Breiðholtsblaðið - 01.11.2020, Síða 13
13BreiðholtsblaðiðNÓVEMBER 2020
www.borgarblod.is
Soroptimistaklúbbur Bakka og Selja og Kvenfélag Seljakirkju
stefna að því að lýsa Seljakirkju upp með roðagylltu
(appelsínugulu) ljósi dagana 25. nóvember til 10. desember
nk. Þetta er gert til þess að vekja athygli á átaki Sameinuðu
þjóðanna „Roðagyllum heiminn“.
Þessu átaki er ætlað að efla vitundarvakningu gegn kynbundnu
ofbeldi. Alþjóðasamtök soroptimista, ásamt ýmsum öðrum
kvennasamtökum hér á landi og á alþjóðavísu, hafa gert þetta
átak að sínu og taka þátt í því meðal annars með því að lýsa upp
opinberar byggingar í roðagylltum lit meðan á því stendur.
Það er táknrænt að Roðagylltu dagarnir hefjast á alþjóðlegum
baráttudegi Sameinuðu þjóðanna gegn kynbundnu ofbeldi
og þeim lýkur á sjálfum Mannréttindadegi Sameinuðu
þjóðanna, 10. desember, en sá dagur er jafnframt alþjóðlegur
dagur Soroptimista.
Lýsa Seljakirkju
með roðagylltu ljósi
Veggspjald sem gert var í tilefni átaks Sameinuðu þjóðanna.
Á fordæmalausum tímum eru margar nýjar
áskoranir í lífi okkar allra, félagsmiðstöðvarnar
eru þar engin undantekning. Við fengum því
miður þau skilaboð í byrjun nóvember að við
þyrftum í annað skipti á þessu ári að loka dyrum
félagsmiðstöðvanna fyrir börn og unglinga á aldri-
num 10 til 16 ára. Þetta er eins og gefur að skilja
engin óskastaða fyrir starfið okkar en þó nauðsyn-
legt í ljósi aðstæðna. Við héldum starfsdag þar
sem næstu vikur voru skipulagðar út frá þessum
takmörkunum og var niðurstaðan að hafa aftur
stafræna félagsmiðstöð.
Hvað er starfræn félagsmiðstöð? Í mjög einföl-
du máli erum við að bjóða uppá afþreyingu og
lifandi spjall fyrir markhópinn okkar í gegnum
samfélagsmiðla, heimasíðuna okkar og forrit sem
heitir Discord. Við höfum sl. viku boðið uppá bingó
þar sem við keyrum vinninga heim að dyrum til
sigurvegara, við spilum rafræn borðspil með þeim,
tölvuleiki, spjöllum, erum með spurningakeppnir
og margt fleira. Stafræna starfið er í stöðugri
þróun og þykir okkur ótrúlega vænt um að geta
verið í samskiptum við markhópinn áfram þó
að það sé í breyttri mynd. Samhliða þessu hafa
félagsmiðstöðvarnar verið með útirölt öll kvöld
þegar það er venjulega opið í félagsmiðstöðvunum.
Við teljum að það sé mikilvægt að vera sjáanleg í
hverfinu til að stuðla að öryggi og velferð barna og
unglinga í Breiðholti.
Stafræn félagsmiðstöð
fyrir ungmenni í Breiðholti
Margar nýjar áskoranir eru í lífinu í dag. Þar á meðal
er notkun andlitsgrímu þar sem fólk kemur saman.
Mættir í félagsmiðstöðina Hólasel. Að sjálfsögðu
er gríman á sínum stað.
Ó s k u m L e i k n i t i l h a m i n g j u
m e ð s æ t i í ú r v a l s d e i l d !
ALLTAF FULLT BORÐ
AF FERSKUM FISKI
OG FISKRÉTTUM
Opið alla virka daga kl. 9 – 18:30.