Breiðholtsblaðið - 01.11.2020, Blaðsíða 2
2 Breiðholtsblaðið
Útgefandi: Borgarblöð ehf.
Eiðistorgi 13-15 • 172 Seltjarnarnes • Pósthólf 171
Rit stjóri: Þórður Ingimarsson • Sími 551 1519 • 893 5904
Netfang: thordingimars@gmail.com
Auglýsingasími: 511 1188 • 552 1953 • 895 8298
Heimasíða: borgarblod.is
Net fang: borgarblod@simnet.is
Framkvæmda- og aug lýs inga stjóri: Krist ján Jó hanns son
Um brot: Valur Kristjánsson
Prentun: Landsprent ehf.
Dreif ing: Póstdreifing ehf.
11. tbl. 27. árgangur
Breiðholtsblaðið er dreift frítt í öll hús í Breiðholti
NÓVEMBER 2020
D immt er yfir mannlífinu á þessum haustnóttum. Kórónaveiran bítur enn. Fólk flýr undan henni. Margir
halda sig heima. Ferðast jafnvel innan húss. Eins og þeir geta.
Margvísleg starfsemi er í dróma. Ferðaþjónustan er horfin. Allavega um skeið. Lista- og menningarstarf er í láginni.
Margir hafa misst mikið af tekjum. Eða atvinnu sína.
S tjórnvöld hafa reynt að koma til móts við fólk eftir mætti. Þau ráða ekki við allt. Ekki þegar samfélagið er heltekið.
Flest snýst um að forðast veiruna. Eða bægja henni burt. Ekki
er enn ljóst hvernig þeirri baráttu líkur þótt dregið hafi úr
umferð hennar öðru sinni á árinu.
Landið er enn að mestu lokað. Landsmenn eru nánast átt-haga fjötraðir. Rétt eins og fyrr á árum. Þegar gjaldeyrishöft
og fáir farmöguleikar héldu fólki í greipum.
Verslanir kaupa inn í meira mæli. Salan verður meiri. Fólk fer ekki utan til að kaupa. Ef það hefur einhverju að eyða.
Vandi margra hefur aukist. Hann sést í sókn til hjálparstofnana. Aðrir reyna að þrauka við þröngan kost.
Erfitt er að sjá hversu mikið úthald fólk hefur fyrir þessari tilveru. Eins og hún birtist nú. En heldur ró sinni.
Vonandi hverfur veiran á braut. Hversu lengi hún verður að það veit enginn enn.
Samfélagið sem rís úr þessari dimmu getur breyst. Áherslur geta orðið aðrar. Lífsvenjur fólk verði með öðru móti þegar
birtir til.
Dimmt á haustnóttum
www.borgarblod.is
Hafðu lyfin tilbúin þegar þú sækir
Pantaðu tiltekt á appotek.is
eða í síma 568 0990
Garðs Apótek - í leiðinni
Fáðu lyfin send heim með póstinum
Pantaðu sendingu á appotek.is
Garðs Apótek - um land allt
Sogavegi við Réttarholtsveg og Miklubraut
Opið kl. 9-18 virka daga, lokað um helgar
Hætt hefur verið við að byggja mislæg gatnamót
á mótum Arnarnesvegar og Breiðholtsbrautar.
Byggð verður brú og ljósastýrð vegamót sett upp.
Talið er að þessi framkvæmd hafi minna rask í
för með sér en mislæg gatnamót með tilheyrandi
umferðaslaufum. Með þessari leið er ætlunin að
hljóðvist muni batna fyrir nálægar íbúðir í Fella
hverfi. Breytt útfærsla hafi ennfremur ekki áhrif
á fyrirhugaðan Vetrargarð í Breiðholti og bæti
samgöngur gangandi og hjólandi. Arnarnesvegur
er hluti af samgöngusáttmála höfuðborgarsvæði
sins sem sveitarfélögin á svæðinu og Vegagerðin
standa í sameiningu að. Stefnt er að því að útboð
vegna verksins fari fram á næsta ári.
Á vef Reykjavíkurborgar kemur fram að gert er
ráð fyrir að Arnarnesvegur fari á brú yfir Breiðholts-
braut en mæti götunni í plani á ljósastýrðum
gatnamótum. Gatnamótin verða með þessari lausn
ekki eins landfrek og inngrip í landslag og jarðrask
og efnisflutningar verða mun minni en í öðrum
mögulegum lausnum. Þá verður með brúnni til góð
leið fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur milli
Elliðaárdals, Seljahverfis og efri byggða Kópavogs.
Gert er ráð fyrir að hljóðvist verði undir viðmiðu-
narmörkum vegna smíði 1,5 metra hás hljóðveggs á
brú og rampa við Breiðholtsbraut auk endurbættrar
hljóðmanar milli nýrra gatnamóta og undirganga
milli Jaðarsels og Suðurfells.
Hringtorg við Vatnsendahvarf
Gert er ráð fyrir hringtorgi við Vatnsenda-
hvarf, einni brú yfir Breiðholtsbraut fyrir akreinar
og stíga, og tengingu við Breiðholtsbraut með
umferðar ljósum. Núverandi ljósastýrð vegamót við
Vatnsenda veg verða felld niður en þó verða þar
leyfðar hægribeygjur. Talið er að þessu útfærsla
skapi aukið rými við skíðabrekku í Reykjavík miðað
við þær lausnir sem samþykktar voru í mati á
umhverfisáhrifum og tekur jafnframt minna rými
norðan Breiðholtsbrautar. Á vef Vegagerðarinnar
kemur fram að munur á þeirri tillögu sem nú liggur
fyrir og þeirri sem samþykkt var í matsferlinu sé sá
að ekki verði um fullbúin mislæg vegamót að ræða
heldur ljósastýrð vegamót.
Vetrargarðurinn hafður í huga
Þegar hverfisskipulag fyrir Breiðholt var kynnt
fyrr í haust bárust margar athugasemdir þar sem
var lýst yfir áhyggjum af því að fyrirhuguð lagning
Arnarnesvegar myndi skerða Vetrar garðinn sem á
að reisa efst í Seljahverfi. Þessi nýja blandaða lausn
fyrir gatnamót við Breiðholtsbraut er hagkvæm fyrir
garðinn og þá fjölbreyttu starfsemi sem gert er ráð
fyrir að verðu þar allan ársins hring.
Engin mislæg gatnamót
Á myndinni má sjá hvernig Arnarnesvegur mun liggja á milli Kópavogs og Breiðholts með tengingu inn á
Breiðholtsbraut.
- á mótum Arnarnesvegar og Breiðholtsbrautar
Tölvur og gögn ehf.
þ e k k i n g o g r e y n s l a
T& G PC & Mac
Þarabakki 3, Mjódd
109 Reykjavík
Sími: 696-3436
www.togg.is
• Office 365 þjónusta
• Gagnabjörgun og afritun
• Umsjón tölvukerfa
• Vefsíðugerð og umsjón
• Tölvuviðgerðir
• Tölvur og jaðarbúnaður