Breiðholtsblaðið - 01.11.2020, Page 9
9BreiðholtsblaðiðNÓVEMBER 2020
Augl‡singasími: 511 1188
Eignaumsjón
20 ára þekking og reynsla!
» Gott viðmót
» Fagleg þekking
» Skilvirkar lausnir
» Gagnsæjar upplýsingar
» Hlutlaus og fagleg nálgun
Suðurlandsbraut 30
108 Reykjavík
Sími 585 4800
thjonusta@eignaumsjon.is
eignaumsjon.is
Hugmyndasöfnun fyrir
lýðræðisverkefnið ,,Hverfið
mitt'' er hafin og stendur til 20.
janúar 2021. Nú eru íbúar beðnir
um að koma með hugmyndir að
dýrari verkefnum enda hefur
fjármagn verið nær tvöfaldað.
Þetta er í níunda sinn sem
hugmyndasöfnunin fer fram
og 787 hugmyndir hafa orðið
að veruleika síðan verkefnið
hófst. Að þessu sinni stendur
hún lengur yfir og er óskað eftir
hugmyndum að stærri verkefnum
frá íbúum í hverfunum.
Verkefninu hefur nú verið breytt
þannig að það nær yfir tvö ár.
Fyrst kemur hugmyndasöfnun en
síðan er farið í íbúakosningar um
hugmyndirnar. Með þessu móti
gefst tækifæri til að auka samráð
við höfunda hugmyndanna og
íbúa í hverfunum, bæði hvað
varðar hönnun á verkefnum og
framkvæmd þeirra.
Einnig hefur fjármagn í
framkvæmdapottinn verið
nánast tvöfaldað og verður
að þessu sinni 850 milljónir
króna í stað 450 milljóna áður.
Hugmyndasöfnun hafin
Ýmis verkefni hafa verið á döfinni á undanförnum árum. Þar á meðal
nýr körfuboltavöllur í Breiðholti.
Hverfið mitt
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti hefur fengið samþykkt að fá 12 gáma
til að búa til tvær kennslustofur. Að undanförnu hefur matsalur
skólans verið notaður fyrir kennslustofu vegna COVID en með þessari
lausn munu nemendur og starfsfólk fá hann aftur í sitt fyrra horf.
Áformað er að byggja við skólann og er hafin vinna við undirbúning
þess en með þessu er verið að leysa bráðan húsnæðisvanda til
bráðabirgða. Farið var að huga að þessum möguleika á liðnu voru og
máið tekið upp að nýju nú í haust þegar ljóst var að erfitt yrði að taka á
móti öllum nemendum sem óskuðu eftir að komast í verklegt nám. Hinar
nýju kennslustofur verða nýttar til kennslu í verklegu námi í rafvirkjun.
Gámastofur við FB