Vesturbæjarblaðið - febr 2020, Qupperneq 4
Me i r i h l u t i s k ó l a - og frístundaráðs Reykja víkur ákvað á dögunum að leggja til að stytta opnunar-
tíma leikskóla borgarinnar frá
og með 1. apríl næstkomandi.
Almenn ur opnunartími yrði sam-
kvæmt því frá klukkan 07:30 til
16:30 í stað 17:00. Einnig var lagt
til að börn dvelji að hámarki níu
klukkustundir á dag í leikskóla-
num. Í tilkynningu frá borginni
segir að fyrirhuguð breyting byggi
á tillögu stýrihóps um umbætur
og skipulag leikskólastarfs en í
honum eiga m.a. sæti kjörnir full-
trúar og fulltrúar leikskólastjóra
og leikskólakennara. Talsverðar
umræður hafa orðið um þessar
hugmyndir og sitt sýnist hverjum.
Vesturbæjarblaðið spjallaði við
Skúla Helgason formann skóla- og
frístundaráðs á dögunum.
Skúl i seg ir að í gögnum
stýri hópsins komi fram að á
undanförnum árum hafi dvalartími
barna í leikskóla stöðugt verið að
lengjast. Þetta hafi gerst á sama
tíma og faglærðu starfsfólki hafi
farið fækkandi. Fækkun fagfólks
megi að mestu rekja til mun minni
aðsóknar í leikskólakennaranám
undanfarinn áratug. Skúli bendir á
að stýrihópurinn telji að stytting
opnunartíma muni draga úr álagi á
börn og starfsfólk og styrkja faglegt
starf þar sem skipulag daglegs starf
verði markvissara og auðveldara
að manna leikskólana. Á móti hefur
verið bent á stytting skóladags
leikskólans komi helst niður á fólki
sem eigi erfitt vinnu sinnar vegna
að ná í börn fyrir klukkan 16.30 þar
sem margir vinni lengri vinnudag.
Færri koma inn en hverfa
af vinnumarkaði
“Tilefni þess að við fórum
að skoða þetta mál er einkum
viðvarandi kennaraskortur á
leikskólastiginu. Tillagan tengist
í raun aðgerðum okkar til að
bæta starfsumhverfi fólks sem
vinnur í leikskólunum en við
höfum samþykkt fjölda aðgerða
og varið vel á annan milljarð
króna undanfarin tvö ár í að bæta
aðbúnað starfsfólks og barna,
t.d. með fjölgun starfsfólks á eldri
deildum, fjölgun undirbúningstíma,
stækkun leikrýmis, fjármagni til
liðsheildarvinnu og margt fleira.
En eftir stendur kennaraskorturinn
sem er landlægt vandamál sem
rekja má allt aftur til lagabreytingar
2008. Staðreyndin er sú að eftir
að kennaranámið var lengt úr
þremur árum í fimm hefur aðsókn
að náminu dregist verulega saman.
Um helmingi færra fólk stundar
nú nám til kennsluréttinda en fyrir
lengingu námsins. Þetta hefur leitt
til nýliðunarvanda sem lýsir sér í
því að mun fleiri leikskólakennarar
láta af störfum vegna aldurs heldur
en útskrifast úr kennaradeildum
háskólanna. Við þetta má svo bæta
að nú þegar eitt leyfisbréf til handa
kennurum á öllum skólastigum er
orðið að veruleika telja ýmsir að
leikskólakennarar muni í auknum
mæli sækja inn í grunnskólann
þar sem vinnuumhverfið þykir að
sumu leyti sveigjanlegra. Við erum
mjög stolt af okkar leikskólum
og því frábæra starfi sem þar
fer fram og er að mörgu leyti á
heimsmælikvarða. En við verðum
að vera raunsæ með það að skortur
á fagfólki leiðir til meira álags á
alla starfsemina og við teljum það
vera okkar skyldu að bregðast við
því til að standa vörð um velferð
barnanna og gæði starfsins.”
