Bæjarins besta


Bæjarins besta - 01.07.1986, Síða 16

Bæjarins besta - 01.07.1986, Síða 16
ísfirðingar fá sterkara bensín Núna þriðjudaginn 1. júlí leggur bíll af stað að sunnan með sterka bensínið handa ísfirðingum og daginn eftirætti það að verða til sölu, að sögn Harðar Þorsteinssonar á bensínstöðinni. Annars fengu landsmenn sterka bensínið svo óvænt að víða skorti aukatanka og útbúnað. Hér á ísafirði er ekki enn hægt að geyma það í birgðaportinu, en væntanlega verður búið að leysa það mál áður en næsti farmur kemur. Hvað sem því líður verður tryggt að nýja bensínið fáist hér áfram. Hingað til hefur verið bagalegt fyrir þá sem hafa látið stilla bílana sína fyrir nýja bensinið að þurfa að nota gamla bensínið úti á landi. Bensínsjálfsali? Hörður Þorsteinsson var spurður hvort ekki væri von á sjálfsala á bensínstöðina hér. Hann sagði að ísafjörður væri ekki á dagskrá í augnablikinu, en sjálfsalinn mundi koma fyrr eða síðar. Olíufélögin þrjú eiga bensínstöðina saman, en Esso er rekstraraðili. Hörður sagði að því væri borið við að engir sjálfsalar væru tiltækir. Mikil og tíð skemmdarverk eru unnin kringum bensínstöðina, að sögn Harðar, Ijósaörvarnar brotnar aftur og aftur, vatnsslöngur skornar í sundur og um helgar eru flöskubrot um allt. Bærinn er reyndar ein hrúga af rusli og glerbrotum eftir hvíld og fögnuð helgu daganna. ...það sem keisarans er Sjálfu félagsmálaráðuneytinu auðn- aðist ekki að finna oddvita Múla- hreþps og þar smugu innfæddir undan lagaákvæðum um kosningar. En tveir eru þeir sem enginn fær umflúið: Skatturinn og dauðinn. Hætt er við að Grettir og Gisli Súrsson hefðu ekki sloppið í tuttugu ár ef Ólafur Helgi hefði verið skattstjóri á þeim tíma. VersliÓ meÓVISA K iC. v. ★ Samlokur ★ Hamborgarar ★ Smurt brauð og snittur Hjá okkurer aðeins það besta nógu gott HAMRABORG SÍMI3166 ÍSAFIRÐI m:jarins BESTA YT7 H-PRENT SFT / X \ SÍMI4560 REYKJAVK 200 ARA AFMÆUSDAGURINN 16. ÁGÚST Kl. 16:00 Sýningin „Reykjavík í 200 ár“ opnuð að Kjarvalsstöðum. Kynnt er þróun á byggð í Reykjavík, mannlíf og bæjarbragur á hverjumtíma. YfirgripsmM og forvitnileg sýning. Stendur til 28. september. 17. ÁGÚST Kl. 09:00 í Viðey. Menntamálaráðherra afhendir Reykjavíkurborg að gjöf eignir rikisins í Viðey. Kl. 11:00 Guðsþjónustur í kirkjum og messustöðum borgarinnar. Kl. 14:00 Hátíðarguðsþjónusta íDómkirkjuimi Kl. 16:00 „TæknisýningReykjavíkur" opnuð í nýja Borgarleikhúsinu. Tæknistofnanir, vélar og búnaður borgarinnar kynnt á lifandi hátt með likönum, myndum ofl. Vönduð og mjög áhugaverð sýning. Opin almenningi til 31.ágúst. AGUST Kl. 10:00 Forseti íslands kemur í opinbera heimsókn til Reykjavíkur. KL 13:30 Skrúðgöngur leggja aí stað frá Austurbæjarskóla og Melaskóla. Kl. 14:00-18:00 Fjölskylduskemmtun, samfelld dagskrá í Lækjargötu, Hljómskálagarði og Kvosinni Otrúlega fjölbreytt skemmtiatriði. íþróttakeppni, rokktónleikar, lúðrasveitir, danssýningar og margt, margt fleira. Veitingar verða einstakar: Kveikt verður lengsta grill landsins í Hljómskálagarði að ógleymdri lengstu afmælistertu í heimi á langborði. Reykvfldngum og landsmönnum öflum er boðið til veislunnar. Þetta er úrvals dagskrá fyrir afla íjölskylduna. Kl. 21:00 Leikþættir, tórflist, ávörp, dans og fleiri skemmtiatriði. Hátíðarhöldum (fagsins Pnr með mjög stórbrotinni flugeldasýningu fra Amarhófl rétt undir miðnætti. Landsbyggðarfólk Verið velkomin til höfuðborgarinnar. Samfögnum í miðborg Reykjavíkur, tökum þátt í sögulegum hátíðahöldum. 19. ÁGÚST Kl. 14:30 Reykj avíkurkvikmyndin frumsýnd í Háskólabíói. Borgin hefur látið gera þessa 90 mínútna löngu kvikmynd í tilefni afmælisins. Myndin verður sýnd áframíbíóinu. Kl. 21:00 Rokkhátíð á Amarhóli 20. ÁGÚST Kl. 21:00 Jasstónleikar á Amarhóli á vegum Jassvakningar. Þetta eru helstu dagskrár- atriðin sem Afmælisnefnd Reykjavíkur stendur að, afmælisdaginn sjálfan og dagana á undan og eftir. Auk þess er bent á ýmis mót og semkomur i tilefni afmælisins sem fjölmörg félagasamtök i borginni standa sjálf að. V ✓ ] Afmælisnefnd ffl Reykjavíkur

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.