Morgunblaðið - 18.06.2020, Síða 2

Morgunblaðið - 18.06.2020, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JÚNÍ 2020 Útgefandi Árvakur Umsjón Marta María Jónasdóttir Blaðamenn Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is, Marta María Jónasdóttir mm@mbl.is, Auglýsingar Berglind Guðrún Bergmann berglindb@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Forsíðumyndina tók Unsplash Í slenska ferðasumarið er byrjað af fullum krafti. Í þessu blaði er Austurland tekið fyrir en á þeim slóðum er að finna endalausa mögu- leika til að eiga besta sumarfrí sem þú hefur upplifað. Ef Íslendingar hafa einhvern tímann haft tækifæri til að skoða landið sitt án þess að verða gjaldþrota þá er það núna. Tilboðin sem hótel og gististaðir bjóða núna eru einstök. Að fljúga til Egilsstaða og gista á Icelandair hótel Héraði er góð hugmynd eða þá að taka flug og bíl og geta þannig farið um allar koppagrundir. Síðustu ár hef ég oftar en ekki kosið að fara eitt- hvað til heitu landanna í sumarfríinu því það hefur oft og tíðum verið ódýrara en að ferðast innanlands. Svo þekki ég nokkra ein- staklinga sem myndu frek- ar láta ísbjörn éta sig en að sofa í tjaldi. Ég hef reynt að tala fólk til og komið með jákvæða punkta um tjaldútilegur en hef augljóslega ekki verið nægilega sannfærandi. Við höfum þó farið á nokkur sveitahótel víða um land og það hefur alltaf verið upplifun. Mér finnst skipta máli að vera búin að taka til lesefni sem ég hef ekki komist í að lesa í hversdagsleikanum og það er mjög mikilvægt að fá frið frá tölvupósti og amstri daglegs lífs. Frí á að snúast um að koma betri til baka, ekki bugaður af álagi og streitu. Til að það geti gerst þarf fólk að kunna að vera í fríi. Það væri til dæmis frábært ef samfélagsmiðlar eins og Facebook og Instagram byðu upp á „automatic replies“ líkt og tölvupóstsforritin. Á dögunum fór ég í helgarferð til Egilsstaða með tvö af börnunum okk- ar og var það mikil upplifun. Það að komast loksins í flugvél vakti kátínu og svo var mikill spenningur fyrir morgunmatnum á hótelinu. Yngri sonur minn, sem er mikill morgunmatarsérfræðingur, var hrifinn af því að geta bakað sjálfur sína belgísku vöfflu og farið nokkrar ferðir án þess að vera skammaður. Ég þurfti þó að gera athugasemdir við borðsiðina sem höfðu eitthvað skolast til og þá sagði hann: „Mamma, ég er bara búinn að vera svo mikið inni vegna kórónuveirunnar. Ég man ekki lengur hvernig ég á að haga mér innan um fólk.“ Fyrr í sumar hafði sami drengur ekki nennt með mér í ferðalag á húsbíl þegar hann komst að því að það væri líklega ekki nettenging í hús- bílnum. Hann gaf það líka út að hann nennti alls ekki eitthvað langt frá Reykjavík og alls ekki til Egilsstaða. Eftir þessa helgarferð held ég að hann sé búinn að skipta um skoðun. Hann muni bara alveg nenna endalaust til Egilsstaða ef hann getur gist á hótelum, borðað belgískar vöfflur í morgunmat og baðað sig í Vök Baths. Gleðilegt ferðasumar! Þetta ferðasumar kemur ekki aftur! Marta María Jónasdóttir Icelandair hótel Hérað Þú nýtur sveitakyrrðarinnar til hins ýtrasta þótt öll þjónusta sé einnig á staðnum. Þú horfir á spakar kýr rölta um úti fyrir og þú finnur hversu andrúmsloftið er við- kunnanlegt og þjónustan fagleg og vinaleg. Óteljandi útivistar- möguleikar heilla þig og hvort sem þú ferð í fjallgöngu, veiði eða fuglaskoðun er víst að nátt- úran og umhverfið er bæði spennandi og skemmtilegt. Að loknum góðum degi færð þú þér hreindýraborgara á glæsilegum veit- ingastað hótelsins, framreiddan með öðrum heimagerðum kræsingum úr hráefni heimahaganna og á svölum hótelbarsins getur þú orðið vitni að einstöku sólar- lagi. https://www.ice- landairhotels.com/is/ hotel/austurland/ icelandair-hotel- herad Hótel Edda Egilsstaðir Egilsstaðir eru í miðju Fljóts- dalshéraði, grösugu og búsældarlegu, sem geymir margar náttúruperlur: Snæfell, fjalladrottningu Austurlands, Lagarfljót með orminum ógurlega, hinn rómantíska Hallormsstaðaskóg og Atlavík. Stutt er til Seyðisfjarðar sem er þekktur fyrir fjölskrúðugt menningarlíf í einstakri byggð húsa frá 19. öld. https://www.icelandairhotels.com/is/ hotel/austurland/egilsstadir Blábjörg gistiheimili Blábjörg er með gistiheim- ili, veitingastað