Innan við helmingur nýtir
viðbótartímann
Skúli segir að við athugun
hafi orðið l jóst að rúmlega
helmingur þeirra foreldra sem
kaupir viðbótartíma í leikskólum
borgarinnar nýti hann ekki. “Önnur
stór sveitarfélög hafa þegar
breytt opnunartíma leikskóla á
þennan hátt. Þar má nefna að hjá
Akureyrarbæ, Reykjanesbæ og
Kópavogsbæ hefur þessi breyting
þegar verið gerð. Í Árborg var
þetta skref stígið fyrir fjórum
árum. Niðurstaða af könnun okkar
á nýtingu þessa viðbótartíma
er að foreldrar um 18% barna í
leikskólum borgarinnar kaupa
þennan tíma en aðeins um 8% nýta
hann. Því hefur verið haldið fram að
stytting leikskólatímans bitni mest á
fólki sem er í viðkvæmari stöðu. Til
dæmis einstæðir foreldrar. Þegar
við fórum að kanna þetta kom í
ljós að flestir þeirra foreldra sem
kaupa viðbótartíma eða 73% er fólk
í hjónabandi eða sambúð.”
Látum vinna jafnréttismat
Skúli segir borgarráð hafa
ákveðið að láta vinna jafnréttismat
á þessum tillögum áður en málið
komi til endanlegrar afgreiðslu.
“Við viljum leita eftir sjónarmiðum
foreldra með sérstakri könnun
og rannsaka eins nákvæmlega og
kostur er hvaða áhrif breytingarnar
kunna að hafa fyrir mismunandi
hópa foreldra. Í því sambandi
verður skoðað hvort rétt sé að
fara í einhverjar mótvægisaðgerðir
til að koma til móts við foreldra
sem eiga erfiðast með að mæta
breytingunum. Ég finn fyrir miklum
stuðningi frá leikskólasamfélaginu
og mér f innst vera vaxandi
skilningur á málinu meðal foreldra.
Ég er hins vegar ekkert undrandi
á að umræður skapist um mál af
þessu tagi. Þetta snertir fólk með
ýmsu móti.” Skúli segir talsvert
rætt um styttingu vinnudagsins um
þessar mundir. “Reykjavíkurborg
var með tilraunaverkefni af því
tagi sem hafði góð áhrif og fleiri
hafa unnið að þessu. Stytting
vinnuvikunnar er mál sem kemur
líka inn í kjarasamninga og það
er metnaðarmál okkar að ná
samningum um það við okkar
viðsemjendur enda er þetta mál
sem ég er sannfærður um að muni
hafa góð áhrif á vinnuumhverfi og
stuðla að fleiri samverustundum
fjölskyldunnar.”
Leikskólarýmum fjölgað
Skúli segir að nú sé unnið
kröftuglega að því að fjölga
l e ikskó larýmum í borg inn i
í tengslum við Brúum bil ið
aðgerðaáætlunina með það í huga
að geta innan fárra ára boðið
börnum leikskólavist strax að
loknu 12 mánaða fæðingarorlofi. Á
síðastliðnu rúmu ári hafi rýmum
t.d. fjölgað um vel á annað hundrað
með nýjum leikskóladeildum við
4 Vesturbæjarblaðið FEBRÚAR 2020
Kennaraskorturinn
er landlægt vandamál
Skúli Helgason ræðir leikskólamálin
Skúli Helgason formaður skóla- og frístundaráðs Reykjavíkur.
Nesvegur 100
Símar 562-1070, 896-4243
Opið virka daga kl. 10 - 18:30
MIKIÐ ÚRVAL SPENNANDI FISKRÉTTA
VERIÐ VELKOMIN
FERSKUR FISKUR
DAGLEGA
Staðreyndin er sú að eftir að kennaranámið var
lengt úr þremur árum í fimm hefur aðsókn að
náminu dregist verulega saman. Um helmingi
færra fólk stundar nú nám til kennsluréttinda
en fyrir lengingu námsins. Þetta hefur leitt til
nýliðunarvanda sem lýsir sér í því að mun
fleiri leikskólakennarar láta af störfum vegna
aldurs heldur en útskrifast úr kennaradeildum
háskólanna.