Nesfréttir - feb. 2020, Blaðsíða 8
8 Nesfrétt ir
KOMDU MEÐ BÍLINN
Í TJÓNASKOÐUN
Vottað réttinga- og málningarverkstæði
GB Tjónaviðgerðir er réttinga- og málningarverkstæði vottað af Bílgreinasambandinu.
Við tryggjum hámarksgæði með því að nota fyrsta flokks tækjabúnað og efni.
Styðjumst við tækniupplýsingar framleiðanda um hvernig skuli staðið að viðgerð.
Rétting og málning
Við vinnum eftir stöðlum framleiðenda
og notum aðeins viðurkennd efni og
tækjabúnað sem stenst ítrustu kröfur.
Smáviðgerðir
Samhliða viðgerðum getum við skoðað
ástand helstu slitflata og öryggisþátta,
s.s. bremsur.
Tjónaskoðun
Við skoðum bílinn og undirbúum
tjónamatið sem sent er til
tryggingafélaga.
Framrúðuskipti
Skiptum um framrúður og önnumst
annars konar rúðuskipti. Sjáum um öll
rúðutjón jafnt límdar rúður sem og
aðrar, ásamt glerhreinsun á bíl.
Dragháls 6-8
110 Reykjavík
sími 567 0690
netfang tjon@tjon.is
www.tjon.is
Stanslaust stuð á Safnanótt bókasafnsins
Margt var um manninn á Safnanótt Bókasafns Seltjarnarness föstudaginn 7. febrúar. Á bilinu 200 til 300 manns tóku þátti í viðburðinum. Fólk virtist skemmta sér hið besta og staldraði
lengi við enda afar metnaðarfull og þétt dagskrá í boði.
Gleðin skein úr hverju andliti þegar að söngleikhópurinn Tónafljóð söng
og lék þekktustu Disney-lögin og krakkarnir. Spennan magnaðist svo bara
þegar að Jón Víðis sýndi stórkostleg töfrasýningu og hreif börnin með sér
um töfraheima. Margir krakkar voru snöggir að bjóða Jóni fram aðstoð sína
við töfrabrögðin sem skapaði bæði mikla undrun og kátínu hjá þeim og
áhorfendum. Í framhaldi af töfrasýningunni bauð Jón upp á töfrasmiðju og
kenndi þeim sem vildu alls kyns töfrabrögð.
Unga fólkið tók svo völdin á sviðinu og heillaði gesti með fallegum söng
og hljóðfæraleik. Fyrst var það Þór Ari Grétarsson sem tók tvö falleg lög
en síðan hljómsveitin Skelin Dion sem var líka alveg frábær. Einstakt tríó
tróð svo upp þegar að líða tók á Safnanótt en það var skipað tveimur
fyrrverandi bæjarlistamönnum þeim Ara Braga Kárasyni og Friðriki
Karlssyni ásamt Þorbergi Skagfjörð. Þeir spiluðu mjög svo hressandi Latin
og Bossanóva tónlist.
Allt kvöldið var boðið upp á fjölbreytt Disney-fjör í barnadeildinni og
horfa á Mikka mús teiknimyndir. Sýningar voru í gangi í barnadeildinni
og í Gallerí Gróttu. Um kvöldið var ennfremur hægt að taka þátt í ratleik,
getraun og spila bingó við miklar vinsældir gesta enda fjöldi vinninga í
hverri umferð. Enginn þurfti að verða svangur á Safnanótt því boðið var
upp á pylsur, ávexti og drykki.
Safnanóttin þetta árið var virkilega vel heppnuð og skemmtileg en um
er að ræða árlegan viðburð og hluti af Vetrarhátíð á höfuðborgarsvæðinu
sem er sífellt að festa sig betur í sessi.
- fólk skemmti sér konunglega