Nesfréttir - feb. 2020, Blaðsíða 7
Nesfrétt ir 7
Börn í Leikskóla Seltjarnarness brugðu sér af bæ í tilefni dags
leikskólans sem haldinn var hátíðlegur í leikskólum landsins
fimmtudaginn 6. febrúar. Börnin heimsóttu hinar ýmsu stofnanir
á Seltjarnar nesi. Hópa leikskólabarna mátti meðal annars sjá í
hjúkrunarheimilinu Seltjörn, Valhúsaskóla, í þjónustukjarna við
Skólabraut og á bæjarskrifstofum Seltjarnarnesbæjar.
Sjötti febrúar er merkilegur dagur í sögu leikskólans því það var á þessum
degi árið 1950 sem frumkvöðlar leikskólakennara stofnuðu fyrstu samtök sín,
eða fyrir sléttum 70 árum. Leikskólakennarar, stjórnendur leikskólanna og
starfsfólk notar daginn til að vekja athygli á fagmennsku og því frábæra starfi
sem unnið er í leikskólum landsins á degi hverjum. Þetta er í 13. skipti sem
deginum er fagnað með formlegum hætti.
Þessi flotti hópur úr Holti heimsótti bæjarskrifstofurnar.
Menntun og tækifæri
Samfylking Seltirninga boðar til aðalfundar og opins fundar um menntamál. Þessar vikurnar
stendur yfir vinna við gerð nýrrar menntastefnu fyrir Seltjarnarnes sem mun ná yfir leik-,
grunn- og tónlistarskóla Seltjarnarness ásamt frístundarmiðstöð. Gestir fundarins verða
Skúli Helgason sem mun kynna nýja menntastefnu Reykjavíkurborgar og Þorleifur Örn
grunnskólakennari sem mun fara yfir sóknartækifæri í grunnskólastarfi.
Dagskrá
19:30 - Hefðbundin aðalfundarstörf
20:00 - Skúli Helgason - Ný menntastefna
20:15 - Þorleifur Örn - Sóknartækifæri
20:30 - Almennar umræður um menntamál
Hvar og hvenær?
- Þriðjudaginn 25. febrúar
- Bókasafni Valhúsaskóla
- Milli 19:30 og 21:30
- Boðið verður upp á kaffi og með því
leikskólabörn á faraldsfæti