Vesturbæjarblaðið - feb. 2020, Blaðsíða 10
10 Vesturbæjarblaðið FEBRÚAR 2020
Gísli Marteinn Baldursson
sjónvarpsmaður vill að hámarks
hraði í Reykjavík vestan
Snorrabrautar verði lækkaður
í 30 kílómetra á klukkustund.
Þetta kemur fram á Twitter síðu
Gísla Marteins þar sem hann
segir að þetta myndi bjarga
mannslífum. Gísli tekur að lægri
hámarkshraði muni geta bjargað
mannslífum auk þess að draga
úr mengun og gera umhverfið
miklu betra.
Gísli Marteinn leggur til á
Twitter að breyta eigi Hring
brautinni í borgargötu. Hann
vísar í gögn sem sýna að
banvænum umferðarslysum
hafi fækkað í Helsinki eftir að
hámarkshraðinn var lækkaður
þar. Gísli Marteinn bendir á
að fjöldi fólks hafi slasast á
umliðnum árum. Hann bendir
á að tölur séu til um hversu
margir hafi látist. Hann segir
að skólakrakkar hafi iðulega
verið keyrðir niður við skólana
sína áður en 30 km hverfi voru
sett utan um þá. “Hraðinn er
hættulegur og fólk mun deyja
og slasast. Hraðinn veldur
hávaða og mengun og hann
er óþarfi inni í miðbæ,” segir
Gísli Marteinn Baldursson.
Vill 30 kílómetra hámarks
hraða vestan Snorrabrautar
Gísli Marteinn Baldursson staddur í Vesturbænum.
Gísli Marteinn
Nú styttist í að Marriott Edition
hótelið við hlið Hörpu taki til starfa
en gert er ráð fyrir að það verði á
vordögum eða snemma sumars. Hótelið
verður fyrsta fimm stjörnu hótelið á
höfuðborgarsvæðinu.
Nú hefur verið auglýst eftir lykil
starfsfólki á hótelið. Marriott leitar að
hótel stjóra, viðburðastjóra, einstaklingi
yfir veitingaþjónustu hótelsins, sem
og viðhaldi auk þriggja stjórnenda í
sölu og markaðsmálum. Hótelið mun
telja 250 herbergi en áætlað er að
framkvæmdakostnaður verði um 20
milljarðar króna. Upphaflega stóð til að
hótelið yrði opnað sumarið 2018. Húsnæðið
verður að meirihluta í íslenskri eigu en
Marriott mun sjá um rekstur hótelsins.
Marriott auglýsir
eftir starfsfólki
HÚSVERNDARSTOFA
Fræðslustofa um viðhald og viðgerðir eldri húsa
Ókeypis ráðgjöf í Árbæjarsafni alla miðvikudaga kl. 15 – 17 um viðhald
og viðgerðir eldri húsa og á sama tíma í síma 411 6333
Austurhöfnin í Reykjavík
þar sem Marriott Edition
hótelið verður opnað.
Landaði silfri
á skákmóti
Asveit 4.7. bekkjar Landakotsskóla í landaði silfrinu
á Reykjavíkurmóti grunnskóla sem fram fór í Taflfélagi
Reykjavíkur 3. til 4. febrúar sl.
Asveit 13. bekkjar varð einnig í 7. sæti í sínum flokki.
Landakotsskóli sendi fimm sveitir á mótið. Flottur árangur og
mikil gróska í starfinu.
Nemendur Landakotsskóla að tafli á Reykjavíkurmótinu.