Vesturbæjarblaðið - feb. 2020, Blaðsíða 8
8 Vesturbæjarblaðið FEBRÚAR 2020
Barnaskórinn við Tjörnina
er sjö ára. Stofnandi kórsins er
Álfheiður Björgvinsdóttir tón
listarkennari og kórstjóri. Hún
segir að upphaf kórsstarfsins
megi rekja til þess að Gunnar
Gunnarsson tónlistarstjóri og
organisti Fríkirkjunnar hafi
komið að orði við sig fyrir jólin
árið 2012. Hann hafi spurt sig
um hvort hún gæti útvegað
nokkur börn til að syngja á
aðventukvöldi kirkjunnar.
„Ég sló til að hóaði saman í
lítinn hóp sem söng við athöfnina
ásamt Sönghópnum við Tjörnina.
Á þeim tíma hafði ekki verið
barna kór við Fríkirkjuna um tíma
en ég hafði átt mér draum um að
koma litlum barnakór á fót. Ég
hugsaði með með mér. Af hverju
ekki núna. Fríkirkjan er dásam
legur staður og mig langaði að
bjóða börnum upp á lifandi starf
í kirkjunni. Gunnar Gunnarsson
tónlistarstjóri og séra Hjörtur
Magni Jóhannsson fríkirkju
prestur voru mjög áhugasamir
og safnaðarráðið tilbúið til
stuðnings. Þetta varð til þess að
fyrsta æfing hins nýja kórs var
haldin í mars 2013 þar sem tíu
hressir krakkar mættu til leiks.
Ég ákvað að setja ákveðin skil
yrði fyrir kórstarfinu. Þau voru að
kórinn væri opinn öllum börnum
og öllum að kostnaðarlausu.
Fríkirkjan er ekki hverfiskirkja
heldur kemur fólk víða að í
kirkjuna. Flest börnin í hópnum
sem syngja með í ár koma úr
gamla Vesturbænum en annars
koma þau víða að. Ég er til dæmis
með eina stúlku úr Kópavogi.“
Tók við Kársnesskóla-
kórnum af Þórunni
Álfheiður hefur unnið lengi
með börnum. Hún starfar sem
kennari við Kársnesskóla í
Kópavogi þar sem öflugt kórstarf
hefur verið í langan tíma. „Ég
var sjálf nemandi í Kársnesskóla
og söng í Skólakór Kársness hjá
Þórunni Björnsdóttur Tótu sem
margir þekkja af starfi hennar
með Skólakór Kársnesskóla.
Er eiginlega alin upp hjá henni
í þessu og tók svo við kórnum
þegar hún lét af störfum.“
En hvernig tengist Álfheiður
Fríkirkjunni. „Sem barn fór
ég af og til í barnamessur með
mömmu minni. Þá man ég eftir
líflegum jólaskemmtunum og
öndunum sem komu alltaf
syndandi í átt að kirkjunni þegar
bjöllurnar hringdu. Svo byrjaði
ég að syngja með sönghópnum
í kirkjunni vorið 2011. Þá bjó ég
á Baldursgötunni og því stutt að
stökkva til og syngja í messum.
Einnig var ég í Kvennaskólanum
svo Fríkirkjan hefur lengi verið í
mínu nærumhverfi.
Um 35 börn í kórnum
„Við bindum okkur ekki í neina
ákveðna tónlist. Ég reyni mikið
fremur að hafa þetta fjölbreytt.
Ég leitast við að velja lög við hæfi
barnanna en einnig að kynna fyrir
þeim fjölbreytta barnakóratónlist,
sálma og veraldleg lög. Nú eru um
35 börn á aldrinum sex til ellefu
ára í kórnum. Á hverjum þriðju
degi mæta þau til æfingar. Þá
fyllist kirkjan af kátum krökkum
og húsið yðar af lífi. Foreldrar og
systkini koma gjarnan og fylgjast
með og stundum lítur einn og
einn ferðamaður inn.”
Tökum virkan þátt í
safnaðarstarfinu
Er kórinn hluti af kirkjustarfinu?
