Bæjarins besta - 06.01.1987, Síða 2
2
BÆJARINS BESTA
BÆJARINS BESTA kemur út á þriðjudögum. Útgefandi: H-PRENT sf., Suður-
tangi 2,400 ísafjörður, sími 94-4560. Ritstjórar og ábyrgðarmenn: Sigurjón J.
Sigurðsson, Stórholt 7, sími 4277 og Halldór Sveinbjörnsson, Aðalstræti 20, sími
4101. Blaðamaður: Hlynur Þór Magnússon, símar 4560 og 4446. Prentun:
H-Prent sf. Pósthólf 210. Efnis- og auglýsingamóttaka í ofangreindum símum.
Jólakrossgátan:
Búið að draga!
BB er langbest!
í síðasta blaðinu okkar á nýliðnu ári vorum við með dálitlar
upplýsingar um útgáfuna og stærð árgangsins. Niðurstaðan
var sú, að BB væri orðið stærsta blað á Vestfjörðum. Hins
vegar sögðum við af mikilli hógværð og þó laundrjúgir, að
almennings væri að dæma um það, hvert væri besta blaðið.
Og ekki stóð á viðbrögðum almennings! Okkur bárust nærri
tvö hundruð yfirlýsingar, undirritaðar af lesendum blaðsins,
svohljóðandi: BB er langbest.
Þarna var að vísu um að ræða lausnarsetninguna úr jóla-
krossgátunni, svo að við vitum ekki hvort hugur fylgdi máli í
öllum tilvikum. En þá lá fyrir að draga úr lausnunum (eða
yfirlýsingunum eða hvað á að kalla það), og þar nutum við
sem oftar liðsinnis Lárusar Bjarnasonar, fulltrúa sýslumanns.
Fyrstu verðlaun voru far fyrir tvo með Flugleiðum milli
ísafjarðar og Reykjavíkur, fram og til baka. Þau komu í hlut
Ingibjargar Sigurlaugsdóttur, Túngötu 20, ísafirði.
Onnur verðlaun voru vöruúttekt í Vöruval fyrir kr. 4.000. Þau
komu í hlut Sigurðar Þorlákssonar, Htíðarvegi 22, ísafirði.
Við þökkum kærlega fyrir þær góðu og hlýlegu viðtökur sem
krossgátugerðin okkar hefur fengið.
Ingibjörg Sigurlaugsdóttir tekur við fyrstu verðlaununum úr
hendi Arnórs Jónatanssonar, umdæmisstjóra Flugleiða.
Sigurður Þorláksson tekur við bréfi upp á önnur verðlaunin úr
hendi Benedikts Kristjánssonar, verslunarstjóra í Vöruvali.
UPPSALIR
Veitinga- og skemmtistaður í hjarta bæjarins
SÍMI 3985
Fimmtudagskvöld: Opið kl. 21 — 1
Föstudagskvöld: Opið kl. 23 — 3
Laugardagskvöld: BG FLOKKURINN leikur
fyrir dansi ásamt Stebba í diskótekinu ■
EUPOCAPD
Borðapantanir I símum 3803 og 3985
Aldurstakmark 18 ár öll kvöldin
Munið nafnskírteinin
PÓSTAFGREIÐSLUMAÐUR
Staða póstafgreiðslumanns á pósthúsinu á
ísafirði er laus. _______________
BRÉFBERI
50% starf bréfbera á pósthúsinu á ísafirði er
laust.
Upplýsingar um ofangreind störf veitir stöðvar-
stjóri. Póstur og sími
ísafirði