Vesturbæjarblaðið - feb. 2020, Side 9
9VesturbæjarblaðiðFEBRÚAR 2020
Gamla húsið í Vesturbænum er að þessu sinni Unuhús eða Garðastræti. Húsið var byggt árið 1896
af Guðmundi Jónssyni apótek
ara. Það var um langa tíð eitt
þekktasta hús Reykjavíkur.
Saga þess hófst í upphafi 20.
aldar þegar ungt listafólk voru
heimagangar í húsinu. Má þar
nefna Stefán frá Hvítadal, Stein
Steinarr, Nínu Tryggvadóttur
myndlistarmann, Guðmund G.
Hagalín, Þorberg Þórðarson
og síðast en ekki síst Halldór
Kiljan Laxness sem öðrum
fremur hefur gert þeim tíma skil
þegar menningarlíf blómstraði
í Unuhúsi. Einkum í bókinni
Skálda tímar en Erlend ur í
Unuhúsi er einnig talinn vera
fyrirmynd að organistanum
í Atómstöðinni svo nokkurs
sé getið.
Húsið er nefnt eftir Unu Gísla
dóttur eiginkonu Guðmundar.
Una annaðist matsölu og hafði
kostgangara eins og það var
kallað og leigði einnig út aðstöðu
til gistingar. Fæði og húsnæði
þótti í lægri kanti hjá henni og
því drógust þangað ýmsir sem
höfðu takmörkuð auraráð. Ekki
síst skáld og listamenn en einnig
fólk sem átti sér hvergi höfði að
halla. Una lést árið 1924 og þá tók
sonur þeirra hjóna, Erlendur við
og hélt uppi merki móður sinnar
sem gestgjafi og velgjörðarmaður
þeirra sem vöndu komur sínar í
Unuhús. Erlendur var umtalaður
í Reykjavík. Í minningarorðum
um hann má finna eftirfarandi lýs
ingu: "Mjer er það hulin ráðgáta
hvernig Erlendur öðlaðist alla
þá þekkingu, er hann hafði. Það
duldist engum, sem við hann
talaði, að þar var hámenntaður
maður. En þó var hugljúfust prúð
mennska hans og ráðhollusta. Þar
átti hann engan sinn líka."
Gestur kaupir húsið
Gestur Ólafsson skipulags
fræðingur og arkitekt festi kaup
á Unuhúsi ásamt þá verandi
eiginkonu sinni Ernu Ragnars
dóttur um miðjan áttunda
áratug liðinnar aldar. Þau keyptu
húsið af föður Ernu Ragnari
Jónssyni sem kenndur var við
smjörlíkisgerðina Smára og
var þekktur útgefandi og list
unnandi í Reykjavík um langt
skeið. Ragnar hafði keypt húsið
af Erlendi Guðmundssyni árið
1941 á 45 þúsund krónur sem
þótti nokkuð hátt kaupverð
ásamt því skilyrði að hann mætti
búa þar til dauðadags. Talið er
að þessi gjörningur hafi orðið
vegna þess að Erlendur hafi
viljað forða vini sínum Halldóri
Kiljan Laxness frá gjaldþroti
og Ragnar hlaupið undir bagga
með þessum hætti. Húsið var
illa farið er Gestur og Erna festu
kaup á því en Gestur taldi það
menningarsögulegt slys að rífa
það. Þau ákváðu að endur byggja
húsið í upprunalegri mynd.
Garðastæri hafi þá verið hækkað
og því þurfti að hækka húsið til
samræmis og flytja það neðar í
lóðina. Einnig þurfti að einangra
húsið sem mun hafa verið lítið
eða ekkert einangrað. Einnig varð
að byggja við það vegna þess að
húsaskipan og stærð herbergja
var með þeim hætti að hún hent
aði ekki lífsstíl fólks á síðasta
hluta 20. aldar. Var viðbyggingin
þannig úr garði gjörð að taka
mætti hana niður síðar. Árið
1987 kviknaði í húsinu og var þá
aftur hafist handa um endurbygg
ingu þess því sem næst í hinum
upprunalega stíl. Húsið er enn í
eigu Gests Ólafssonar.
Aumingi sem yrði að
hjálpa og lækna
Sú saga er til af Unu í Unuhúsi
að um haust hafi frændkona
hennar komið utan af landi til
að læra saumaskap í Reykjavík.
Hún hafi fengið herbergi og fæði
hjá Unu gegn því að ræsta fyrir
hana neðri hæð hússins sem hún
mun hafa gert af myndarskap.
Skömmu síðar á önnur stúlka
að hafa flotið inn til Unu. Einnig
ættuð utan af landi. Sú var
húsnæðislaus og mun hafa haft
að litlu að hverfa. Una tók hana
inn á heimilið en hafði ekkert
pláss annað en að setja hana í rúm
hjá frændstúlkunni. Þegar henni
spurðust að nýja mærin væri
nokkuð fyrir karlmenn og tæki
jafnvel fé fyrir greiðann frábað
hún sér að hafa hana í sínu rúmi.
Þá stóð Una frammi fyrir vanda
sem hún leysi. Hún lét frænku sína
fara en hélt götustelpunni. Hún
sagði frænkuna myndarstúlku
með gott mannorð og hún myndi
auðveldlega spjara sig en hin væri
aumingi sem sem yrði að hjálpa
og lækna.
Unuhús var friðað af mennta
málaráðherra 28. nóvember
2008 og nær friðunin til ytra
byrðis hússins að undanskilinni
viðbyggingu við austurhlið, sem
byggð var árið 1979.
Unuhús eða Garðastræti. Húsið var byggt árið 1896 af Guðmundi Jónssyni apótekara. Það var um langa
tíð eitt þekktasta hús Reykjavíkur.
Unuhús við Garðastræti