Vesturbæjarblaðið - sept 2020, Qupperneq 13

Vesturbæjarblaðið - sept 2020, Qupperneq 13
13VesturbæjarblaðiðSEPTEMBER 2020 Gómsæti í göngufæri Geirsgata 1 • Sími 511 1888 Afgreiðslutími: Mán: 11-16 Þri-fös: 11-18 Lau: 11-16 ÓÐINSGÖTU 1, REYKJAVÍK systrasamlagid.is @systrasamlagid Sími: 511 6367 PASSA ORKUNA! Wild Grace í nýjum hæðum Mögnuð húðlína, sem færir húðinni aðeins það besta og nákvæmasta úr náttúrunni. Ayurveda í nýjum hæðum. Jóga & lífið Föt, jógadýnur og fallegir fylgihlutir úr fallegasta hráefninu. Passaðu orkuna. Varnarpakkinn frá Virdian Sem við mælum með að þú takir inn daglega til að verjast pestum, nærast og halda góðri heilsu. Bragðmikill Boðefnabar Njóttu bestu hráefnanna. Margt er vegan, hellingur glútenlaus, flest lífrænt, ekkert bragðlaust. Úthlutun styrkja í félagsstarf á vegum félagsmiðstöðva Velferðarsviðs í Vesturbæ, Miðborg og Hlíðum Heiti potturinn Úthlutun styrkja í félagsstarf á vegum félagsmiðstöðva Velferðarsviðs í Vesturbæ, Miðborg og Hlíðum Heiti potturinn Heiti potturinn er sjóður sem styrkir opið félagsstarf í félagsmiðstöðvum og samfélagshúsum í Vesturbæ, Miðborg og Hlíðum. Félagsstarf í félagsmiðstöðvum/ samfélagshúsum Velferðasviðs er vettvangur samskipta og skapandi athafna til þess að koma í veg fyrir félagslega einangrun. Einstaklingar og hópar geta sótt um styrki vegna verkefna í opnu félagsstarfi s.s. vegna námskeiða, ferðalaga, íþróttaiðkunar, fræðslu og skemmtana. Leitast skal við að veita styrki til verkefna sem eru opin öllum þátttakendum í félagstarfi og falla að hlutverki félagsmiðstöðva/samfélagshúsa eða teljast á annan hátt vera í samræmi við stefnumörkun, áherslur og forgangsröðun í félagsstarfi. Sjóðurinn styrkir einnig eflingu og þróun á verkefnum sem þegar eru í gangi. Markmið: • Að auka þátttöku og virkni í opnu og sjálfbæru félagsstarfi. • Að auka hlut íþróttaiðkunar og hreyfingar í opnu og sjálfbæru félagsstarfi. • Að efla fræðslu og miðlun upplýsinga í opnu og sjálfbæru félagsstarfi. • Að rækta félagsauð og auka fjölbreyti í opnu og sjálfbæru félagsstarfi. Reglur: • Umsækjendur séu eldri en 18 ára. • Verkefnið verði framkvæmt í Vesturbæ, Miðborg og Hlíðum. • Úthlutað verður allt að 1.000.000 kr. • Sjálfstæðir hópar, félög eða einstaklingar geta fengið styrk úr sjóðnum. • Við upphaf verkefnis skrifar styrkþegi undir samning um framkvæmd verkefnisins. • Í lok verkefnis skulu styrkþegar gera grein fyrir ráðsstöfun styrksins með lokaskýrslu. • Styrkurinn er skattskyldur. Umsókn skal senda inn á netfangið: hordur.heidar.gudbjornsson@reykjavik.is Nánari upplýsingar veitir Hörður Heiðar Guðbjörnsson í Þjónustumiðstöð Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða, sími – 411-1600 Umsóknarfrestur er til og með 15. október 2020. Umsóknareyðublöð má nálgast á heimasíðu Þjónustumiðstöðvar Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða, eða með því að hafa samband við Hörð.

x

Vesturbæjarblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.