Vesturbæjarblaðið - feb. 2020, Síða 8

Vesturbæjarblaðið - feb. 2020, Síða 8
8 Vesturbæjarblaðið FEBRÚAR 2020 Barnaskórinn við Tjörnina er sjö ára. Stofnandi kórsins er Álfheiður Björgvinsdóttir tón­ listarkennari og kórstjóri. Hún segir að upphaf kórsstarfsins megi rekja til þess að Gunnar Gunnarsson tónlistarstjóri og organisti Fríkirkjunnar hafi komið að orði við sig fyrir jólin árið 2012. Hann hafi spurt sig um hvort hún gæti útvegað nokkur börn til að syngja á aðventukvöldi kirkjunnar. „Ég sló til að hóaði saman í lítinn hóp sem söng við athöfnina ásamt Sönghópnum við Tjörnina. Á þeim tíma hafði ekki verið barna kór við Fríkirkjuna um tíma en ég hafði átt mér draum um að koma litlum barnakór á fót. Ég hugsaði með með mér. Af hverju ekki núna. Fríkirkjan er dásam­ legur staður og mig langaði að bjóða börnum upp á lifandi starf í kirkjunni. Gunnar Gunnarsson tónlistarstjóri og séra Hjörtur Magni Jóhannsson fríkirkju­ prestur voru mjög áhugasamir og safnaðarráðið tilbúið til stuðnings. Þetta varð til þess að fyrsta æfing hins nýja kórs var haldin í mars 2013 þar sem tíu hressir krakkar mættu til leiks. Ég ákvað að setja ákveðin skil­ yrði fyrir kórstarfinu. Þau voru að kórinn væri opinn öllum börnum og öllum að kostnaðarlausu. Fríkirkjan er ekki hverfiskirkja heldur kemur fólk víða að í kirkjuna. Flest börnin í hópnum sem syngja með í ár koma úr gamla Vesturbænum en annars koma þau víða að. Ég er til dæmis með eina stúlku úr Kópavogi.“ Tók við Kársnesskóla- kórnum af Þórunni Álfheiður hefur unnið lengi með börnum. Hún starfar sem kennari við Kársnesskóla í Kópavogi þar sem öflugt kórstarf hefur verið í langan tíma. „Ég var sjálf nemandi í Kársnesskóla og söng í Skólakór Kársness hjá Þórunni Björnsdóttur ­ Tótu sem margir þekkja af starfi hennar með Skólakór Kársnesskóla. Er eiginlega alin upp hjá henni í þessu og tók svo við kórnum þegar hún lét af störfum.“ En hvernig tengist Álfheiður Fríkirkjunni. „Sem barn fór ég af og til í barnamessur með mömmu minni. Þá man ég eftir líflegum jólaskemmtunum og öndunum sem komu alltaf syndandi í átt að kirkjunni þegar bjöllurnar hringdu. Svo byrjaði ég að syngja með sönghópnum í kirkjunni vorið 2011. Þá bjó ég á Baldursgötunni og því stutt að stökkva til og syngja í messum. Einnig var ég í Kvennaskólanum svo Fríkirkjan hefur lengi verið í mínu nærumhverfi. Um 35 börn í kórnum „Við bindum okkur ekki í neina ákveðna tónlist. Ég reyni mikið fremur að hafa þetta fjölbreytt. Ég leitast við að velja lög við hæfi barnanna en einnig að kynna fyrir þeim fjölbreytta barnakóratónlist, sálma og veraldleg lög. Nú eru um 35 börn á aldrinum sex til ellefu ára í kórnum. Á hverjum þriðju­ degi mæta þau til æfingar. Þá fyllist kirkjan af kátum krökkum og húsið yðar af lífi. Foreldrar og systkini koma gjarnan og fylgjast með og stundum lítur einn og einn ferðamaður inn.” Tökum virkan þátt í safnaðarstarfinu Er kórinn hluti af kirkjustarfinu? „Já – barnakórinn tekur virkan