin.
Til sölu
Bronco Sport árgerð 1972, 302
cubic, sjálfskiptur + vökvastýri.
Verð kr. 80.000 staðgreitt.
Upplýsingar gefur Arnþór I vinnu-
síma 7370 og heimasíma 7118.
Til sölu
Mustang árgerð 1966, verð kr.
20.000-
Willy’s skúffa og 4 spoke felgur
10x15, 5 gata.
Upplýsingar gefur Arnþór í vinnu-
síma 7370 og heimasíma 7118.
Til sölu
Cortina árgerð 1974. Þarfnast lag-
færingar.
Upplýsingar í síma 4189.
Tapað-fundið
Tölvuúr tapaðist í eða við Vallar-
húsið þriðjudaginn 24. júní s.l. eftir
leik Stefnis og I.B.I. í 5. flokki.
Finnandi skili því í Vallarhúsið til
Hauks.
AA samtökin
Fundartími AA samtakanna á
ísafirði, að Aðalstræti 42
Sunnudaga kl. 11:00
Mánudaga kl. 18:00
Þriðjudaga kl. 21:00
Miðvikudaga kl. 21:00
Föstudaga kl. 22:30
Símatími hálfri klukkustund
fyrirfund í síma 3411
ATH
Fyrsta sunnudag hvers mán-
aðar er opinn fundur og eru
þá allir velkomnir.
AL-Anon
ísafirði
Við minnum á AL-Anon fund-
ina á mánudögum kl. 21:00.
Fundir með byrjendum hefjast
kl. 20:30 í AA-húsinu.
AL-Anon.
AA-Bolungarvík
Bolungarvíkurdeild,
fundir á fimmtudagskvöldum
kl. 21:00 í Verkalýðsfélags-
húsinu.