„Já – barnakórinn tekur virkan
þátt í safnaðarstarfinu og syng
ur til dæmis í fjölskylduguðs
þjónustum einu sinni í mánuði
y f i r vetrart ímann. Kórinn
kemur einnig fram við jólahald
og páska. Kórinn hefur sýnt
leikþætti á jólaskemmtunum
og helgihald páskanna er líka
mikilvægur þáttur í kórstarfinu.
Við fjölskylduguðsþjónusturnar
fá börnin tækifæri til að koma
fram. Þau kynnast helgihaldinu
og því góða fólki sem starfar í
kirkjunni. Kórinn hefur vaxið og
dafnað síðustu árin. Við erum
að ná mjög góðum árangri en
það þarf þolinmæði til að byrja
slíkt starf frá grunni. Það er líka
frábært að vinna með Gunnari
tónlistarstjóra. Hann er fjölhæfur
tónlistarmaður. Er mikill spuna
meistari og svo er alltaf hljóm
sveit sem leikur með honum
við kirkjuathafnir.
Kórinn hefur mikið gildi
Álfheiður er spurð um gildi
barnakórsins fyrir Fríkirkjuna.
„Ég tel að hann hafi mikið gildi.
Aldrei er betur mætt en þegar við
erum með í fjölskyldu messunum.
Þá kemur fólk sem tengist
börnunum. Nánustu fjölskyldur
og stundum fleiri . Einkum
skyldmenni. Ég held að kórinn
kalli fólk í kirkjuna sem myndi
ekki annars koma. Við tengjum
þetta við fermingarbörnin og
höfum líka prófað að halda
krakkamessur. Annars er þetta í
stöðugri þróun. Barnakórastarf
er að sækja í sig veðrið og hafa
nokkrir kórar hafið starfsemi
á síðustu árum. Við höldum
bara áfram að efla sönginn því
söngurinn tengir okkur svo vel
saman. Börnin æfa í tveimur
hópum, krakkar í 1. til 4. bekk
og svo í 5. til 7. bekk. Börnin eru
dásamleg, kraftmikil og fjörug.
Ég kem alltaf glöð heim“ segir
Álfheiður að lokum.
Barnakórinn við Tjörnina setur sterkan svip á kirkjustarfið í Fríkiirkjunni og tengir ungt fólk kirkjunni.
Hér er kórinn við fjölskyldustund í kirkjunni sunnudaginn 13. október sl. Kórinn tekur reglulega þátt í
athöfnum kirkjunnar. Stjórnandi kórsins er Álfheiður Björgvinsdóttir. Mynd: Brynjólfur Bragason.
Ég kem alltaf glöð heim
Barnakórinn við Tjörnina sjö ára
- segir Álfheiður Björgvinsdóttir stofnandi og stjórnandi
Gáfu afmælis-
peninginn til Unicef
Afmælisbörn októbermánaðar í fjórða bekk Vestur
bæjarskóla tóku þá ákvörðun að gefa afmælispening sinn til
starfsemi Unicef. Afmælisbörnin fengu síðan fulltrúa frá Unicef
í heimsókn á dögunum.
Þær fræddu börnin um starfsemi samtakanna og tilkynntu í
hvað fjárhæðin nýttist, s.s. hnetumauk og vatnshreinsitöflur og
hversu mörgum það myndi hjálpa. Þær svöruðu ótalmörgum
spurningum barnanna, enda vildu þau vita heilmikið um
starfsemi Unicef víða um veröld. Þær sýndu hópnum mikið
þakklæti fyrir stuðninginn enda skiptir hann sköpum fyrir börn
um allan heim og gerir Unicef kleift að veita nauðsynlega aðstoð
um víða veröld. Við erum ákaflega stolt af okkur börnum fyrir að
gefa af sér í svona gott málefni.
Afmælisbörnin ásamt fulltrúum Unicef.
Álfheiður Björgvinsdóttir
tónlistarkennari og kórstjóri.
BÍLAVIÐGERÐIR
GRANDA
FISKISLÓÐ 83 - 101 REYKJAVÍK
S: 562 5999 S: 669 5999