þátt í safnaðarstarfinu og syng­ ur til dæmis í fjölskylduguðs­ þjónustum einu sinni í mánuði y f i r vetrart ímann. Kórinn kemur einnig fram við jólahald og páska. Kórinn hefur sýnt leikþætti á jólaskemmtunum og helgihald páskanna er líka mikilvægur þáttur í kórstarfinu. Við fjölskylduguðsþjónusturnar fá börnin tækifæri til að koma fram. Þau kynnast helgihaldinu og því góða fólki sem starfar í kirkjunni. Kórinn hefur vaxið og dafnað síðustu árin. Við erum að ná mjög góðum árangri en það þarf þolinmæði til að byrja slíkt starf frá grunni. Það er líka frábært að vinna með Gunnari tónlistarstjóra. Hann er fjölhæfur tónlistarmaður. Er mikill spuna­ meistari og svo er alltaf hljóm­ sveit sem leikur með honum við kirkjuathafnir. Kórinn hefur mikið gildi Álfheiður er spurð um gildi barnakórsins fyrir Fríkirkjuna. „Ég tel að hann hafi mikið gildi. Aldrei er betur mætt en þegar við erum með í fjölskyldu messunum. Þá kemur fólk sem tengist börnunum. Nánustu fjölskyldur og stundum fleiri . Einkum skyldmenni. Ég held að kórinn kalli fólk í kirkjuna sem myndi ekki annars koma. Við tengjum þetta við fermingarbörnin og höfum líka prófað að halda krakkamessur. Annars er þetta í stöðugri þróun. Barnakórastarf er að sækja í sig veðrið og hafa nokkrir kórar hafið starfsemi á síðustu árum. Við höldum bara áfram að efla sönginn því söngurinn tengir okkur svo vel saman. Börnin æfa í tveimur hópum, krakkar í 1. til 4. bekk og svo í 5. til 7. bekk. Börnin eru dásamleg, kraftmikil og fjörug. Ég kem alltaf glöð heim“ segir Álfheiður að lokum. Barnakórinn við Tjörnina setur sterkan svip á kirkjustarfið í Fríkiirkjunni og tengir ungt fólk kirkjunni. Hér er kórinn við fjölskyldustund í kirkjunni sunnudaginn 13. október sl. Kórinn tekur reglulega þátt í athöfnum kirkjunnar. Stjórnandi kórsins er Álfheiður Björgvinsdóttir. Mynd: Brynjólfur Bragason. Ég kem alltaf glöð heim Barnakórinn við Tjörnina sjö ára - segir Álfheiður Björgvinsdóttir stofnandi og stjórnandi Gáfu afmælis- peninginn til Unicef Afmælisbörn októbermánaðar í fjórða bekk Vestur­ bæjarskóla tóku þá ákvörðun að gefa afmælispening sinn til starfsemi Unicef. Afmælisbörnin fengu síðan fulltrúa frá Unicef í heimsókn á dögunum. Þær fræddu börnin um starfsemi samtakanna og tilkynntu í hvað fjárhæðin nýttist, s.s. hnetumauk og vatnshreinsitöflur og hversu mörgum það myndi hjálpa. Þær svöruðu ótalmörgum spurningum barnanna, enda vildu þau vita heilmikið um starfsemi Unicef víða um veröld. Þær sýndu hópnum mikið þakklæti fyrir stuðninginn enda skiptir hann sköpum fyrir börn um allan heim og gerir Unicef kleift að veita nauðsynlega aðstoð um víða veröld. Við erum ákaflega stolt af okkur börnum fyrir að gefa af sér í svona gott málefni. Afmælisbörnin ásamt fulltrúum Unicef. Álfheiður Björgvinsdóttir tónlistarkennari og kórstjóri. BÍLAVIÐGERÐIR GRANDA FISKISLÓÐ 83 - 101 REYKJAVÍK S: 562 5999 S: 669 5999

x

Vesturbæjarblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.