og heilsulind á Borgarfirði eystri. Gisti- heimilið býður upp á breitt úrval af gistingu frá herbergjum með sameiginlegri aðstöðu til íbúða af mismunandi stærðum. Veitingastað- urinn okkar, Frystiklefinn, leggur áherslu á hollt val úr staðbundnu hráefni. Ef þú þarft á hvíld og slökun að halda, þá er Musteri Spa hinn fullkomni staður fyrir þig. Við bjóðum upp á heita potta og gufuböð, bæði inni og úti. Hér getur þú notið þess að slaka á í kyrrð- inni, njóta fallegs útsýnis yfir fjörðinn og gert þig kláran fyrir annasaman ævintýradag. https://blabjorg.is/ Aldan veitingastaður Á veitingastað Hótels Öldunnar er ís- lenskt hráefni í hávegum haft. Matseldin er undir evrópskum og norrænum áhrifum og úrval drykkja sérvalið. Í sumar er boðið upp á girnilega smárétti sem tilvalið er að deila í góðum félagsskap. http://hotelaldan.is/veitingastadir-a-seydisfirdi/ Hótel Aldan Hótel Aldan býður upp á gistingu í þremur sögu- legum húsum á Seyðisfirði. Hvert herbergi er inn- réttað með sínum eigin karakter og sjarma. Auk hótelherbergja bjóðum við upp á skammtímaleigu á tveimur notalegum íbúðum í gamla hluta bæjarins. Bjóðum upp á æðisleg sumartilboð í gistingu á heimasíðunni okkar. Hundar eru leyfðir í völdum herbergjum og íbúðunum. http://hotelaldan.is/ Hallormsstaðaskógur – tjaldsvæði í Atlavík og Höfðavík Hallormsstaðaskógur er einn stærsti skógur lands- ins og einn þjóðskóganna. Skógurinn er mjög vinsæll til útivistar enda fallegur staður. Það eru yfir 40 km af gönguleiðum á korti. Í skóginum er skemmtilegt trjásafn með yfir 80 mis- munandi trjátegundum. Tjaldsvæðin í skóginum eru tvö, í Atlavík og Höfðavík, bæði í birkiskógi. Atlavík er innan við þéttbýliskjarnann á Hallormsstað en Höfðavík utan við hann (nær Egilsstöðum). Í Atlavík eru tvö salernishús með heitu og köldu rennandi vatni. Þar er aðstaða til uppþvottar, losunar ferðasalerna, salerni fyrir fatlaða, útigrill, borð og stólar ásamt leikvelli. Í Höfðavík eru þrjú salernishús með sturtu. Einnig er þar rafmagn fyrir húsbíla og vagna, losun ferðasal- erna, útigrill ásamt borð- um og stólum. https://www.skog- ur.is/is/thjodskogar/ kort-og-thjonusta/ tjaldsvaedi Hótel Eyvindará Hótel Eyvindará er fjölskyldurekið hótel rétt við Egilsstaði. Við bjóðum upp á gistingu af ýmsum toga. Einstaklings- og hjónaherbergi ásamt litlum sumarhúsum. Hjónin Sigurbjörg Inga og Ófeigur hafa rekið Hótel Eyvind- ará frá árinu 2007. https://eyvindara.is/ Fosshótel Austfirðir Fosshótel Austfirðir er glæsi- legt þriggja stjörnu hótel á Fá- skrúðsfirði. Hótelið er í franska spítalanum en þar er einnig veit- ingastaður og safn þar sem lífi og starfi franskra sjómanna eru gerð skil. Aðgangur að safninu er ókeypis fyrir hótelgesti. Starfsemi hótelsins fer fram í fjórum bygg- ingum við Hafnar- götuna sem hafa verið endurgerðar í samvinnu við Minjavernd. Þekktasta húsið er bygging franska spítalans sem var reist árið 1903 og í notkun til ársins 1939 eða þar til það var flutt út á Hafnarnes þar sem það stóð í eyði í nær 50 ár. Við endur- uppbyggingu húsanna var lögð áhersla á að end- urnýta byggingarefni eins og hægt var. Bygging- arnar hlutu menningarverðlaun Evrópu, Europa Nostra, á sviði menningararfleifðar vegna þessara umbreytinga en þetta er jafnframt fyrsta verkefnið hér á landi sem hlýtur þessi eftirsóttu verðlaun. Veitingastaðurinn L’Abri er á hótelinu. https://www.islandshotel.is/hotels-in-iceland/ fosshotel-eastfjords Upplifun á Austurlandi Inni á Ferðavef mbl.is er að finna kort af helstu gististöðum um land allt. Ef þú ert á leið austur þá ættir þú að kíkja á þessi hótel og veitingastaði. Icelandair hótel Hérað. Hótel Edda Egilsstaðir. Blábjörg gistiheimili. Hótel Aldan. Hótel Eyvindará. Vegahandbókin • Sundaborg 7 • Sími 893 1091 • Uppl. um 3.000 staði • Uppl. um 1.000 menn verur og vætti • Vegakort • Þéttbýliskort • Þjóðsögur • Ítarlegur hálendiskafli • 24 síðna kortabók • Vegahandbókar App • Hljóðbók með þjóðsögum • Hljóðbók með þjóðlögum o.fl. o.fl. Hafsjór af fróðleik um perlur Íslands FULLT VERÐ 4.990- 1.000 kr. afsláttur ef þú kemur með gömlu bókina. Bara í bókaverslunum. Stöðug uppfærsla í 47 ár

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.