Vesturbæjarblaðið - sep. 2020, Blaðsíða 15
Bakhjarlar KR körfu er félagsskapur
sem er orðinn rúmlega 40 ára gamall.
Þessi hópur hefur það að markmiði að
styðja dyggilega við körfuknattleiksdeild
KR, bæði fjárhagslega og félagslega.
Þungavigtarmenn í þessum félagsskap eru
körfuboltagoðsagnirnar og KR-ingarnir
Einar Bollason og Kolbeinn Pálsson. Þeir
hvetja alla Vesturbæinga og KR-inga að
styðja við starfið. Við ræddum við þá félaga
á dögunum.
Byrjum aðeins á Bakhjörlum KR körfu,
hvenær byrjaði þetta og af hverju?
Kolbeinn: “Starf Bakhjarla KR körfu hófst
í rauninni árið 1978. En þá var ákveðið að fá
John Hudson til liðs við KR, Hudson hafði
komið til greina hjá Chicago Bulls en endaði
hjá okkur. Við urðum tvöfaldir meistarar
með hann innanborðs það tímabil. Markmið
hópsins þá var að fjármagna allan kostnað
varðandi komu hans til landsins.”
Einar bætir við: “Okkur tókst það virkilega
vel á þessum tíma og með samheldni næstu
ár tókst fjáröflunin með miklum ágætum,
körfuboltanum í KR til heilla.”
En hverjir hafa verið í þessum hópi?
Einar tekur boltann: “Til að byrja með
var þetta mjög stór hópur Vesturbæinga og
KR-inga en með tímanum hafa þetta einkum
verið leikmenn frá fyrri gullaldarárum KR
eða frá 1965 til 1979, en þessi hópur vann 7
Íslandsmeistaratitla og 7 bikarmeistaratitla á
þessum árum.”
Kolbeinn segir þetta vera góðan hóp af
traustum KR-ingum: “Þessi hópur hefur
haldið mjög vel saman, þeir ´yngri´ leika golf
saman og ´eldri´ ganga, halda þorrablót og
ferðast saman og að sjáfsögðu mætum við á
alla leiki. Það sem önnur félög öfunda okkur
af er þetta sterka bakland sem deildin hefur
í okkur.”
Nú eruð þið þessa dagana að vinna í því að
stækka hópinn og yngja upp, hverjir ættu að
ganga til liðs við Bakhjarla?
Kolbeinn: “Á þessum erfiðu tímum viljum
við sjá samstöðu allra Vesturbæinga og
KR-inga, það er skylda okkar að styðja á bak
við félagið okkar. Þess vegna viljum við hvetja
alla sem hafa tök á, að gerast Bakhjarlar
KR körfu, stuðningur nærumhverfisins er
gríðarlega dýrmætur fyrir það öfluga starf
sem körfuknattleiksdeildin er að sinna.”
Einar segir mikilvægt að yngri kynslóðir
komi inn og láti til sín taka: “Við erum kannski
komnir af léttasta skeiðinu, en erum auðvitað
hvergi nærri hættir. Það er samt mikilvægt
að fá fleiri inn í hópinn og þá ekki síst yngri
kynslóðir. Ég er að tala um fyrrverandi
leikmenn meistaraflokkanna, fyrrum
iðkendur, dygga stuðningsmenn, gamla og
nýja Vesturbæinga, það eru allir velkomnir í
hópinn. Svo þurfum við líka yngri og kannski
sprækari menn og konur en okkur tvo til taka
við keflinu í framtíðinni, kynslóðaskipti taka
sinn tíma og því um að gera að byrja strax.”
Þið talið um mikilvægi þess að deildin
hafi öfluga bakhjarla, útskýrið það
aðeins nánar
Kolbeinn: “KR er að vinna mikilvægt
uppeldisstarf hér í Vesturbænum, kenna
börnum að vinna saman, tapa saman og virða
hvort annað. Meistaraflokkar karla og kvenna
eru öflugasta markaðsetning okkar til þess að
hvetja börn til íþróttaiðkunar.”
Einar tekur undir með Kolbeini: “Við viljum
sjá Baklandið styrkjast, við höfum verið í
talsverðum mótvindi síðan að mótið var
flautað af í mars síðastliðnum, það er erfitt
að afla fjár á Covid-tímum, úrslitakeppnin
var flautuð af og KR varð af drjúgum tekjum.
Það er akkúrat í þessum aðstæðum sem við
verðum öll að standa saman, mæta á leikina
og styðja Stórveldið KR.”
En svona í lokin, hvernig líst ykkur á
komandi tímabil?
Einar fær að byrja: “Ég er bjartsýnn
á karlaliðið, það er mikið af ungum
og efnilegum KR-ingum og eldri
landsliðsmönnum og það sem hefur einkennt
liðið er að mikill meirihluti þess eru uppaldir
KR-ingar. Ég er bjartsýnn á góðan árangur í
vetur. Ég fór að sjá strákana spila æfingaleik
við Blika um daginn, þar sá ég frábæra
KR-inga með sjálfstraustið í lagi. Kvennaliðið
er kannski erfiðara að meta á þessum
tímapunkti, en við treystum stjórn og þjálfara
til að það nái tilætluðum árangri.”
Kolbeini líst vel á veturinn: “Varðandi
karlaliðið þá gerum við kannski ekki þá kröfu
á þessum tímapunkti til þeirra að verða
Íslandsmeistarar, en við trúum því að þeir
geti það. Við erum með flott lið í höndunum,
það er björt framtíð með frábæra unga
leikmenn sem eiga framtíðina sannarlega
fyrir sér ásamt frábærum eldri leikmönnum
sem eru gegnheilir KR-ingar, svo erum
við með ungan mjög góðan þjálfara, enda
uppalinn KR-ingur. Stelpurnar hafa orðið fyrir
mikill blóðtöku en við erum bjartsýnir með
unga og efnilega leikmenn, góðan þjálfara
og væntanlega góða erlenda leikmenn,
stelpurnar okkar eru til alls líklegar.”
Kolbeinn fær svo að eiga lokaorðin:
“Við leitum stuðnings hjá Vesturbæingum
og KR-ingum, gangið til liðs við Bakhjarla
KR körfu, stöndum saman, öll sem ein.
Áfram KR!”
Það er óhætt að taka undir þessi orð þeirra
félaga, það er mikilvægt að styðja vel við
hverfisliðið okkar hér í Vesturbæ. Nánari
upplýsingar um Bakhjarla KR körfu er að finna
á vef körfuknattleiksdeildar KR: krkarfa.is
15VesturbæjarblaðiðSEPTEMBER 2020
Nú er þörf á að styðja KR
þjóðminjasafni Íslands
VESTURBÆINGAR VERIÐ VELKOMIN Á KAFFITÁR ÞJÓÐMINJASAFNI ÍSLANDS, SUÐURGÖTU 41, 101 REYKJAVÍK.
kaffitár frá býli í bolla kaffitár frá býli í bolla kaffitár frá býli í bolla kaf
fitá
R
fr
á b
ýl
i í
bo
ll
a
k
af
fit
ár
f
rá
bý
li í
bo
lla
sögulega
gott kaffi
Einar Bollason, Kolbeinn Pálsson, Brynjar Þór Björnsson, Kristinn Stefánsson og
Gunnar Gunnarsson.
- Einar Bollason og Kolbeinn Pálsson hvetja Vesturbæinga til að styðja KR í körfubolta