Breiðholtsblaðið - 01.11.2020, Side 14
14 Breiðholtsblaðið NÓVEMBER 2020
√ Bókhald og fjármál
√ Húsfélagafundir
√ MÍNAR SÍÐUR
√ Þjónustusaga húss
√ Önnur þjónusta
www.eignaumsjon.is
Húsfélagaþjónusta
Leiðandi í hagkvæmni og
rekstri húsfélaga
Eitt það mikilvægasta sem
við getum gert fyrir börnin
okkar er að tryggja þeim
tækifæri til að taka virkan þátt
í samfélaginu s.s. að ganga í
skóla og taka þátt í íþróttum
og tómstundum. Með þátttöku
í íþróttum og tómstundum
þroska börn ekki aðeins með
sér líkamlega eiginleika og
góðar heilsuvenjur heldur ein-
nig félagslega vellíðan. Börn
læra að vinna saman og teng-
jast í gegnum sameiginleg markmið sem
eru til staðar í íþróttum og tómstundum
og njóta og hafa gaman á sama tíma. Þessi
tengsl og félagslegu færni taka svo börnin
með sér út í lífið þegar þau eldast og nýta
sem styrkleika.
Í verkefninu okkar , ,Frístundir í
Breiðholti“ erum við í nánu samstarfi við
þjálfara og fullorðna sem vinna með börnum
að því að styrkja félagsleg vinatengsl milli
barna og fjölskyldna með ólíkan bakgrunn.
Markmið okkar í Breiðholti er að styðja
alla og veita öllum tækifæri sem búa hér til
að finna sinn stað og hlutverk í samfélaginu.
Við viljum ná til fólks með fjölbreyttan félagslegan og menningarlegan
bakgrunn og upplýsa það um verkefnið ,,Frístundir í Breiðholti“. Í þeim
tilgangi leitum við að einstaklingum sem vilja vinna með okkur að því
að miðla upplýsingum um verkefnið t.d. til fólks af erlendum uppruna.
Hafðu endilega samband ef þú vilt aðstoða eða getur bent á einhvern
sem gæti aðstoðað okkur við að kynna íþrótta- og frístundastarf í
Breiðholti meðal íbúa með fjölbreyttan bakgrunn.
English:
One of the most important things we can do for our children is
to ensure they have every opportunity to participate in society. In
childhood, the “society” that they participate in is i.e. school, church,
sport or leisure activities. Through participation in sport and leisure
activities children develop not only their physical wellness and good
health habits, more importantly their social and emotional well-being.
Children learn to work together and connect as people through shared
goals that exist in sport and leisure activities, while having fun! Here is
the important thing, these connections and the development of these
social skills are something children will take with them as they grow,
and utilize as strengths.
In our project “ Frístundir in Breiðholt” we are working closely with
coaches and adults who work with children. Coaches are taking fur-
ther steps in supporting togetherness between children and families
from diverse backgrounds.
Our goal in Breiðholt is to support everyone living here to find his or
her place in society. We encourage anyone with a desire to support us
in our efforts to reach out. Our goal is to reach out to people of diverse
social and cultural backgrounds and inform them of the project. Please
feel free to send us a line with information about anyone who might be
able to work with us in mediating information about this project. Of if
you just want to share or any other ideas you might have regarding
how we can support all of our children in participating in sport and
leisure activities.
Nichole Leigh Mosty
Verkefnastjóri / project manager
Þjónustumiðstöð Breiðholts
nichole.leigh.mosty@reykjavik.is
Viltu hjálpa okkur
að kynna íþróttir
og frístundir?
Nichole Leigh Mosty.
Heilsueflandi BreiðHolt
Í lok október tilkynnti KSÍ
að keppni á Íslandsmótinu í
fótbolta væri lokið en ekki var
hægt að klára allar umferðir
vegna Covid-19 faraldursins.
Sérstök reglugerð tók þá gildi
og endaði Leiknir í Breiðholti í
öðru sæti Lengjudeildarinnar,
1. deildar.
Það er því ljóst að Leiknir
mun leika í Pepsi Max-deildinni,
efstu deild karla, á næsta
tímabili. Frábær árangur á
sérstöku tímabili en liðið
er gríðarlega vel að þessu
komið. Leiknisliðið spilaði
stórskemmtilegan fótbolta
og sýndi mikinn stöðugleika í
gegnum tímabilið. Liðsheildin
var öflug og margir uppaldir
Breiðhyltingar létu ljós sitt skína
ásamt aðkomumönnum sem eru
orðnir glerharðir Leiknismenn
eftir dvöl þeirra hjá félaginu.
Leiknismenn skoruðu 50 mörk
en aðeins Keflavík skoraði fleiri.
Varnarlega var liðið feikilega vel
skipulagt og fékk á sig 22 mörk á
tímabilinu, fæst mörk allra liða
deildarinnar.
Mikill hugur er í Leikni að gera
vel í deild þeirra bestu á næsta
ári og er mikið gleðiefni að geta
aftur boðið upp á leiki í efstu
deild fótboltans í Breiðholtinu.
Það er skemmtilegt og
spennandi ár framundan.
Leiknir upp í deild þeirra bestu
Vefsíðan Fótbolti.net opinberaði lið ársins
í Lengjudeildinni en þjálfarar og fyrirliðar
sáum valið. Leiknir á fjóra fulltrúa í liði ársins;
hollenska markvörðinn Guy Smit sem kom
hrikalega öflugur inn í liðið, Bjarka Aðalsteinsson
sem var eins og klettur í vörninni, fyrirliðann
Sævar Atla Magnússon sem var gríðarlega skæður
í sóknarleiknum og svo Vuk Oskar Dimitrijevic
sem valinn var efnilegastur í deildinni.
Vuk er uppalinn Breiðhyltingur en fyrir tímabilið
var hann seldur í FH og svo lánaður aftur á
heimaslóðirnar. Vonandi mun Vuk blómstra í
búningi FH á næsta tímabili.
Á varamennabekknum í liði ársins má svo finna
annan Leiknismann en það er varnarmaðurinn
Gyrðir Hrafn Guðbrandsson sem átti
frábært tímabil.
Svo má ekki gleyma því að Sigurður Heiðar
Höskuldsson, þjálfari Leiknis, var valinn þjálfari
ársins. Sigurður hefur gert framúrskarandi
hluti við stjórnvölinn og er einn mest
spennandi ungi þjálfari landsins.
Besti þjálfarinn og efnilegasti
leikmaðurinn frá Leikni